Jss wrote:HPH wrote:ég seigi að það eigi að legja hinar og þessar stofnanir niður eða láta gera þær einkareknar. t.d. er gott að birja á Umboðsmaður Hesta að gera hann einkarekinn eða legja þá stofnun niður. aðskilja ríki og kirkju. Stjórnmál og trúarbrögð hafa Aldrei farið saman. STRÆTÓ. og mart fleira.
Ég legg samt til að þeir sem eru að tala um að leggja hinar og þessar stofnanir niður ættu að skoða nánar hvað þessar stofnanir gera o.s.frv. Það kemur oft verulega á óvart hversu mikið fer þar í gegn og hvað "þær" gera fyrir þjóðfélagið.

Kaffistofuumræður eður ei, en...
Ég verð að segja að ég hef í mörg ár búið erlendis, og nokkuð mörg af þeim árum á ansi vafasömum stöðum. Það er að fólk hefur ekki í sig né á. Að segja að það sé fátækt á Íslandi er mesta hræsni sem ég hef heyrt, ever. En það er allt relatíft væntanlega.
Ég sé menn róta í ruslatunnum daglega, oft á dag, öllu heldur í hvert skifti sem ég fer út, ég sé menn og konur sem eru annaðhvort í 90 gráðu keng eða þá að það vantar á þau útlimi. OG....ég hef búið að verri stöðum!!!
Þannig að, ég ætlaði ekki að nenna að eyða púðri í þennan þráð, en kommon, haldiði kjafti og veriði ánægðir með það sem þið hafið, sem er helvíti mikið, hver svo sem pólítísk skoðun manna er.
Og annað er, hvað svo sem fólki finnst um Írak og Bush og lögmæti þess alls dæmis eður ei, þá er hollt að minnast þess að það eru ekki mörg ár síðað að Ísland hætti að taka á móti þróunaraðstoð víða að!!!!!
Þeir sem mæla á móti því að Ísland leggi eitthvað til málanna hvað þróunaraðstoð erlendis varðar ættu aðeins að hugsa sinn gang og kannski út frá því hvar þeir væru ef ekki hefði komið til aðstoð Íslands til handa erlendis frá í ansi langan tíma. Og þá er ég nota bene ekki að tala um USA eða herinn í þessu samhengi. Enda er þar ekki um þróunaraðstoð að ræða.
Og rétt í lokin þá man ég ekki hver framlegð Íslands til þróunarmála er, en hún er skelfilega lítil miðað við alla aðra, en það eru væntanlega ýmsar skoðanir á því, en mér þætti vænt um að fólk í það minnsta kynnti sér málin áður en farið er að babbla um x og z opinberlega, sem jú spjallvefir eru.
Og rétt í lokin. Það er alltaf verið að kvarta yfir hina og þessu en þeir sem hæst kvarta kjósa oft ekki af því þeir segja að það hafi enga þýðingu! Að mínu mati hefur fólk með slíkum ummælum fyrirgert rétti sínum til að kvarta.
Ekkert diss að nokkru leyti, bara nokkrar staðreyndir.
G