fart wrote:Ein spurning,
Hefði ekki verið betra að sogreinin væri ekki alveg sivalingur/rör og breiðara nær spjaldhúsinu og mjórra að aftan til að jafna loftflæðið inn á hvern runner. Mögulega skiptir slíkt minna máli soggreinarhúsi þar sem að um eitt spjaldhús fyrir alla er að ræða?
sjálfsagt væri það eflaust aðeins betra en runnerarnir inní heddinu eru svo mislangir ss lengri inntaksgöng í cylendrana sem eru nær hvalbaknum ef þú fattar mig. menn hafa verið að rönna svona "rör" inntök með mjög fínum árangri alveg langt yfir það sem mig langar, sem er um 400 whp og svipað í togi (ekki það að maður geti sannreynt það einhvað hér heima


þetta er svona það sem hefur verið " go to " inntakið seinustu ár sem er hægt að kaupa og eins og þú sérð minnkar það örlítið frá TB og útí enda.
Aðal ástæðan fyrir því að ég notaðist við rörið var að það er tiltölulega auðvelt í smíði fyrir mig (fyrsta svona inntak sem ég reyni að smíða) og að það er svo margfallt ódýrara en að kaupa svona inntak eins og ég póstaði hér að ofan en mig minnir að það sé á einhvað í kringum 100 þ. kr úti notað og nýtt er það um 1000-1100 $ seinast þegar ég gáði allavegana
b.t.w þá er ég nánast 100% á því að ég á eftir að smíða annað svona inntak uppá nýtt þegar ég er orðinn aðeins færari í því að vinna með álið og er farinn að getað soðið það sjálfur (treysti mér ekki í það af augljósum ástæðum), vinur minn Bjarki sauð þetta allt fyrir mig og sá strákur veit alveg hann er að gera þegar hann kveikir á tig vélinni

















