E55FFFan wrote:
þessi eini þráður sem að er læstur vegna ósmekklegheita var þráður sem að ég og annar vorum sammála um að ekki væri við hæfi, og var því lokaður, það var ekki ég sem setti þann þráð upp ! og það með símanúmerin, hvernig nennirðu að tala um þetta? hefurðu ekki eitthvað betra að gera út í skúr hjá þer heldur en að reyna að laga heimin?
ég gat ekki seð annað en það þegar að ég keypti knastás af þer vetur að skúrinn hjá þer er jafn subbulegur og þessi þráður þinn !
eeeen fyrst að þú segjir þetta, þá hlýtur það að vera rétt!
Fyrirgefðu en átt þú við einhver alvarleg vandamál að stríða???
Í fyrsta lagi þá er fyrsta innleggið í þessum þræði sem þú segist ekki hafa sett upp, EFTIR ÞIG. Hvernig getur einhver annar en þú þá hafa byrjað hann???
Í öðru lagi þá eru ekki allir svona latir og þú. Sumir nenna að skrifa um mál sem þarf að taka á og þeim finnst skipta máli, nenna að nota "search" eða "pm" til að komast að hlutum sem lítið mál er að komast að.
Í þriðja lagi, hvernig í ósköpunum dettur þér í hug að vera að tala um skúrinn minn og skjóta á mig varðandi það í þessu samhengi? Þetta er eitt það al-heimskasta sem ég hef séð hér á spjallinu. Að þér detti í hug að vera að draga þetta inn í umræðuna er það sama og að loka kistunni, moka yfir þig og tyrfa yfir gröfina þína! Talandi um að kunna ekki að hætta að moka!
Skúrinn minn er ekki sá snyrtilegasti, það skal ég fallast á með glöðu geði. Þar eru hrúgur af dóti hingað og þangað, fullar hillur, felgur og dekk hingað og þangað... En... hvað kemur það málinu við? Að vera að draga persónuleg mál inn í þetta er gjörsamlega óskiljanlegt. Það er ekki eins og ég sé með skúrinn minn til að hafa hann sem snyrtilegastan. Ég nota skúrinn minn til að vinna í og geyma hluti!
Á ég þá að vera að segja hvað það var nú rausnarlegt að bjóða þér knastás á 5000 kall, brandaraverð. Eða tala eitthvað um það að ég leyfði þér að skila viðkomandi knastási þegar þú fattaðir að þú hefðir ekkert við hann að gera?
Í guðanna bænum, hættu að taka þessu sem einhverri persónulegri áras og nota einhver persónuleg mál sem vopn. Ég hef ekkert á móti þér persónulega, mér leiðast bara bull-kommentin þín.