saemi wrote:Það er skömm að því að þú skulir vera á þessum launum sem þú talar um. Fyrir þetta vinnuframlag ættir þú að vera allavega á þreföldum þessum launum. Ég skil ekki af hverju þú ert að vinna þarna, eina skýringin hlýtur að vera von um stórbreytingu handan við hornið með betri kjörum... Eins og atvinnuástandið er í dag þá ætti enginn fullfrískur ungur karlmaður sem nennir að vinna að þurfa að vinna á þessum launum.
Ef fyrirtækið sem þú ert að vinna fyrir sér sér ekki sóma í því að greiða mannsæmandi laun, þá er það á ábyrgð starfsfólksins að krefjast hærri launa. Það er til lítils að kvarta yfir því að eigendur borgi manni ekki nógu góð laun, maður verður annaðhvort að knýja fram hærri laun með samstöðu og samningum eða fara annað. Þú gætir verið á hærri launum með að vinna á kassa í matvörubúð. Það er slegist um fólk á vinnumarkaðinum eins og staðan er í dag.
Það eru nánast eingöngu erlent fólk að vinna já þessu fyrirtæki við erum til dæmis að vinna hjá pabba 3 íslendingar og eru íslendingrnir einu sem varta því útlendingarnir hafa aldrei fengið jfn góð laun. Þannig ef við 3 sem eru þarna gerum eitthvað væri bara fundið pólverja í starfið. Mjög svo satt að þetta séu skömmustuleg laun en ég reyni og reyni að inna mér aðra vinnu en lítið í boði á suðurnesjunum. Tala nú ekki um það að ég er proflaus og erfitt aðfá vinnu utan þessa litla sveitafélags. Svo líka vona ég að btri kjör séu á nsta leiti þar sem ég mun ræða við pabba minn um mikla launa hækkun eða ég hætti að mæta (sem hann mun ekki láta gerast)
Svo er ég líka einmitt að vonast að komast á frystitogara hjá fyrirtækinnu




