Algengt vandamál í E30 eru sætisbökin í framsætunum, þau byrja að halla til hliðar og þá alltaf inn á við að stokknum.
Hjá mér var það orðið þannig að bakið var alveg brotið aftur. Við það var ekki hægt að búa svo ég ákvað að rífa sætið til að sjá hvað það er sem er að gefa sig í þessum sætum og líka vegna þess að þetta var leðrað sportsæti sem reyndar er komið með um 300 þús km í reynslu.
Sætið skrúfað úr bílnum og byrjað að rífa.
plata losuð úr baki sætisins og ramminn tekin undan sætinu.
Sæti lagt á hliðina og lamirnar skrúfaðar úr, þar er eiginlega flóknasti parturinn en annað er mjög einfalt.
Þegar lamir eru lausar þá er bakið skilið frá botninum og sætið klárt til að losa leðrið.
Sæti tekið í sundur.
Losa verður lömina.
Ég var alveg viss um að lömin væri ónýt en hún var í 100% lagi
Svo haldið var áfram að rífa, kom mér á óvart að botninn á sætinu er alveg óbrotinn. Mjög algengt í þessum sætum að víragrindinn sé brotinn.
Við nánari skoðun kom í ljós hvað var að sætinu. Það eru svona augu beggja meginn í sætinu sem öxul í lömunum gengur inn í, þessi augu voru rifinn úr sætinu og þurfti að sjóða þau aftur á sætið og til þess varð að rífa allan svamp af sætinu.
Þegar svampurinn er settur aftur á þarf að líma hann á sætið með Jötungripi.
Kom í ljós þegar búið var að taka svampinn af að sætið var einning brotið þar sem farið er út og inn í bílinn, hér er búið að sjóða það.
Allt í sundir.
Búið að sjóða og gera
Fékk sætið soðið á frábæru verkstæði og var eldsnöggur að setja það saman og í. Eftir að sætið var komið í var leðrið hreinsað, litað með lit og síðan borið tvisvar leðuráburður á öll sætin. Notað var efni frá kaj og einnig var allur vínill hreinsaður með efni frá honum, teppi hreinsum með efni frá Meguiars og filmur teknar úr afturrúðum.
Bíllinn hefur sjáldan verið eins góður að innan og núna

_________________

E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter