Zyklus wrote:
ValliFudd wrote:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/04/loka_fyrir_umferd_oliubila/Jæja, olíufélögin lækkuðu verð til að sýna stuðning sinn í verki en hvað gera jeppakarlarnir? Trufla starfsemi þeirra sem eru með þeim í liði? Nú er ég alveg hættur að skilja?
Það er greinilegt að olíufélögunum hefur tekist ætlunarverk sitt með þessari lækkun um daginn...
Núna sem sagt eru olífélögin með okkur í liði (riiiiight...). Þeir lækka í einn dag og hinn týpíski íslenski neytandi gleypir auðvitað við því
og gleymir því hvernig búið er að svína á honum ár eftir ár, núna eru olíufélögin hetjurnar.
Það er ekki skrítið að það sé enginn virk samkeppni á Íslandi þegar neytendur eru svona svakalega einfaldir.
...
Útskýrðu eitt fyrir mér... af hverju getur Atlantsolía þá ekki verið með afgerandi lægra verð fyrst að hin olíufélögin okra svona svert á okkur?
Mér hefur aldrei þótt AO vera nógu lágir að ég nenni að standa í því að taka bensín hjá þeim.
///M wrote:
Held að fólk ætti líka aðeins að vakna og átta sig á því að bensín er ekkert dýrt hérna miðað við löndin í kringum okkur. Og ég tala nú ekki um þegar tekið er í myndina fólksfjöldi og að við búum á eyju.
Varðandi lægsta verð á norðurlöndum, hvaða gengi er notað? Danska í 16, norska í 15? Ég þekki ekki til en bendi á það að þegar gengið er í svona rugli þá eru hlutir í útlöndum hrikalega dýrir.
Ef krónan hefði ekki rýrnað um 25% þá erum við að tala um lítraverð uppá 140 ekki 187 í Noregi, 128 ekki 171 í Danmörku og 118 ekki 158 í Svíþjóð.