grettir wrote:Það hefði verið ótrúlega snjallt að innleiða þetta sem valmynd í gsm síma. Maður hefði þá skráð gemsanúmerið í bankanum, farið svo á heimasíðu Vodafone eða Símans og fengið auðkennisforritið sent eins og hvern annan leik eða eitthvað drasl.
Þegar "lykillinn" væri kominn í símann þyrfti maður bara að smella á nýtt númer eða e-ð og voila.. maður er alltaf með símann og þarf ekki að "burðast" með aukahluti á lyklakippunni.
Ekki vitlaus hugmynd, en þá erum við komin útí þá pælingu hvort að allir séu nú með síma með Java stuðningi



