Bíllinn er í toppstandi og nýbúinn að fara í gegnum allsherjar úttekt hjá Brimborg þar sem farið var yfir og skipt um fóðringar, pakkdósir, jafnvægisstöng og skynjara. Eina sem ég get sett út á bílinn er að leðrið í hliðunum á sætunum er farið að láta á sjá (virðist hrjá þessa týpu af Ford Explorer hvað sem veldur) en að öðru leyti er hann gullfallegur og ljúfur í alla staði.
Aukabúnaður er dráttarbeisli, stigbretti og leðuráklæði en þess utan þá er þessi týpíski staðalbúnaður í amerískum, s.s. sjálfskipting, cruise control, loftkæling, sjálfvirkur dimmer í spegli, geislaspilari, skyggðar rúður í aftari gluggum, fjarstýrðar samlæsingar o.s.frv. Bíllinn er á mjög góðum og grófum heilsársdekkjum.
Frekari upplýsingar hjá Alla í síma 8980179.
