bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 08. May 2025 16:34

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 22 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Fri 12. May 2006 00:00 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49
Posts: 446
Ég hef verið að velta þessu fyrir mér í þónokkur tíma, langað bara að pósta þessu inn og sjá svona hvernig viðbrögð við þessari hugmynd yrði.

NOTA-BENE þetta er algjör gæluhugmynd og ég hef ekki talað um þetta við neinn, þetta er það fyrsta sem ég læt frá mér um þessa hugmynd.
Ég myndi ekki pósta þessu hvar sem er, því ég er ekki að sjá hvaða bílaklúbb sem er geta farið í svona ferð, ég er ekki að skjóta þessu á einhvern einn áhveðinn klúbb eins og ég veit að sumir halda núna.


Það er nú ekkert langt síðan að hérna á BMW-kraftur spjallinu var verið að pæla í hópferð til UK á einhverja MEGA BMW-samkomu, auðvitað langaði öllum að fara en annað var með hvort fólk hefði efni á því, hefði tíma eða aðrar álíka ástæður.

Ég er semsagt búinn að vera pæla í því hvort einhver möguleiki sé á því að byrja t.d. fljótlega /á næstu mánuðum að skipuleggja hópferð á bílum með Norrænu til helst UK sumarið 2007 semsagt eftir heilt ár, því ég held að það að pæla í sumrinu núna 2006 sé allt, allt of stuttur fyrirvari og það yrði ekkert úr svoleiðis dæmi.

Það sem hugmyndin byggist uppá.
Farið væri í hópferð til Seyðisfjarðar, skiptir ekki máli hvort farið er suður eða norðu leiðina ef farið er að sumri til, kannski frekar norðuleiðina og stoppa á akureyri þar sem norlenskt kjöt ...ég meina BMW-krafst fólk myndi taka á móti sunnlendingunum með bros á vör, boðið uppá pulsur og kók-bjór og haldið svo áfram, jafnvel daginn eftir til Seyðisfjarðar til að taka Norrænu.

Fyrir ferðina væri búið að setja upp nokkuð nákvæmt plan, semsagt hvar yrði gist, hvað yrði gert og svo einhver frír tími fyrir alla svo hver og einn getur gert það sem honum langar til án þess að þurfa hanga með hópnum.

Það sem ég er að tala um í skipulagi er t.d. :
* Hvar er gist, kannski gist á nokkrum mismunandi stöðum.
* BMW-Mega-samkoma/sýning
* Möguleiki á að komast í kynni við BMW-áhugamannaklúbba í UK næsta vetur og hitta þá svo næsta sumar.
* Fara á nokkra track-days á mismunandi brautum.
* Jafnvel passa uppá að fara á tíma þannig að hægt væri að ná Silverstone Formula 1 keppninni.
* Bílasöfn, og annað áhugavert skoðað
* Ef einhverjir hefðu áhuga að fara í svona super-car-driving-experiment eins og ég fór í fyrra á Thruxton, semsagt prófa Ferrari og Lamborgini og svoleiðis.

Helst að það yrði einhver skipulagsnefn sett á laggirnar, og hennar djobb væri að búa til plan fyrir ferðina, finna semsagt út hvernig best væri að hagræða ferðinni svo ekki yrði keyrt framm og tilbaka um allt bretland heldur frekar að hægt væri að keyra einhvern hring eða suður eftir M5 og svo aftur norður.
Finna út ódýrstu deala fyrir track-day og ferðina út og hótelgistingu og fleyra í þeim dúr.
Þeir sem ætluðu sér svo að fara út, yrðu að borga þessari skipulagsnefnd einhverja ákveðan upphæð sem væri þá fyrir ferðinni, hótelinu og eitthvað af uppákomum eins og track-days og fleyra í þeim dúr.
Sú upphæð gæti auðveldlega verið á bilinu 150-200 þús kr. Og þá væri búið að ganga frá öllu fyrir ferðalangann, miðum og hóteli og öllu svoleiðis.
Jafnvel mætti láta skipulagsnefndina athuga hvort einhverjir væru til í að styrja svona ferð.

Eitt sem má bæta við er að vel má reikna með því miðað við bensínverð í dag að bíll með eyðslu uppá 10-15 lítra á 100 geti auðveldlega farið með 50 þús kr jafnvel meira í svona ferð.

Ég hef ekkert almennilega skoðað ferðir Norrrænu en svona pælingin er að þetta yrði svona 2-3 vikna ferð.

Veit ekki nákvæmlega með kostnað en ég get alveg ímyndað mér að fyrir einstakling með einn bíl að við værum að tala um allavega 300.000 kr, og mjög auðveldlega hægt að fara yfir 500.000 kr ef mönnum langar að gera margt og eru að eyðslusömum bíl. -Miðað við gengið í dag.

Og til að ökutæki meigi fara í svona ferð út úr landi verður hann að vera full skoðaður og með greiddar tryggingar.
Og ég tala nú ekki um það að maður getur alveg reiknað með afföllum í bílaflotanum í svona ferð, hversu leiðinlegt sé svosem að segja það. Og þá er ég að tala um allt sem getur komið fyrir helst þá árekstur, þjófnaður eða skemmdarverk. En auðvitað myndi maður vonast eftir að ekkert slíkt myndi gerast en það þarft bara alltaf að vera viðbúin því.

Svo er ein hugmyndin til að einhver skynsemi sé í kringum þetta að enginn yngri en 20 ára mætti ferðast einn, og allsenginn yngri en 18 ára koma með.
Það má auðvitað deila um þetta, en þetta er mín hugmynd.
Menn hliðhollir BMW-kraftur-klúbbnum mættu vel koma með ef þeir uppfylla öll skilyrði og enginn/fáir séu á móti því.
Ekkert að því að hafa t.d. nokkra Porsche bíla með.

Svo held ég líka að hópurinn sem ætlaði sér að fara í svona ferð yrði að hittast nokkrum sinnum og spjalla t.d. í pool eða álíka áður en farið yrði, bara til að kynnast smá, semsagt ég vil meina að svoleðis yrði að vera hluti að undirbúningi fyrir svona ferð.
Því t.d. bara með mig, þótt ég hafi mætt á nokkrar samkomur og talað við nokkra ykkur, og aðeins farinn að skrifa hérna á spjallinu þá þekki ég eiginlega engann ykkar neitt og er ekkert viss um ég myndi vilja fara með ykkur í svona ferð núna. En ég væri virkilega til í að fara í svona ferð með fólki sem hefði áhuga á þessu og ég hef einhvernveginn mikla tilfinningu að fólkið sem passar í svona ferð sé hægt að finna hérna.

Svo er líka eitt, ég hef ekkert talað við umsjónamenn BMW-krafts um hvernig þeim líst á þetta, getur velverið að þeir vilji ekki blanda nafni klúbbsins við þetta, þá er spurning hvort hægt sé að finna menn sem hefðu áhuga á að skipuleggja svona ferð, án þess endilega að hafa BMW-kraftur nafnið nálægt þótt það væri jafnvel eingöngu BMW bílar úr klúbbnum sem myndu fara. Allsekki neitt ílla meinta, ég bara veit ekkert hver viðbröð umsjónamanna hérna verða við þessari hugmynd því hún kemur sennilega eins og þruma úr heiðskíru lofti.

Ég veit alveg að það eru örugglega alveg fullt af gaurum hérna sem hugsa: “Vá! Cool hugmynd, gerum þetta!” Mig langar frekar að sjá hvort fólk tímir þessu og er verulega viljugt að taka þátt í svona, og alveg frá næstum deginum í dag leggja smá til hliðar á hverjum mánuði til að geta farið í svona ferð eftir örlítið meira en 1 ár. Mig virkilega langar að sjá bæði commentin: “Já! Geggjaðasta hugmynd í heimi” og líka “Ertu eitthvað snar, þetta er fáránlegasta hugmynd sem ég hef séð af öllum spjallborðum á öllu internetinu!” + að mig langar að sjá einhver smá meiri comment og hugmyndir, allar hugmyndir velkomnar, ég er eiginlega bara að biðja um þær, hversu fáránlegar sem þeir geta virst vera. ...eða snjallar.

Veit alveg að þetta er pínu geggjuð hugmynd og örugglega fullt, fullt af hlutum sem þarf að huga að sem mig órar örugglega ekki fyrir að þurfi að kíkja á. En ég held að þetta sé alveg tilraunarinnar virði að pósta hérna hugmyndinni og sjá hvað þið segið.

_________________
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93



Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 00:22 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Fri 31. Mar 2006 00:18
Posts: 122
Location: Grafarvogur
Virkilega góð hugmynd og sem töluð úr mínum munni, hef einmitt verið að spá í hvort eitthvað svona væri framkvæmanlegt með hóp manna eftir að hafa lesið pistlana frá Nurnburg.
Er í sömu aðstöðu og þú, er nýr hér og þekki fáa.
Ég er til í að skoða virkilega vel svona dæmi,frábært framtak að koma þessu á blað sem ég er vissum að margir eru að spá :clap: :clap: :clap: :bow: :bow: =D> =D> [-o< [-o<

_________________
BMW 530i 1988
to be 535i+

MIG LANGAR SVO....


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 00:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Þetta gæti gengið að mínu mati. Skoðaði sjálfur hugmyndina um að fara út sjálfur með félögum mínum í sumar en við ákváðum að fyrirvarinn væri enginn og þetta væri mjög dýrt miðað við það.

Ég er hjartanlega sammála þér með aldurstakmarkanir í svona ferð og þeir sem eru yngri, þ.e. 18+ geta sjálfsagt fengið að troða sér með öðrum.

Varðandi að main destination sé Bretland ... er ekki viss um hvað mér finnst um það, full þröngt að mínu mati, spurning um að fá fleiri álit ... pros & cons. Hvað með t.d. að krúsa niður Evrópu og enda í sólinni ?

Eins og þú segir þá er þetta hrikalega dýrt svo maður tali ekki um vinnutap í kringum þetta en þetta er að sjálfsögðu þvílíkt ævintýri.

Ég get ekki sagt sjálfur til um að svö stöddu hvort ég myndi taka þátt... en hugmyndin er góð.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 00:56 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Fri 31. Mar 2006 00:18
Posts: 122
Location: Grafarvogur
Já reindar setti ég spurningamerki við Bretland en þetta er gott start þó :o

_________________
BMW 530i 1988
to be 535i+

MIG LANGAR SVO....


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 01:10 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
ég ætla í svona ferð sumarið 2007 og er byrjaður að safna :) (vissara að byrja snemma, ekki mikið af peningum meðan maður er í skóla)

Munurinn er bara sá að ég stefni á Þýskaland og eitthvað niður evrópu, hef svosem ekkert planað ennþá enda fullt af tíma til stefnu.

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 08:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
lýst lítið á að fara til UK ... mun frekar fara til Þýskalands :idea: en annars góð hugmynd.... hugsa samt að ég myndi ekki komast með.

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 08:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Geggjuð hugmynd! Lýst mjög vel á hana og þetta gæti bara vel gengið. EN! Ég sé eitt að henni. Finnst að við ættum að fara til Þýskalands frekar og hvað þá á NÜRBURGRING!! Að vísu bara mitt álit en ég FER þessa braut einhverntímann og best væri að fara með heilum bílaklúbb :D


En fyrst þessi hugmynd er komin í loftið þá er ég bara byrjaður að safna fyrir þessu og ef það verður ekkert úr því þá á ég bara hellings pening í bílinn minn næsta sumar :P

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 08:51 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Lindemann wrote:
ég ætla í svona ferð sumarið 2007 og er byrjaður að safna :) (vissara að byrja snemma, ekki mikið af peningum meðan maður er í skóla)

Munurinn er bara sá að ég stefni á Þýskaland og eitthvað niður evrópu, hef svosem ekkert planað ennþá enda fullt af tíma til stefnu.

Nákvæmlega sama hér! Kannski að ég hitti þig á leiðinni.. planið er að byrja í de og keyra svo helst til ítalíu 8) :lol:

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 09:05 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Já ég er sammála ÖLLUM :lol: um að UK sé alveg off.
Fínt kannski að fara þangað og hitta einhvern annan klúbb eða álíka en fara síðan áfram til DE og reyna að fara á sem flesta staði þar.
BMW verksmiðju, Nurburgring, Alpina, Hartge, Schnitzer, Hamann og eitthvað álíka.
Ég ætla að reyna að fara í svona ferð sumarið 2007 og enda þá á ítalíu. Það væri ekkert leiðinlegt að fara í samfloti með Kraftinum.

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 09:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Ég segji bara fara til DK og skoða Christianiu og svo til Amsterdam á Kaffihús og svo hóprúnt á Nürburgring 8) Getum gist á hótelinu sem Þórður var á...

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 09:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Danni wrote:
Ég segji bara fara til DK og skoða Christianiu og svo til Amsterdam á Kaffihús og svo hóprúnt á Nürburgring 8) Getum gist á hótelinu sem Þórður var á...


jamm svo getur Eggert tekið Bongið sitt með og allir orðið freðnir

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 09:25 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
einarsss wrote:
Danni wrote:
Ég segji bara fara til DK og skoða Christianiu og svo til Amsterdam á Kaffihús og svo hóprúnt á Nürburgring 8) Getum gist á hótelinu sem Þórður var á...


jamm svo getur Eggert tekið Bongið sitt með og allir orðið freðnir
Hahaha :lol:

Sounds like a plan :drunk:

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 09:39 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
einarsss wrote:
Danni wrote:
Ég segji bara fara til DK og skoða Christianiu og svo til Amsterdam á Kaffihús og svo hóprúnt á Nürburgring 8) Getum gist á hótelinu sem Þórður var á...


jamm svo getur Eggert tekið Bongið sitt með og allir orðið freðnir

:rofl: :tease:

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 10:04 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Ég er rosalega til í þetta.. Ætli það væri hægt að græja spons á sona ferð..
Kannski út á einhverja Mynd um bílaklúbba í evrópu.
Og svo kannski ef þessi nefnd myndi skoða með að græja einhver verð nyður vegna fjölda?
það væri hörku stuð að taka sona ferð upp.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 12. May 2006 10:13 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Ég er mikið búinn að spá í þetta sjálfur og þetta gæti orðið geðveikt.
En hinsvegar verður þetta þá að vera með miklum fyrirvara, vel skipulagt of fólk sem segist ætla að fara verður actually að fara.
Það hefur verið reynt að fara saman á bmw fest í þýskalandi og það gekk ekki upp útaf þáttökuleysi.

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 22 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group