Þetta eiga að vera WHP tölur enn mér finnst það frekar ólíklegt miðað við Dyno Dynamics bekk allaveganna.
Það sem fyrst ber að sjá er að kerfið er að klárast. Þetta sést best þegar borið er samann race gas og pump hjá þeim.
Það er cirka 40hö munur í kringum 7000rpm. Enn 100hö munur í kringum 5500rpm.
Ég á því ekki von á að kerfið hjá Sveini skili meira enn cirka 500-510hö á okkar bekk. Enn getur skilað hvaða togi sem viljað er.
Þar sem að það er minnsta mál að dæla inn boostinu á lægri snúningum. Enn ég held að við séum líklega að horfa á 600nm/500hö eða svo og að togið komi sem best inn(lægsta snúning). Það gefur vélinni lengsta lífið og mesta öryggið. S50B32 runnar 150nm meira enn þessi mun gera á sömu þjöppu og bensíni sem dæmi, þannig að hellings svigrúm.
Boost solenoidið verður stillt á maximum gain í gegnum vems tölvuna. Það þýðir að verið er að reyna spoola sem hraðast alltaf. Þetta gerir bílinn líflegri í akstri (diesel down low, race car up high) enn það er hægt að fítusa þetta til að tengjast gjöfinni líka þannig að þótt 40% gjöf geti boostað í botn þá væri hægt að láta tölvuna halda aftur af boostinu svo hann sé ekki of viljugur þegar það er ekki viljað.




