Eftir því sem ég les meira um þetta þeim mun sannfærðari verð ég að heddið situr ekki rétt á blokkinni.. Þetta massive leakdown á öllum cylindrum meikar ekki sense. Annaðhvort hef ég klúðrað ísetningunni á cut-rings eða þá að stýrihringirnir hafa ekki sest rétt. Ég er allavega miklu frekar til í að viðurkenna að ég hafi klúðrað ísetningunni heldur en að það sé eitthvað raunverulega að botninum.
Ég gerði leakdownið aftur í morgun á Cyl1, blokkaði af vatnskassahosurnar og þá heyrðist greinilega hvar loftið var að koma út upp um forðabúrið. Ef ég skil þetta rétt þá er þetta basically svona
Loft út um púst = lekir exhaust ventlar
Loft út um throttle body = lekir inntaksventlar
Loft út um crankcase eða tímakeðjuhúsið = ónýtir hringir (eða eitthvað verra í botninum)
Loft út um kælivatn = heddpakning (eða mögulega sprungið hedd,, en þá væri það varla sprungið á öllum cyl)
Leyfi mér smá bjartsýni,
Ef þetta er máliðl mun svo gera leakdown strax eftir að heddið er komið aftur á og búið að herða, bara til að vera viss um að það sitji rétt áður en ég fer að setja meira saman.




