by Svessi » Wed 17. May 2006 02:54
Edit: Bara svona afþví þegar ég ætlaði að fara pósta því sem hérna fyrir neðan kemur sá ég að BMWaff var búinn að pósta video-inu, þetta er annað af nýju video-unum, hinn er næstum á sama stað, staurinn sem þú ert að tala um er bara svona hlið eins og við þekkjum í t.d. bílastæðahúsum, ekkert óeðlilegt við það. Hinsvegar sannar þetta video ekkert meira en þessar 5 myndir sem þeir voru búnir að gera út, sýnist meir að segja að þeir rammar séu notaðir þarna akkurat þegar “vélin” er að fara inn, það er nákvæmlega ekkert sem styður það á þessum myndum eða video-um að þetta sé farþegaflugvél af nokkur gerð.
- - -
Jæja, jæja, alltaf kemur eitthvað nýtt í ljós öðru hverju.
Nenni ekki að fara skrifa mikið hérna, þarf að fara sofa bráðum.
+ ég er orðinn þreyttur þannig að ef einhverjar stafsetningarvillur eru þá bara fuck it now.
Jæja, nokkrar fréttir í dag í sambandi við “vélina” sem fór í pentagon, voru að sýna fleyri meira video frá því, ég er aðeins búinn að leita, besta fréttin er á skynews.co.uk og svo er hægt að sjá video-ið í fullri lengd á cnn.com – Það sem þeir eru búnir að gera er að lengja þetta 5 ramma video, byrjar eins og með sömu fáránlegu dagsetningunni undir eða 12. sept klukkan 17:35 og svo líða secundurnar ekki eins undir, reyndar oft sem búið er að klippa þennann tíma út en þegar þið sjáið hann kíkið vel á hann, svona komu þessir 5 rammar með þessum tíma, mjög skrítið.
Í öllu þessu samtalls 3 mín af nýju video sem sýnir þetta þá er aðeins 1 rammi sem er eitthvað varið í og hann sýnir allsekki greinilega boeing vél, hvað þá farþegavel, það rétt sést í nefið á einhverju sem er að koma inn á mynd, allsekki hægt að greina hvað það er, svo ef eitthvað er þá er þetta bara fuel fyrir meira conspyracy. Hitt allt er bara reykur eftir að vélin á að vera búinn að fara inn í húsið.
Það er einn lítill hluti sem mig langar að benda ykkur á, horfið á video-ið á skynews.co.uk , takið eftir fólkinu sem labbar í þéttri þverri röð yfir gras þarna ekkert langt frá og er að tína upp smáhluti, þetta er mjög athyglisvert, hvaða fólk er þetta, sjáið hvernig það er klætt, bara í venjulegum skrifstofufötum og er ekki yfirleitt einhver ransókn sem þarf að fara framm, ég hélt að svona hluti mætti ekki snerta???
Og að auki með video-ið þetta nýja, ég fann það hvergi ...ennþá, þar sem ég get downloadað því beint inn á tölvuna hjá mér, bara streamað því.
Videoið sem [Geirinn] er að benda okkur á með 20$ seðilinn er akkurat sem ég var að benda ykkur á. Það er ekkert meira á þeim seðli svo ég viti til, en það er hinsvegar heilmikið sem er á 1$ seðlinum að skoða, þarf ekki að brjóta uppá hann.
Í sambandi við Bohemian Grove þá er þetta einhverskonar sumarleyfisstaðar með mikla öryggisvakt, semsagt það kemst ekki hver sem er inn á svæðið, en þó ekki meiri en það að Alex Jones var ekki kickað í burtu, en hann segir í einu video að þeir hefðu verið spurðir 3-sinnum hverjir þeir væru.
Þetta er staður sem háttsettir karlar í bandaríkjunum hafa líst sem yndislegum stað en segja ekkert frekar hvað þeir eru að gera þarna, sumir fara svo langt að segja að þetta sé yndislegasti staður í öllum heiminum.
En eftir því sem Alex Jones komst að, hversu mikið sem maður á að trúa því að hann hafi virkilega farið þarna inn á þetta svæði í raunveruleikanum, hver veit, þá eru þeir að dýrka einhverja tré-uglu og líkja eftir mannforn!!! Afhverju eru háttsettir einstaklingar og bandaríkjaforsetar tengidir inn í eitthvað svona, og ekki eins og það sé einhver einn forseti heldur margir!!!
Segjum bara sem svo að Hr. Ólafur Ragnar Forseti myndi allt í einu segja í einhverju viðtali að hann hafi oft komið í Bohemian Grove og það sé yndislegur staður til að vera á, svo sér maður eitthvað svona á netinu, held að maður myndi spyrja einhverja spurninga, ekki satt? Ég held að maður myndi ekkert endilega vilja hafa hann sem forseta lengur.
The New World Order – Hvað er það? Hver og hvenær haldiði að þetta hafi verið sagt fyrst? Bush Seneore 11. September (man ekki hvort það var 1990 eða 1991), annars skemmtileg dagsetning, þeir hafa kallað þetta einhverju öðru nafni líka, man ekki hvað það er. Annað með Denver Airport, skilst að fyrsti hluti hafi verið settur í notkun ´94 og það er einhver hornsteinn þar, þar sem eru skilaboð til folksins eftir 100 ár eða 2094 og undir stendur “New World Airport Commission” ef einhver getur fundið eitthvað um þessa commission, þá hefði ég mikinn áhuga á að fá að vita og sjá, alveg eins og mörg hunduð öðrum, því þetta einfaldlega er ekki til, en afhverju er það á hornsteini á þessum furðulega flugvelli. Eins og ég segi það er ekki bara einn hlutur á þessum flugvelli það eru að minstakosti 3, semsagt útlitið á flugvellinum, málverkin inni á flugstöðinni sem eru nokkur, ekki eins og það sé bara eitthvað eitt, og svo þessi hornsteinn. Einnig vilja sumir meira að aðkoman að bílatæðunum, semsagt götunar, myndi hrútshöfuð. Nei, nei þetta eru allt bara tilviljanir, ekkert sem maður þarf að vera pæla í.
Í sambandi við WTC byggingarnar sjálfar, ég er búinn að skoða það mikið, ekki bara í gegnum conspyracy heldur líka allskonar tæknilega hluti semsagt hvernig turnarnir virkilega voru uppbyggðir. Í fyrsta lagi þá voru slökkviliðsmenn komnir allaleið upp þar sem eldurinn var í, turninum sem seinni vélin fór inn, eða semsagt þar sem eldurinn lögaði bara í öðrum hluta hússins og var lægra niðri og hrundi á undan, það sem sannar það eru upptökur úr talstöðvum slökkviliðsmannanna. Þar segir að það sé smá eldur á nokkrum stöðum, ekkert sem yrði erfitt að slökkva. Einnig eru til myndir af fólki standa í opinu þar sem vélin fór inn, ætlar einhver að fara segja mér núna að hitinn þarna hafi verið svo mikill að jarnið bráðnaði, eða það sem þeir kalla pancake theory, þar sem ein hæðin byrjar að detta niður og þungið á þeirri næstu verður svo mikill að næsta hæð fellur and so on. Ef það hefði gerst, hefði turnarnir hrunið á minstakosti á yfir hálfri mínutu, sumir segja jafnvel yfir mínutu. Annað, turnarnir voru byggðir eins og þrár littlar blokkir ofaná hvor annarri, og á milli hlutana var svona lyftuhæð þar sem þú skiptir um lyftu, það var engin lyfta sem gekk á milli tveggja hluta, semsagt þannig að ef þú ætlaðir þér uppá efsta hlutann þá þurftur þú að taka að minstakosti 3 lyftur og það voru engin göt í gegnum bygginguna svo loftflæmi inni í bygginunni frá efsta hlutanum og niður á nestu hæðir var mjög, mjög takmarkað. Í sambandi við stálgrindina inni í bygginunni þá voru 47 stálgrindur sem voru í miðjunni, voru með þykkasta stálið neðst og þynsta efsta, svo ef þekkir til og getur mælt stæðina á bitanum og svo þyktina þá getur þú sirkað uppá 20-30 hæðir hvar í bygginguni sá biti hefur verið. Og svo var dótið sem var í kringum glugana stálgrind líka, svo það var einskonar net í kringum bygginguna sem hélt utan um hana, þetta er eitthvað sem ekkert rosalega margir vita. Okí, gefum okkur það að stálið hafið bráðnað, afhverju hrundi allt sem undir var og tættis svo mikið að það fór allt í ryk, ég er ekki að tala um smá mola heldur í ryk.
Og það sem athyglisverðast er, þetta ryk var eitrað, allavega ekki mjög holt að anda því að sér. Man ekki hvort það var 12 eða 13 sept sem einhver heilbryðisstofnum gaf það út með þrýstingi frá einhverjum stórum köllum að “The Air Is Safe To Breath” ...allt til að geta opnað wallstreat aftur, björgunarmönnum var bannað að nota grímur til að hræða ekki almenning!!! Spáið í því. Margir af björgunarmönnunum hafa fengið ýmsa lungnasjúkdóma og t.d. hafa 14 björgunarhundar dáið eftir þetta.
Annað í sambandið við WTC, mexicanski gaurinn sem segist hafa verið húsvörður þarna, hann er að segja satt. Hann hafði, sem betur fer mætt of seint í vinnuna þennann morgun, og var þessvegna að tala við einhver yfirmann sinn á hæð -1 semsagt hæðinni fyrir neðan jarðhæð. Það voru minnir mig 7 hæðir niður í jörðina. Þeir hann eins og hann lýsir í video-inu heyrir hvell og heldur að það sé einhver rafall (Generator) eða eitthvað álíka, og svo stuttu steinna heyrir hann annann hvell en heyrir að hann er langt, langt í burtu fyrir ofan sig. Svo kemur til hann maður öskrandi sem er með brendar hendur. Og segir bara “lyfturnar, lyfturnar” Getur einhver útskýrt þetta fyrir mér? Afhverju var maður sem var á neðstu hæð brendur, þegar flugvélin fór inn á eitthvað í kringum 80. hæð?
Í sambandi við Alex Jones og David Icke.
Alex Jones er svona gaur sem fær upplýsingar, rannsakar það sem hann hefur heyrt og kemur svo upplýsingum á framfæri, aðalega í gegnum útvarpsþátt sem hann er með í texas og svo í gegnum heimasíðu.
David Icke er breskur gaur sem er ekta Conspyracy gaur, samt pælir hann heilmikið í hlutunum og jafnvel fer alveg til tíma Egyptana. Semsagt þetta er miklu stærri mynd er bara þessi árás 9/11 2001.
Ef þið nennið að horfa á svona google video þá mæli ég með video sem heitir “911 Eyewitness” það er bara venjulegur gaur sem fór út með video-vélina sína um leið og hann heyrði að eitthvað hefði hitt annan turninn, hann stór á bryggju sirka 3 km frá turnunum, þar sem hann stóð komu sprengingarnar mjög vel framm, svo kemur hann líka með smá sínar kenningar.
Það er bók sem heitir 9/11 Commision eða eitthvað álíka sem er skýrla einhverrar rannsóknarnefnar sem áhugaverðir aðilar komu að ef maður fer að skoða það, kannski ekki þekktir aðilar almenningi en þegar maður fer að skoða ferill þeirr sem voru að stjórna þessari skýrslu þá skilur maður ýmsilegt, það fór t.d. ekkert í þessa bók nema bandaríkjastjórn samþykkti. T.d. er ekki minst á WTC 7, annað með WTC 7 fyrst ég nefni hana, í dag er verið að endureysa þá byggingu alveg eins og hún var!!! Held að það yrðu nú einhverjir sem myndu segja, hey, bíddu stopp, afhverju hrundi þessi bygging 9/11 á svona furðulegann hátt, er safe að byggja hana aftur?
Þessi Larry Silverstone sem nefndur er í myndbandinu keypti allt WTC dótið sumarið 2001 og tryggði það í Ágúst fyrir 7 billjón dollara og sérstaklega fyrir hriðjuverkaárás.
Í bókinni þarna 9/11 commision þá nefna þeir á einum stað þessa putopsions og segja að þeir hafi fundið út hver keypti mesta magn þeirra og afþví hann er ekkert tengur Al-Quadia þá skipti það engu máli!!! What!
Það voru billjónir virði af gulli undir þessum byggingum, bara smá hluti af því hefur verið endurheimtur, skilst að það sé innan við hálf billjón sem hefur verið endurheimt.
Stálinu úr byggingunum var mest allt, sent sem fyrst til Asíu til endurvinnslu, áður en hægt var að gera nokkra rannsókn á því, reyndar er nokkrir bitar hér og þar til sýnis í bandaríkjunum en þá bara einn biti á hverjum stað.
Í sambandi við Clinton og Moniku, þeir eyddu um 100 sinnum meiri fjármunum í að ransaka það heldur en það sem þeir hafa eytt í ransaka hvað gerist í kringum mestu hriðjuverk í sögu bandaríkjanna.
Eins og ég segi, það eru bara of margar spurningar sem hefur ekki verið svarað.
Æ, ég ætlaði að skrifa eitthvað meira, man bara ekki hvað það var, ég er orðinn svo þreyttur, hættur í bili, reyndar er þetta miklu meira en ég ætlaði mér.
Ef einhver hefur áhuga þá á ég bæði Oilstorm bíómyndina og 1 þáttinn í The Lone Gunman í tölvunni hjá mér, nenni ekki að fara uploada þessu einhversstaðar en ég gæti alveg sett þetta á disk.
Sverrir Már
Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93