bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 05. Jun 2025 13:29

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 35 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
 Post subject: Bílasala í dag
PostPosted: Mon 05. May 2008 23:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Mér datt í hug að fá af stað smá umræður um 'ástandið' á markaði notaðra bíla í dag. Sjálfur fékk ég hálfa bílasölu upp í Range Roverinn og það er bara ekkert að gerast þar.

Hvernig er staðan í dag? Erum við að horfa á frost à la fasteignamarkaðurinn?

Hvernig eru verðin að hreyfast með tilliti til undangengis gengisfalls og 11% hækkunar á nýjum bílum.

Veðsettir vs óveðsettir. Hvað selst, hvað selst ekki?

Hvernig bolta eru fjármögnunarfyrirtækin að spila?

Er eitthvað að gera yfir höfuð?

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 05. May 2008 23:40 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Posts: 673
Location: Laugardalur eða Geysir.
Er ekki mest allt dautt í dag?

_________________
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 05. May 2008 23:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Geysir wrote:
Er ekki mest allt dautt í dag?

Ég veit það ekki, þess vegna hlakka ég til að sjá svör frá mönnum í bransanum.

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Bílasala í dag
PostPosted: Mon 05. May 2008 23:49 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 05. Jun 2006 23:36
Posts: 523
Location: Rvk
zazou wrote:
Mér datt í hug að fá af stað smá umræður um 'ástandið' á markaði notaðra bíla í dag. Sjálfur fékk ég hálfa bílasölu upp í Range Roverinn og það er bara ekkert að gerast þar.

Hvernig er staðan í dag? Erum við að horfa á frost à la fasteignamarkaðurinn?

Hvernig eru verðin að hreyfast með tilliti til undangengis gengisfalls og 11% hækkunar á nýjum bílum.

Veðsettir vs óveðsettir. Hvað selst, hvað selst ekki?

Hvernig bolta eru fjármögnunarfyrirtækin að spila?

Er eitthvað að gera yfir höfuð?

hvort fékkstu marga bíla eða bílasöluna sjálfa :oops:

_________________
Jón Bjarni
BMW 530D E-39 2002 MR.X :twisted:

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 06. May 2008 00:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 23:40
Posts: 2731
Notaðir bílar frá 200-1500þús seljast vel,td Toyota.

Eftir því sem ég heyri..
Allt sem kallast bílabrask í dag er BÚIÐ sökum hertra lánareglna á notaða bíla, og einnig eru örugglega ansi margir í veseni sem voru með há myntkörfulán á eignum sínum.

Svo finnst mér ansi mikið af dýrum bílum vera að brenna sl mánuði....tilviljun eður ei.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 06. May 2008 08:09 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Maður heyrir ýmislegt í kringum sig. Bílar sem teljast kannski bara venjulegir bílar, kannski sirka 3 milljón króna bílar eru sumir hverjir nú með meira en 700 þúsund áhvílandi umfram ásetta verðið. Notaðir bílar hafa verið hækkaðir í verði sem hjálpar kannski upp á veðið að gera en ekki seljast þeir frekar fyrir vikið.

Bolmagn fólks til að borga með bílunum er að hverfa þannig að manni segir svo hugur að margir sitji hreinlega uppi með bílana - þ.e. þeir sem eiga kannski einn eða tvo.

Maður veit hreinlega ekki hvað gerist hjá þeim sem eru með marga bíla og geta ekki borgað sig frá þeim.

Það er ansi hart að vera t.d. með tvo nýlega bíla, einn jeppa og einn fólksbíl, og vera með þá í 1,5 milljónir í mínus t.d.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 06. May 2008 11:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Þeir sem lenda ekki jafn illa í því eru þeir sem endurfjörmögnuðu ekki þegar þessi eyðslu stefna byrjaði fyrir nokkrum árum.

Áttu kannski 14milljóna hús sem er núna 35milljónir enn mun að öllum líkindum lækka.

Fasteignir þeirra hafa farið hátt hátt á þeim tíma og þeir einstaklingar hafa svigrúm til að takast á við erfiðari tíma, ekki eins og þeir sem eru veðsettir fasteigna og bílalega séð.

Það sem mér finnst lélegt er þegar þetta fólk sem er komið í vandræði kennir öðrum enn þeim sjálfum um. Hvernig datt þeim í hug að þau gætu rúllað um á margar milljóna bílum og farið í þessu líka löngu og fínu ferðalög áhyggjulaus. Og launin fóru ekki einu sinni upp að neinu valdi.

Mér finnst þetta í heild sinni mjög leiðinlegt hvernig græðgi getur farið með fólk.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 06. May 2008 12:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
gstuning wrote:

Þetta er umræða í öðrum þræði :wink:

Það sem ég hef áhuga á er dýnamíkin nú þegar búið svo gott sem að loka fyrir lánveitingar. Ég til dæmis er þeirrar skoðunar að verð á mörgum bílnum hefur verið haldið uppi af lánum, þeas að viðkomandi bíll kostar ekki x kúlur heldur xx.xxx á mánuði. Bíll sem flestir mundu ALDREI spara fyrir.

Svo þessi blessuðu ásettu verð á bílum sem voru skrúfuð upp jafnvel hærra en á nýjum sams konar bíl til þess eins að fá x% af 'ásettu' í lán.

Hvað gerist svo í framhaldinu?

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 06. May 2008 12:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
það sem er að ske núna er að það er ennþá allt á bremsuni eftir því að lýnurnar fara að skýrast aðeins, fólk er fljótt að gleyma og þetta á eftir að rjúka af stað aftur.. ekki endilega á þessu ári samt

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 06. May 2008 12:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
og ekki næsta heldur.

íslenski efnahagurinn er ekki að fara kippast í liðinn á einu ári.

Það sem ég var að segja með fasteigna eignina er að þetta er allt partur af sama hugsununarhættinum.

Ef fólk á ekki fyrir húsinu sínu þá er sko enginn að fara geta borgað af bílnum sínum.

Það er ekki bara lána æsingurinn sem er búinn að valda þessu heldur hversu ótrúlega auðvelt er að fá HVAÐA bíl sem er fluttann hingað til lands fyrir næstum ekkert vesen. Og því hefur orðið ný stærsta atvinnugrein á íslandi, sem er bílabraskarar, allir að taka þátt í því að flytja inn bíla og ætla að meika aura á no time. Það er bara ákveðið mikið "pláss" fyrir bílabraskara á íslandi og eins og er þá er sá markaður löngu orðinn stíflaður, hvað þá ný bíla markaðurinn útaf því sama.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 06. May 2008 13:59 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
íbbi_ wrote:
það sem er að ske núna er að það er ennþá allt á bremsuni eftir því að lýnurnar fara að skýrast aðeins, fólk er fljótt að gleyma og þetta á eftir að rjúka af stað aftur.. ekki endilega á þessu ári samt

Kannski smá off-topic en það er langt í það að markaðurinn „rjúki af stað“ aftur.

Ástandið á eftir að versna til muna áður en það batnar.
Góðæri seinustu ára var tekið að láni og nú er einfaldlega komið að skuldadögum.
Það hafa margir bent á að svona skuldasöfnun gengi ekki endalaust (segir sig auðvitað sjálft). Á þá var ekki hlustað, Íslendingar héldu að þeir væru svo svakalega klárir og að þeir væru miklu betri fjármálamenn en aðrar þjóðir sem hafa aldalanga reynslu af viðskiptum. Menn voru ofurbjartsýnir og héldu að hlutirnir færu bara upp.
En núna erum við að taka skellinn.
Og hann á því miður örugglega eftir að verða ansi harður.

http://new.vb.is/?gluggi=frett&flokkur=1&id=42582

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 06. May 2008 22:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Posts: 3209
Location: inn í bílnum þínum.
er ég eini sem fynst skrítið að fasteigna og bíla verð sé að hækka núna á fullu um mörg prósent.
Mér fynst að verðið ætti að lækka frekar vegna lítillri eftir spurn og of-framboði?

_________________
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 06. May 2008 22:33 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Posts: 844
Location: Akureyri
lítil eftirspurn ekki einfaldlega vegna hækkunar?

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 07. May 2008 06:34 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
HPH wrote:
er ég eini sem fynst skrítið að fasteigna og bíla verð sé að hækka núna á fullu um mörg prósent.
Mér fynst að verðið ætti að lækka frekar vegna lítillri eftir spurn og of-framboði?

Fasteignaverð er að lækka. Fasteignasalar eru nýbyrjaðir að verðleggja eignir með sölu í huga og allt önnur verð eru farin að sjást. Verulega lækkanir á fermetra verði. Það er hinsvegar lítið sem selst, einfaldlega vegna þess að verð er ennþá of hátt og aðgangur að lánum er engin.

Fyrstu fasteignasalarnir eru búnir að kveikja á því að það er ekki lengur seljendamarkaður heldur kaupendamarkaður. Þegar restin áttar sig þá breytast verðin og þeir síðustu til að kveikja á þessu fara á hausinn. Þetta gerðist í fyrra hér í DK og hér hefur fasteignaverð lækkað um 20-30% á einu ári (án þess að það þyki einhver stórtíðindi reyndar).

Bílarnir hækka auðvitað út af gengi sem er markmiðið með þessu öllu saman - draga úr viðskiptahalla. Hinsvegar er alveg glórulaust að hækka verð á notuðum bílum en þó gera umboðin það.

Þetta skapar dálítið furðulegan markað og kannski var Brynjar að fiska eftir því. Umboðsbílar (notaðir) verða því ENN dýrari en þeir voru á meðan bílar sem seldir eru á almennum markaði lækka enn frekar. Fólk neyðist til að borga meira með bílunum sem eru með mest áhvílandi, uppboðum fjölgar og verðin eiga því eftir að verða eitthvað furðuleg.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 07. May 2008 06:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
bebecar wrote:
...
Þetta skapar dálítið furðulegan markað og kannski var Brynjar að fiska eftir því. Umboðsbílar (notaðir) verða því ENN dýrari en þeir voru á meðan bílar sem seldir eru á almennum markaði lækka enn frekar. Fólk neyðist til að borga meira með bílunum sem eru með mest áhvílandi, uppboðum fjölgar og verðin eiga því eftir að verða eitthvað furðuleg.

Spot on old sport :lol: . Og einnig hvaða áhrif þetta hefur á neysluvenjur landans.

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 35 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 115 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group