bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 04. May 2025 03:41

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Thu 29. Mar 2012 23:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
Nú er ég að stefna á að kaupa mér mína fyrstu íbúð, en aðal hausverkurinn er að velja lánið
S.s. Verðtryggt vs Óverðtryggt

Það væri gaman að fá sögur frá þeim sem eru með íbúðalán, hvaða tegund og afhverju
eða þeim sem pæla mikið í þessum hlutum og hafa eitthvað meira vit en ég...

Ég er búinn að reikna það út að ég mun taka 8,8m.kr lán í 20-25ár
og reyna að borga inná það aukalega til að eignamyndun yrði fljótari...

Gallinn við verðtryggða er verðbólgan, en ég fann grein þar sem þeir í ASÍ eru hræddir við óverðtryggðu lánin hjá bönkunum


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 29. Mar 2012 23:52 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Posts: 981
Location: Ásbrú
Það sem ég er hræddur við með óverðtryggðu lánin er þessi fimm ára regla..
Það er að vextir verði endurreiknaðir eftir fimm ár.
Annað er stærðfræði. Vextir + 6,3% verðbólga eins og hún er nú = er 10.5% vextir á ári.
Þú greiðir 4.2% vexti ( m.v. verðtryggt lán með uppgreiðsluáhvæði hjá ÍLS) og verðbólgan 6,3% leggst á höfuðstól. ( Eign þín hverfur )
Óverðtryggt ber 6.2%vexti ( í 3 ár hjá Íslandsbanka.) Þannig verður greiðslubirgði þín hærri svona, en eignamyndun mikið hraðari.

_________________
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:
"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 30. Mar 2012 00:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Skiptir ekki máli hvað þú gerir, þú ert fokked :lol:

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 30. Mar 2012 09:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Verðtryggingin er dulnefni fyrir þrælahald.

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 30. Mar 2012 11:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
óverðtryggt all the way.

Ef óverðtryggðir vextir hækka mikið eftir þessi 5 ár er bara að endurfjármagna og fara í annað.

í dag eru í boði 6,45% vextir óverðtryggt sem er nálægt því sama og verðbólgan er (og hún mun haldast há áfram). Þetta er ekki nokkur spurning.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 30. Mar 2012 11:34 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 21. Nov 2004 01:04
Posts: 116
Location: Kópavogshreppi
Thrullerinn wrote:
Verðtryggingin er dulnefni fyrir þrælahald.

Sammála. Veit um fólk sem tók 10.000.000 króna verðtryggt íbúðasjóðslán til 40 ára í ársbyrjun 2010. Lánið stendur í 12.700.000 krónum í dag.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ er aðal talsmaður verðtryggingarinnar hér á landi. Þannig að það kemur ekki á óvart að yfirlýsing um að óverðtryggð lán séu feigðarflan komi úr þeirri átt. :roll: Enda virðist hann setja hag lífeyrissjóðanna, sem borga honum og fleirum ofurlaun fyrir fundarsetu í sjóðunum, ofar hag alþýðunnar í landinu. :thdown:

_________________
Jón Birgir
Mercedes-Benz C124 230CE '91
Renault Mégane II Sport Tourer '04
BMW E39 520i '99 (seldur)
BMW E28 518 '82 (seldur)
BMW GT


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 30. Mar 2012 11:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
JBV wrote:
Thrullerinn wrote:
Verðtryggingin er dulnefni fyrir þrælahald.

Sammála. Veit um fólk sem tók 10.000.000 króna verðtryggt íbúðasjóðslán til 40 ára í ársbyrjun 2010. Lánið stendur í 12.700.000 krónum í dag.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ er aðal talsmaður verðtryggingarinnar hér á landi. Þannig að það kemur ekki á óvart að yfirlýsing um að óverðtryggð lán séu feigðarflan komi úr þeirri átt. :roll: Enda virðist hann setja hag lífeyrissjóðanna, sem borga honum og fleirum ofurlaun fyrir fundarsetu í sjóðunum, ofar hag alþýðunnar í landinu. :thdown:


Þetta er samt ekki svona einfalt að það sé bara Gylfi sem sé á móti þessu.

Sannleikurinn er sá að krónan missir stanslaust verðgildi sitt og mælist það sem verbólga. Til þess að skuldbindingar haldi raungildi sínu eru þær tengdar verðbólgu. Þetta á bæði við skuldir í íbúðahúsnæði og svo útreikninga viðmiða vegna lífeyrisgreiðslna ofl..

Það hefur verið hellings launaskrið hérna undanfarið og það er vegna þess að það er verið að laga laun að raungildum.

Hugsið þetta bara á þennan hátt. Þið takið lán og fáið svo 50% verðbólgu. Laun fylgja fljótlega eftir (við höfum séð þetta undanfarið) um segjum bara 50% (þetta getur verið aðeins minna eða aðeins meira, fer eftir þjóðfélagslegum aðstæðum).

Ef þið eruð með verðrtyggð lán eruð þið að skulda svipað að raungildi og borga c.a. jafn mikið af launatékkanum í afborganir en ef þið eruð með óverðtryggt hefur hlutfall afborgana lána úr launatékkanum lækkað mjög mikið. Hvort er eðlilegra ?

Það er góð ástæða fyrir því að verðtrygging var sett á fót hér.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 30. Mar 2012 12:28 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Posts: 981
Location: Ásbrú
Zed III wrote:
óverðtryggt all the way.

Ef óverðtryggðir vextir hækka mikið eftir þessi 5 ár er bara að endurfjármagna og fara í annað.

í dag eru í boði 6,45% vextir óverðtryggt sem er nálægt því sama og verðbólgan er (og hún mun haldast há áfram). Þetta er ekki nokkur spurning.



Akkúrat. Og þannig eru raunvextir 0% :thup:

_________________
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:
"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 30. Mar 2012 19:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
þetta snýst í raun um það hvort þú viljir einhverntíman getað borgað höfuðstól lánsins niður. Óverðtryggt er málið hvað það varðar en þá þarf að hafa efni á að dekka sveiflunar sem gta komið á afborganinar. Eftir nokkur ár hefur höfuðstóllinn hinsvegar lækkað og þá fer þetta að léttast. Verðtryggð lán, eins og flestir vita, hækka bara sama þó maður standi alltaf í skilum.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 31. Mar 2012 15:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Bjarkih wrote:
þetta snýst í raun um það hvort þú viljir einhverntíman getað borgað höfuðstól lánsins niður. Óverðtryggt er málið hvað það varðar en þá þarf að hafa efni á að dekka sveiflunar sem gta komið á afborganinar. Eftir nokkur ár hefur höfuðstóllinn hinsvegar lækkað og þá fer þetta að léttast. Verðtryggð lán, eins og flestir vita, hækka bara sama þó maður standi alltaf í skilum.



Hækkar um 100þúsund að lágmarki hjá okkur á mánuði :lol:

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 31. Mar 2012 17:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Posts: 2232
Location: ókunnug.
Höfuðstóll verðtryggðalánsis sem ég er með hefur hækkað um milljón á ári frá því ég tók lánið (4.15% vextir) :cry:
Fyrir hverja milljón sem ég borga af láninu þá hækkar höfuðstóllinn um aðra milljón.
Taktu óverðtryggt lán ef þú villt eiga möguleika á að borga lánið upp áður en þú ferð á ellilaun.

_________________
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 01. Apr 2012 23:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Posts: 2596
Location: Milemarker 85.
Ég tók 10.2 miljónir í lán árið 2005 og stendur það í dag í um 15.3 .

Ég er að borga núna um 6þ krónur á höfðstólinn á mánuði sem gerir 72þ krónur á ári semer ekki neitt.
Ég er að fara að breyta láninu mínu í óverðtyggt og ég horfi bara á þetta til 5 ára.
Ég ætla borga niður lánið mitt um 2 millur og tek því um 13 millur að láni eftir 5 ár stendur lánið í um 10 millum, en ef ég geri ekki neitt
þá mun ég skulda um 20 millur eftir 5 ár.

Ég nenni þessu bara ekki lengur og ætla bara að taka spariféið mitt og laga mín mál, enda er 11% vextir á þessu íbúðarsjóðsláni mínu eins og staðan er í dag en 6.6% á óverðtyggðu. Ekki safnar þetta sparifé mitt vöxtum í bankanum.
Mun betra að borga nalægt 40þ krónur inn á höfuðstólilnn sem gerir um 500þ beinnt inn á höfuðstólinn á ári og lánið lækkar í hverjum mánuði og hækkar aldrei.


Ég stillti mitt óverðtyggða lán upp svona.
Fastir vextir til 5 ára. Jafnar greiðslur svo setti ég eins fá ár og ég treysti mér í til að fá krónutöluna sem ég sé fært um að geta borgað án þess að vera spenna bogan mikið.
Því færri ár sem þú færð lánið að láni því minna borgaru á endanum.

_________________
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Apr 2012 23:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
Já, sýnist óverðtryggt vera eina vitið...
Reyna að vinna sem mest til að borga vel inná höfuðstólinn.
Mikið sniðugara líka að kaupa heldur en að leigja, en helvítis vesen sem fylgir því samt...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 03. Apr 2012 04:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Zed III wrote:
JBV wrote:
Thrullerinn wrote:
Verðtryggingin er dulnefni fyrir þrælahald.

Sammála. Veit um fólk sem tók 10.000.000 króna verðtryggt íbúðasjóðslán til 40 ára í ársbyrjun 2010. Lánið stendur í 12.700.000 krónum í dag.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ er aðal talsmaður verðtryggingarinnar hér á landi. Þannig að það kemur ekki á óvart að yfirlýsing um að óverðtryggð lán séu feigðarflan komi úr þeirri átt. :roll: Enda virðist hann setja hag lífeyrissjóðanna, sem borga honum og fleirum ofurlaun fyrir fundarsetu í sjóðunum, ofar hag alþýðunnar í landinu. :thdown:


Þetta er samt ekki svona einfalt að það sé bara Gylfi sem sé á móti þessu.

Sannleikurinn er sá að krónan missir stanslaust verðgildi sitt og mælist það sem verbólga. Til þess að skuldbindingar haldi raungildi sínu eru þær tengdar verðbólgu. Þetta á bæði við skuldir í íbúðahúsnæði og svo útreikninga viðmiða vegna lífeyrisgreiðslna ofl..

Það hefur verið hellings launaskrið hérna undanfarið og það er vegna þess að það er verið að laga laun að raungildum.

Hugsið þetta bara á þennan hátt. Þið takið lán og fáið svo 50% verðbólgu. Laun fylgja fljótlega eftir (við höfum séð þetta undanfarið) um segjum bara 50% (þetta getur verið aðeins minna eða aðeins meira, fer eftir þjóðfélagslegum aðstæðum).

Ef þið eruð með verðrtyggð lán eruð þið að skulda svipað að raungildi og borga c.a. jafn mikið af launatékkanum í afborganir en ef þið eruð með óverðtryggt hefur hlutfall afborgana lána úr launatékkanum lækkað mjög mikið. Hvort er eðlilegra ?

Það er góð ástæða fyrir því að verðtrygging var sett á fót hér.


Er ekki bara málið að þessi gjaldmiðill sökkar?

Óverðtryggð lán fyrir allan peninginn hér, sýnist reyndar óverðtryggðu vextirnir vera að hækka talsvert, núna í gær úr 6,6% í 6,85% í landsbankanum.

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 03. Apr 2012 09:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Steini B wrote:
Já, sýnist óverðtryggt vera eina vitið...
Reyna að vinna sem mest til að borga vel inná höfuðstólinn.
Mikið sniðugara líka að kaupa heldur en að leigja, en helvítis vesen sem fylgir því samt...



Ég allavega ákvað að kaupa eftir að mér var næstum hent út á götuna með síðustu leiguíbúð.

Vill ekki lenda í þannig aftur.


Reyndar pínu dýrara að borga í "sinn" vasa en það sleppur :thup:

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group