Mér finnst þetta vera frekar gróft hjá þeim í skólanum að gera þetta, því þau þurftu ekkert þessi stæði, þau voru ekkert notuð eftir það. Þannig ég þurfti að fara uppí vöku að greiða 10.700 kr. til að baila bílinn minn út.
Ég meina, gátuð þau ekki kallað bílinn minn í kallkerfi? þá myndi ég fara út og færa hann, eða bara bíða með þetta og láta miða á bílinn minn þar sem stendur "ekki leggja hérna, þetta er merkt stæði" eins og þau gera i mörgum öðrum skolum. En æi veit ekki, mér fannst þetta svoldið gróft af þeim að hringja bara STRAX í VÖKU, því ég er námsmaður og á væntanlega ekki endalausan pening fyrir að borga bílinn minn út útaf einhverju svona rugli. Síminn minn og húslyklarnir mínir og allt voru í bílnum og ég var strand í skólanum, og spurði skrifstofu konuna hvort ég mætti hringja og hún svaraði með einhverjum rosa tíkarmáta "nei, ma ekki, gerum það bara ef það er mikilvægt" og ég alveg "þetta er mikilvægt" og hun bara "ja er það.." ég: "ja billinn minn var dreginn, siminn minn var i honum og huslyklarnir" og hun bara "ja var það þinn bill" bla bla bla var að deyja ur reiði!!!
Ég vill fá ykkar skoðanir á þetta endilega ! ekki skítaköst



