ValliFudd wrote:
Það hlýtur að vera miðpunktur þar sem snúrurnar sem liggja í tenglana enda. Þarf líklega að skoða hvað er í gangi þar.
Setja switch þangað og tengja allt í hann.(fjöltengi fyrir netkapla)

þetta er algjörlega svarið við þessu,
einhverstaðar í húsinu er punktur þarsem hausarnir á öllum snúrunum eru þar þarftu að setja upp switch.
srr wrote:
John Rogers wrote:
Það er mjög algengt að bara einn tengill virkar
Þarf oftast að tengja hina

Nískupúka húsbyggjendur?
nei það verður að vera Switch til að nota tenglana
moog wrote:
mattiorn wrote:
Sælir, langaði að leita ráða hérna.
Er með net án heimasíma hjá Vodafone og það eru fullt af nettenglum í íbúðinni hjá mér en netið virkar bara á einum tengli, hvernig fæ ég alla til að virka? Vill hafa tengilinn hjá sjónvarpinu virkan þannig að ég geti nettengt sjónvarpsflakkarann..
any ideas?
þegar þú talar um að bara einn tengill virkar geri ég ráð fyrir því að þú tengir routerinn í símasnúru við þann tengil? Þ.e. þú ert að fá adsl sync á þeim tengli. Og þú vilt geta Virkjað LAN á hina tenglana.
Fyrst þarftu að kanna hvernig lagnaefni er á bakvið tenglana (ef það er lagnaefni til staðar).
Þarft að hafa Cat5 lagnaefni, Cat5 er dregið í langflest ný hús í dag en eldri hús eru yfirleitt bara með 1-2 vírapör á bakvið.
Ef það er millikassi/símainntak einhversstaðar í íbúðinni sem innanhússlagnir skila sér, væri best að koma routernum fyrir þar og tengja adsl línuna beint inn á router og senda síðan út frá lan portunum á router (og/eða bæta switch ef þörf krefur) í þá tengla sem þú vilt að séu virkir fyrir LAN.
Ef þetta er í nýlegu húsi með fyrirliggjandi cat5 lögnum í alla tengla ætti þetta ekki að vera mikill vandi en ef þetta er eldra hús þá er þetta meira vesen, gætir þurft að draga nýjar lagnir í tengla.
það væri nú ljóta ruglið að draga cat 5 í hús þegar cat 6 er til
