Hannsi wrote:
saemi wrote:
Hvað er að Angelic0??????
Þetta var á samkomunni á Akureyri. Þessi verslun var lokuð og ekki nokkur maður fyrir utan okkur þarna á svæðinu.
Hvernig væri nú að fara að gera eitthvað uppbyggilegra en svona bull og vitleysu
Og Hvað er að ÞÉR og ÖLLUM hinum? (nema Gunna sem virðist fatta)
Þetta er djók enganveginn ílla meint, og hann var á staðnum og vissi að það væri lokað og það var samkoma þarna!!!
meira hvað þið getið lagt greyið manninn í einelti!!!!!!!!

Ef Einhver þá meina ég nánast alveg sama hver hefði póstað þessu inn þá hefði öllum verið drullu sama.
En nei í staðinn notið þið tækifærið til að drulla yfir manninn!!!
Það er sennilega bara það að mér (ásamt mörgu öðru) að ég fattaði ekki að um grín væri að ræða.
Mér er alveg sama frá hverjum þetta innlegg kom, svar mitt tengdist efninu ekki höfundinum. Ég hef ekki lagt það í minn vana að drulla yfir neinn né leggja í einelti. Ef þú getur sannað slíkt upp á mig skal ég glaður éta það ofan í mig strax, en þangað til þætti mér vænt um að vera ekki vændur um slíkt.
Ég er bara svona illa gerður að ég áttaði mig ekki á að þetta væri algjört bull og vitleysa. En þar sem svo er, þá er mér slétt sama um þetta innlegg. Ég í einfeldni minni hélt bara að það væri einhver tilgangur og meining með þessu innleggi. En það virðist ekki vera svo, eins og í póstum sem koma hingað inn í vaxandi mæli.
Over and out
