Ég hef farið (ég vona að ég hafi ekki póstað tvisvar í könnunina, netið datt út og ég refreshaði.. anyhow).
Þetta var á allan hátt geðveikt! Svakalega mikið að skoða, bæði í borginni og í kring. Fór í rafting einhversstaðar langt uppi í landi, skoðunarferð um miðborgina með local guide og auðvitað á
Sambadrome. Það sem ég vissi ekki til dæmis áður en ég fór er að það sem maður sér á myndum af hátíðinni gerist á lokuðu svæði eina helgi og þú verður að borga þig inn. Það kostaði að mig minnir 12000 kall kvöldið og það var þegar brasilíska ríalið var í kringum 25 kr. (2005) Það er nær 50 krónum í dag.
En borgin sjálf er ekkert slor, þó að hátíðin sjálf hafi verið frekar svona.. tja lala. Maður átti von á því að það væru berar kellingar um allar götur dansandi alla daga.
Það er mikið um að vera, djamm og stuð á þessum tíma sem hátíðin er, en borgin fyllist auðvitað af allskonar lýð sem er bara þarna til að ræna útlendinga. Svo farið varlega
Kúlfactorinn við að sitja á sólbekk á Copacabana ströndinni með kaldan bjór í febrúar er bara óendanlegur.
Þetta er allavega eitthvað sem maður sér ekki eftir.
_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn