bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW E30 325i - Hartge - S E L D U R
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=17000
Page 1 of 6

Author:  Stanky [ Thu 24. Aug 2006 00:01 ]
Post subject:  BMW E30 325i - Hartge - S E L D U R

Um er að ræða þennan bíl:

Image
Image
Image
Hérna sést gatið - ekkert ógurlegt.
Image

Brettin voru eitthvað ryðguð og ég gaf Aroni Andrew og Co fyrir Dorifto - flest allir aðrir hlutir eru til fyrir utan mögulega eitthvað smávægilegt. Fram og afturrúða eru báðar til, allir hlutir í vélarrými eru til og svo framvegis.

Taka skal fram að ég er þriðji eigandinn af þessum ágætis bíl.

Árgerðin er 1990 - man ekki í hvaða mánuði.

Vél og vélarsalur & ástand:

Vélin er ekin rúmlega 220.000km.
Ástandið tel ég vera mjög gott - alltaf smurður á réttum tíma í minni eigu auk þess lét ég ventlastilla hann 2x (frá 188.000 km, það var staðan þegar ég fékk hann frá Þýskalandi).

Í bílnum er nýlegur vatnslás & vatnsdæla - öruglega skipt um hann í ca. 210þúsundum.

Nýupptekinn altarnator og notaður startari frá ///M (Óskari). Ástand hans óvitað, en hann virkar í bílnum núna.

Tímareim í 192.000km.

Innrétting & Ástand:
Um er að ræða grátt pluss með sportsætum en ekkert bucket-in-da-back.
Komin er smá rifa í bilstjórasætið og hafa sætin greinilega ekki verið í bílnum frá upphafi miðað við ástand.

Það varð óhapp í bílnum og kom sígarettugat á bekkinn afturí.

Hurðarspjöldin eru mjög heilleg.

Miðjustokkurinn er með þessum klassíska kassettuhaldara og er hann í fínu ástandi - öll kassettuhólf virka og get ég látið Micheal Jackson kassettu fylgja með ;).

Engar græjur eru því miður í bílnum (var búinn að "uppfæra" alla hátalara og spilara og ég seldi þetta allt sitt í hvoru lagi).

Hanskahólfið er ekki fast að neðan og er því leiðinlegt að opna og loka því.

Fallegur límmiði sem sést þegar hanskahólfið er opnað fylgir og stendur á honum: "Þegar ekið er í gegnum hættulegt svæði, skal farþegi bílsins setja höfuð í klof ökumanns". Þessi miði er vitaskuld á þýsku. :)

Undirvagn & ástand:
Komið er stærðarinnar gat á aftasta kút í pústi - hljóðið orðið hávært og leiðinlegt. - henti pústinu.

Bíllinn er með coilovers að hætti Gunna og stebba í GSTuning.

Það er einhver djöfullinn að drifinu eða hjólalegu að aftan og heyrist leiðinlegt hljóð - svona eins og það sé eitthvað að dragast með bílnum.

Demparar eru í la-la ástandi - enda var meiningin hjá mér að uppfæra þá með coilovers seinna meir.

Kemur smá víbríngur í stýri þegar ég bremsa - en það er spurning hvort það sé ekki orginal í E30? :)

Ryð/Boddí og ástand:

Bíllinn er Sterlingsilber Metallic. (Kannski svolítið camouflage)

Bíllinn er með Hartge kitti.

Felgurnar eru seldar.

Annar kastarinn virkar ekki - gæti verið farin pera eða eitthvað annað, hef ekki athugað það.

Á bílnum eru smókuð framljós.

Bílnum fylgir strut-brace að framan.

Það eru komnar nokkrar ryðbólur í bílstjórahurðina og smá ryð í skemmdina sem ég varð fyrir á bílnum (En það er búið að laga beygluna).


Núverandi ástand bílsins:

Ég ætlaði að vera ógeðslega kúl og svalur að gera og græja (einsog allir á kraftinum reyndar :)bílinn fyrir næsta sumar og hef rifið allt innan úr bílnum (NEMA MÆLABORÐIÐ). Hurðarspjöld, sæti, ljós að aftan og allt aftan á bílnum, kitt, stuðarar og "CHROME" listarnir hafa verið fjarlægðir af bílnum. Og húddið líka reyndar. Annars hef ég látið allt þetta "flókna" vera. Ég er búinn að pússa eitthvað og spartla helminginn af bílnum. Það er ryðgat aftan á bílnum þar sem rafgeymirinn er - fyrir færann mann er einfalt að laga það.

Núna kemur eitthvað allir bíða eftir og það er ástæða sölu:

Ég fór ALLT of geyst í þetta project og á litla peninga og get ekki haldið aðstöðu minni lengur. Ég er hinsvegar að reyna koma bílnum fyrir einhverstaðar þar sem ég þarf ekki að borga enda get ég ekkert unnið í bílnum.

Þarf að losna við hann sem allra allra fyrst.


Verð: Tilboð

Endilega hringiði frekar í mig til þess að fá upplýsingar.

6622231

Þráðurinn um bílinn sjálfann.
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=10325[/img]

Author:  gstuning [ Thu 24. Aug 2006 00:27 ]
Post subject: 

djöfull er þetta flott mynd

Author:  Stanky [ Thu 24. Aug 2006 00:36 ]
Post subject: 

ja,
buinn að láta ventlastillann 2x síðan ég fékk hann (þá ekinn 188 þús)

Author:  ///MR HUNG [ Thu 24. Aug 2006 01:37 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
djöfull er þetta flott mynd
Af flottum bíl :wink:

Author:  BrynjarÖgm [ Thu 24. Aug 2006 09:54 ]
Post subject: 

bara fallegur bíll :D

Author:  siggir [ Thu 24. Aug 2006 10:49 ]
Post subject: 

Þetta er bara sá allra fallegasti E30 á landinu. Og ekkert við það að bæta.

Author:  arnibjorn [ Thu 24. Aug 2006 10:50 ]
Post subject: 

siggir wrote:
Þetta er bara sá allra fallegasti E30 á landinu. Og ekkert við það að bæta.

Sammála því!

Allavega með þeim flottari 8)

Author:  JOGA [ Thu 24. Aug 2006 12:44 ]
Post subject: 

Rosalega flottur þessi.

Er hann með Hartge knastásum, pústi, fjöðrun, ECU etc. ??

Author:  arnibjorn [ Thu 24. Aug 2006 12:51 ]
Post subject: 

Mig langar að fá að vita verðhugmynd.

Author:  Stanky [ Thu 24. Aug 2006 13:42 ]
Post subject: 

JOGA wrote:
Rosalega flottur þessi.

Er hann með Hartge knastásum, pústi, fjöðrun, ECU etc. ??


nei bara lúkkið

Author:  Dortzi [ Fri 25. Aug 2006 16:50 ]
Post subject: 

Verð í pm takk :D

Author:  doddi1 [ Sat 26. Aug 2006 14:07 ]
Post subject: 

komdu með verðhugmynd

Author:  Stanky [ Tue 30. Oct 2007 22:57 ]
Post subject: 

Taka 2. :(

Author:  XVIII [ Wed 31. Oct 2007 01:10 ]
Post subject: 

Er semsagt ekkert inní bílnum? :hmm:

Author:  Djofullinn [ Wed 31. Oct 2007 10:34 ]
Post subject: 

XVIII wrote:
Er semsagt ekkert inní bílnum? :hmm:
Hann er bara RACE ready. Skella bara körfustólum í hann og fara út að leika 8)

Page 1 of 6 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/