bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 540i 6 gíra Árg. '00 - SELDUR https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=9931 |
Page 1 of 2 |
Author: | Djofullinn [ Mon 04. Apr 2005 00:02 ] |
Post subject: | BMW 540i 6 gíra Árg. '00 - SELDUR |
Til sölu er beinskiptur 540i Aðeins um bílinn: BMW 540i 6 gíra beinskiptur V8 4,4L 286 hö við 5400 sn/min 440 Nm við 3600 sn/min Bíllinn var fyrst skráður í Þýskalandi 6/2000. Hann var síðan fluttur inn fyrir mig af Georg í Úranus og fór á númer á íslandi 4. nóvember 2004 þá ekinn 136.3XX km. Bíllinn er ekinn núna 139.4XX km og er ég því ekki búinn að keyra hann nema rúma 3000 km á því tæpa hálfa ári sem ég hef átt hann. Í vetur var hann á sumardekkjum og eingöngu notaður þegar göturnar voru auðar þar sem ég átti einnig 750 bíl sem var á vetrardekkjum. Góð þjónustubók fylgir frá því að bíllinn var nýr! Hröðunin frá 0-100 er um 6 sek sem er betri tími en á E34 M5. Bíllinn hreinlega spítist áfram og öskrið frá vélinni er eitt það fallegasta sem ég hef heyrt ![]() Eyðslan hjá mér er um 14 L innanbæjar samt er ég talinn vera með frekar þungan bensínfót ![]() Í langkeyrslu dettur eyðslan niður í 9 L. Þegar ég ákvað að kaupa þennan bíl var ég mikið að spá í að fara í E39 M5 en eftir miklar vangaveltur komst ég þeirri niðurstöðu að 540 væri mun hagstæðari og skemmtanagildið ekki það mikið minna. Fyrir utan verðmun þá eyðir hann einnig mun minna og annar rekstrarkostnaður er lægri. Einnig gerir beinskiptingin hann mun skemmtilegri en sjálfskiptan 540. Enginn M5 en mikill skemmtikraftur engu að síður ![]() Búnaður: Xenon aðalljós Þokuljós Ljósaþvottur Regnskynjari Spólvörn 16" álfelgur ABS bremsur Loftþrýstingsskynjarar Bakkskynjarar Rafdrifnar rúður Rafdrifnir speglar sem leggjast einnig að bílnum með einum takka Fjarstýrðar samlæsingar Ræsitengd þjófavörn GLERtopplúga ![]() Rafstýrt velti- og aðdráttarstýri tengt Memory í sætum Vökvastýri Aðgerðarstýri Sjálfdekkjandi speglar Svart buffalo leður Comfort sæti með rafmagni, hita, minni og NUDDI ![]() Armpúði Business CD Aksturstölva Cruise control Loftkæling, tölvustýrð og tvískipt Bíllinn er með Executive pakka sem ég veit ekki alveg hvað inniheldur en mér finnst nokkrir hlutir þarna á listanum nokkuð líklegir til að tilheyra honum Nokkrar myndir: ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Fleiri myndir og stutt video HÉRNA Áhvílandi á bílnum eru tæpar 1.600 þús kr. hjá Sjóva. Afborgun er um 39.000 kr. Bíllinn verður seldur á 2.700 þús en miðað verður við 2.900 þús ef bíll verður tekinn uppí. Hinsvegar er það samningsatriði ef um mjög ódýran bíl er að ræða. Tilboð 2.400.000 Skoða skipti á ódýrari. Hægt er að hafa samband við mig með eftirfarandi leiðum: MSN danieltosti@hotmail.com Email danieltosti@internet.is PM/EP hér á BMWKraftur.is P.s Ef hugsanlegur kaupandi hefur áhuga þá get ég mögulega reddað 17" Rondell 58 felgum á sumardekkjum með bílnum og bætast þá 100 þús kr við kaupverðið. Bíllinn verður einnig seldur með nýjum númeraplöturamma og verður því númerið á sýnum stað ásamt því að hann verður nýsmurður. |
Author: | Schnitzerinn [ Mon 04. Apr 2005 00:17 ] |
Post subject: | |
Hvur þremillinn, tjahh þetta var nú leitt að þurfa að losa sig við svona dýrling ![]() |
Author: | Djofullinn [ Mon 11. Apr 2005 10:41 ] |
Post subject: | |
Schnitzerinn wrote: Hvur þremillinn, tjahh þetta var nú leitt að þurfa að losa sig við svona dýrling
![]() Sammála því ![]() Þar sem ég hef fengið einkar furðuleg tilboð í bílinn með asnalegum hlutum á milli þá vil ég taka það fram að ég skoða bara skipti á BÍLUM ! ! ! ! Og ekki dýrari bílum ![]() Hrifnastur er ég af því að taka BMW eða auðseljanlegan bíl uppí. Skoða jafnvel að taka 2 bíla upp í. En skoða að sjálfsögðu allt ![]() |
Author: | Djofullinn [ Thu 21. Apr 2005 14:02 ] |
Post subject: | |
Jæja við erum búin að finna íbúð og gerum tilboð í hana strax í fyrramálið. Það er reyndar ekkert möst að selja bílinn en það mundi auðvelda okkur lífið til muna ![]() Þessvegna hef ég ákveðið að bjóða bílinn á 2.400.000!!!!! Öll skipti verða áfram skoðuð |
Author: | Valdimar [ Thu 12. May 2005 20:06 ] |
Post subject: | |
ennþá til sölu? |
Author: | Djofullinn [ Thu 12. May 2005 20:28 ] |
Post subject: | |
Valdimar wrote: ennþá til sölu?
Já hann er ennþá til sölu ![]() Hvað ertu með í huga? |
Author: | Jón Ragnar [ Sat 14. May 2005 12:49 ] |
Post subject: | |
þetta er bara svo ótrúlega töff bíll eitthvað og svakalega clean! vildi að ég ætti 2kúlur ![]() það er að segja ef þér langar í túring ![]() |
Author: | Djofullinn [ Sat 14. May 2005 12:56 ] |
Post subject: | |
Jón Ragnar wrote: þetta er bara svo ótrúlega töff bíll eitthvað og svakalega clean!
vildi að ég ætti 2kúlur ![]() það er að segja ef þér langar í túring ![]() Ég þakka ![]() Lánið stendur núna í 1,6 þannig að þú þarft ekki að eiga nema 400 þús ![]() Hver vill ekki Touring p0wahh ![]() |
Author: | Jón Ragnar [ Sat 14. May 2005 13:55 ] |
Post subject: | |
ef ég væri skuldlaus þá væri ég að sækja um lán ![]() 540i 6gang er auðvitað MJÖG ofarlega á things to do/own before i die listanum ![]() |
Author: | Djofullinn [ Sat 14. May 2005 14:15 ] |
Post subject: | |
Jón Ragnar wrote: ef ég væri skuldlaus þá væri ég að sækja um lán
![]() 540i 6gang er auðvitað MJÖG ofarlega á things to do/own before i die listanum ![]() Enda alveg einstaklega skemmtilegt að hafa hann beinskiptan ![]() Það er allavega á framtíðarplaninu hjá mér að eignast þennan eða svona bíl aftur þegar peningamálin eru komin í gott lag eftir þessi íbúðarkaup |
Author: | Djofullinn [ Thu 23. Jun 2005 09:15 ] |
Post subject: | |
Jæja ekkert af þeim tilboðum sem ég hef fengið hafa gengið upp út af ýmsum ástæðum. Bíllinn er því enn falur fyrir 2,4. Lánið er komið niðurfyrir 1,6. Fyrsta afborgunin af íbúðinni er um mánaðarmótin og væri því helvíti gott ef hann myndi seljast fyrir þann tíma ![]() Ps. Það eru komnir á hann BMWKrafts númeraplöturammar þannig að númerið er komið á sinn stað ![]() |
Author: | Djofullinn [ Thu 23. Jun 2005 10:47 ] |
Post subject: | |
Kannski í lagi að minnast á það að búið er að fjarlægja CDV (Clutch Delay Valve) úr bílnum, það var gert í þessum mánuði. Hægt er að lesa um það hérna http://www.zeckhausen.com/cdv.htm Bíllinn er skemmtilegri eftir það, ekki það að hann hafi verið eitthvað leiðinlegur fyrir ![]() Núna er líka komin ný kúpling í hann. |
Author: | Djofullinn [ Tue 28. Jun 2005 21:19 ] |
Post subject: | |
Já bíllinn er víst SELDUR |
Author: | Logi [ Tue 28. Jun 2005 21:23 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með það, held ég... Hlítur að vera mjög sáttur nýji eigandinn ![]() |
Author: | Vargur [ Tue 28. Jun 2005 23:55 ] |
Post subject: | |
Logi wrote: Til hamingju með það, held ég...
Hlítur að vera mjög sáttur nýji eigandinn ![]() Já, hann er nokkuð sáttur ! ![]() ![]() ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |