Rétt: Leita að .... Rangt: leita að ....

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby bebecar » Fri 03. Jun 2005 08:20

íbbi_ wrote:hmm.. ég er víst sekur um það sem bebe er að benda á :? án þess að hafa hugmynd um hvert brotið er þó?


Nú... í fyrsta lagi þá eru ríki í Bandaríkjunum, ekki fylki...
Í öðru lagi verður að gæta samræmis... þannig að ef það á að vera fylki, þá verður þú líka að tala um;
Bandafylkin
Bandafylkjaforseta
Alfylkisdómstólinn
Alfylkislögregluna
Fylkisstjórann Svarzenegger

o.s.frv... :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby BMWaff » Fri 03. Jun 2005 11:13

Er heldur ekki að skilja hvað er að þarna?
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby BMWaff » Fri 03. Jun 2005 11:18

Bíddu... Það er alltaf talað um sum fylki í bandaríkjunum?? Hef allavega alltaf heyrt það... EN hvort það c rétt er ég ekkert að segja... En held samt að flestir segi það...
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby bebecar » Fri 03. Jun 2005 11:19

BMWaff wrote:Bíddu... Það er alltaf talað um sum fylki í bandaríkjunum?? Hef allavega alltaf heyrt það... EN hvort það c rétt er ég ekkert að segja... En held samt að flestir segi það...


það er auðvitað KOLVITLAUST :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby BMWaff » Fri 03. Jun 2005 11:24

Alltaf lærir maður eikkað nýtt :)
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby Joolli » Fri 03. Jun 2005 12:13

Svona fyrst við erum í bitsinu:
Það er eitthvað og einhver
Semsagt:
Hvað = hvorugkyn þar að leiðandi eitt
Hver = karlkyn þar að leiðandi einn

Ekki eitthver eða einhvað!

NIGGA PLEASE!

[edit]
---Hvað = hvorukyn þar að leiðandi eitt
+++Hvað = hvorugkyn þar að leiðandi eitt
[/edit]
Last edited by Joolli on Sat 04. Jun 2005 17:08, edited 1 time in total.
M. Benz E320 Sportline '94 Svart Metallic
M. Benz E420 '94 Vínrauður
BMW 530iA '94 Diamondschwarts Metallic - Seldur
BMW 525iA E34 '94 Orientblau Metallic - Seldur
M. Benz 220E W124 '93 Ljósgrár - Seldur
BMW 316i E30 '90 Gletscherblau Metallic - Seldur
User avatar
Joolli
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 457
Joined: Thu 03. Jun 2004 22:09
Location: Reykjavík

Postby BMWaff » Fri 03. Jun 2005 13:00

Skrifað Nigger...
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby arnib » Fri 03. Jun 2005 13:24

Joolli wrote:Svona fyrst við erum í bitsinu:
Það er eitthvað og einhver
Semsagt:
Hvað = hvorukyn þar að leiðandi eitt
Hver = karlkyn þar að leiðandi einn

Ekki eitthver eða einhvað!

NIGGA PLEASE!


Segir maður ekki "hvorugkyn" ?

:arrow: Þessi þráður gæti auðveldlega orðið lengsti þráður spjallsins fyrr og síðar :)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby bjahja » Fri 03. Jun 2005 13:38

Fyrst við erum nú byrjaðir......
Veit að þetta hefur verið sagt margoft en

AUGABRÚNIR EKKI AUGABRÝR :lol: :lol:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby BMWaff » Fri 03. Jun 2005 14:03

Vangefin ekki Vængefin
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby bebecar » Fri 03. Jun 2005 17:18

BMWaff wrote:Vangefin ekki Vængefin


VænGgefin og HÁLviti eru samt alltaf fyndin :lol:

Er ekki Sæmi VænGgefin :wink: og svo hljóta þeir sem drifta að vera HÁLvitar.... :?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby oskard » Fri 03. Jun 2005 19:10

það er margt til í þessu :)

bebe hver er munurinn á fylki og ríki ? :)
oskard
 

Postby arnib » Fri 03. Jun 2005 19:37

oskard wrote:það er margt til í þessu :)

bebe hver er munurinn á fylki og ríki ? :)


Skv. tölvuorða bókinni ísl -> enska

er fylki -> state
og ríki -> state

:)

Ég skil bebecar að benda á að það sé fyndið að tala um fylki bandaríkjanna,
en að segja að fylki sé rangt með öllu á ég erfitt með að gleypa án frekari skýringa! [-(
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby bebecar » Sat 04. Jun 2005 08:29

arnib wrote:
oskard wrote:það er margt til í þessu :)

bebe hver er munurinn á fylki og ríki ? :)


Skv. tölvuorða bókinni ísl -> enska

er fylki -> state
og ríki -> state

:)

Ég skil bebecar að benda á að það sé fyndið að tala um fylki bandaríkjanna,
en að segja að fylki sé rangt með öllu á ég erfitt með að gleypa án frekari skýringa! [-(


Það er náttúrulega bara ein bók sem er með þetta rétt og það er stóra Ensk-Íslenska orðabókin sem Örn & Örlygur gáfu út.

Þar er ekki minnst einu orði á að "state" sé "fylki" íslensku, heldur þvert á móti "ríki" í öllum útgáfum - enda eru bandaríkin ríkjasamband og ber að nefna þau eftir því. Menn geta heldur ekki talað um "Arnold Schwarzenegger ríkisstjóra í Kaliforníufylki" í sömu setningunni enda er það bara fáránlegt!

Það kemur hinsvegar ekki á óvart að sjá þessa vitleysu í tölvuorðabókinni frá íslensku yfir á ensku enda er þetta notað víða þrátt fyrir að hverjum manni hljóti að vera ljóst vitleysan sem felst í þessu ef þeir aðeins opna augun.

Fylki getur í sumum tilfellum átt rétt á sér sem þýðing á state, en ekki þegar um er að ræða ríkin í USA, fylki á t.d. rétt á sér þegar talað er um "kommúnur" t.d. eins og í Danmörku eða Sviss.

Stærsti liðurinn er samt sá að gæta samræmis og skal ég alveg sætta mig við "fylki" ef fólk er reiðubúið að nota það alfarið, það mun hinsvegar hljóma mjög asnalega.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby oskard » Sun 05. Jun 2005 01:21

Ég verð að segja fyrir minn smekk er ekki nóg að heimta samræmi
til að segja eitthvað réttara en hitt ;)
oskard
 

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 49 guests