Sælir,
ég póstaði því hér um daginn að ég væri staddur í Chile. Mig langar aðeins að kynna fyrir ykkur verðlagið hérna.
Það er moll við hliðina á hótelinu mínu, alveg haugur af búðum og svoleiðis. Ég byrjaði fyrst að skoða rafmagnstækin og var að bera verðið saman við það sem gerist heima jú jú það er nokkuð gott td. Ipod nano 4GB á 15.000 kall ca.
En þetta er ekki allt ég fór síðan inn í fatabúð Christian Lacroix (flott jakkaföt í glugganum) síðan mátaði ég þau allra flottustu jakkaföt sem ég hef séð, efnið er geðveikt o.s.fv. + skyrta og bindi. OK nú er komið að því að strauja kortið og ekkert mál með það. Ég bið stelpuna um að geyma fyrir mig fötin svo ég geti fengið mér að borða og tekið smá labbitúr um verslunarmiðstöðina. Ég kem síðan aftur og ætla að ná í fötin en ákveð að bæta við einni Skyrtu og bindi.
Reikningurinn fyrir allt dótið 20.000 Kr ISK ég gat ekki orða bundist og sagði stelpuni að þeir gætu alveg eins gefið þetta.
En sæluni er lokið í bili fer heim í nótt, 30 klst ferðalag.
Ciao
Elli
