Jæja... þá datt hann í 17.000 km sem er þokkalega vel af sér vikið frá því í byrjun mars.
Afturdekkin eru nánast búin þökk sé allmörgum hringtorgsæfingum og svo þessari begju hér fyrir neðan.
Annar er ég enn í skýjunum með hann. Eyðslan er jú í hærri kantinum en afl kemur ekki ókeypis.
Innanbæjar né ég svona 270km range á 70L tanknum, en á steady krúsi við 130 (algengasti hámarkshraði í nágranalöndunum) þá á ég að ná 550km miðað við range mæli. það er undir 13L/100 sem hlýtur að teljast ásættanlegt. Til gaman má geta þess að 530d fer yfir 1000km á tanknum.
Nú eru aðal pælingarnar í kringum það hvernig dekk ég á að fá mér. Mig langar í Y rated dekk og limiter removal, en það kostar mig slatta pening... OG verður reversað í hvert skipti sem bíllinn fer í tékk hjá BMW. Því miður uppfærist allur hugbúnaður bílsins í dag, en ekki eins og áður þegar þú gast uppfært 1 component per time. S.s. þyrfti ég að fara aftur til tuners og fá limiter removal ef bíllinn færi í inspection hjá BMW.
Mig dauðlangar að gera keyrt á >300km/h, jafnvel farið í 326 svona einu sinni. En það er samt kostnaður upp á svona 2500 evrur aukalega.
Ég held að ég muni ekki setja stærri felgur á bílinn, enda er ég meira fyrir function en form. Ef ég fer einhverntíman í stærri bremsur þá kanski fer ég í 20", en miðað við það hvað þessi bíll er oft í bílastæðahúsum (sem erum ÞRÖNG) þá held ég að 4000 evru gangur af blings myndi þýða að ég væri alltaf grátbólgin í hvert skipti sem ég myndi þrífa bílinn.
Ég er reyndar að hugsa um að láta mála aukaganginn minn af OEM 19" í dekkri lit en hinar sem ég lét mála, og jafnvel ekki með chromeshadow effectinum.