McLarenliðið hefur gert Hans-Ulrich Maik, framkvæmdastjóra mótorsmiðju liðsins, að blóraböggli vegna verstu byrjunar liðsins á keppnistíð í Formúlu-1 í yfir 20 ár. Hefur Maik verið gert að taka poka sinn.
Frá þessu segir í breska blaðinu The Observer en þar segir jafnframt að Mercedes, sem á mótorsmiðjunar Ilmor sem sér McLaren fyrir keppnismótorum, muni jafnframt hefja endurskoðun á þátttöku sinni í Formúlu-1.
Í júlí mun Jurgen Hubbert láta af starfi íþróttastjóra Mercedes. Við af honum tekur maður að nafni Wolfgang Bernhard sem ekki er sagður jafn áhugasamur um að bílsmiðjan haldi í 40% hlut sinn í McLaren og Hubbert.
Það lítur út fyrir að Benz sé bara á útleið úr formúlunni - ég vona bara að Lamborghini komi í staðinn
