bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 06. May 2025 06:14

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 63 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5  Next
Author Message
PostPosted: Thu 03. Mar 2011 21:50 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Til sölu BMW 540i Beinskiptur (var 530 og er skráður þannig)

Image

Litur: Orientblau
Leður: SILBERGRAU LEDER (0394)
Framleiddur: 1994, Árgerð 1995. Fyrsta skráning 30.09.1994
Verksmiðjunúmer: WBAHE11020GE17720

Ekinn 182þkm
Skoðaður '11
4.0 V8 286hö

Búnaður:

Spólvörn (kom í síðustu E34 bílunum, svipað kerfi og E39/E38). Virkar þrælvel í snjó
Leðurklætt airbag sportstýri (að mínu mati flottasta airbag stýrið í E32/E34)
Rafmagn í rúðum
Viðarklæðning
Sólgardína í afturglugga
ABS
BMW Gsm sími (vantar símtólið sjálft)
Fjarstýrðar samlæsingar úr lykli (Original og virkar)
Glær Hella stefnuljós að aftan
Glær stefnuljós að framan
Þokuljós að framan


Bíllinn var keyptur inn sem forstjórabíll á sínum tíma og var notaður sem slíkur til 1999 þegar umboðið keypti hann aftur. Katrín Fjeldsted átti hann síðan til 2002 og þá fór hann aftur til umboðsins. Þaðan fór hann til Arnórs Hafstað í 2 ár áður en hann kom í 3ja sinn til umboðsins. 2004 keypti Steinieini bílinn og frá því hann átti bílinn og ég eignast hann eru 2 eigendur búnir að eiga hann. Bíllinn var ekki í umferð frá 10.2008 þangað til 05.2010. Þannig að eigendasagan er nokkuð góð. Enda ber bíllinn það með sér, hann er svo til óryðgaður og vel með farinn.

Bíllinn lenti í tjóni hjá síðasta eiganda að framan og keypti ég bílinn klesstan á sínum tíma. Ég lét skera úr öðrum bíl hægra framhornið og það var soðið á og gengið frá því af Nonna Bras. Það sést ekki á bílnum að hann hafi lent í tjóni og engin tjón skráð á hann. Bíllinn var svo heilsprautaður sumarið 2010, fyrir utan toppinn og hliðarplöstin og er lakkið því eins og nýtt.

Ég setti í bílinn 4L mótor úr TM-K heitnum, sem klesstist fyrir norðan. Það fór ný kúpling í bílinn þegar það var gert og nýr vatnskassi er líka í honum. Í heildina er þetta mjög góður og solid bíll. Ég er búinn að vera að dunda mér við að ná honum góðum og það er tvennt sem ég man eftir að sé að bílnum:

1. Það kemur hikst í bílinn í c.a. 2 sek. stundum eftir gangsetningu. Eftir að þetta hefur gerst einu sinni gerist þetta ekki aftur á meðan bíllinn er í gangi. Ef bíllinn er í hægagangi þegar þetta gerist, þá drepur hann á sér. Ef hann er í keyrslu, þá er eins og maður hafi stigið af gjöfinni og gefið svo aftur strax inn. Þetta er pirrandi, ekki hægt að neita því. Ég er búinn að vera að vinna í þessu með hjálp Bjarka í Eðalbílum, en ekki ennþá fundið út úr hvað þetta er.

2. Það er rifið út úr hurðarstoppara bílstjóramegin. Ég er alltaf á leiðinni að gera við þetta, hver veit nema það verði búið bráðum!

Verðið er fast 650.000.- með Rondell 17". Þetta er fast verð og væri hærra ef ég væri búinn að finna út úr þessu böggi með hikstið.

Felgurnar eru ný-söluskveraðar. Undirvinnan mætti vera betri, en þær eru nýsprautaðar og líta mjög vel út. Afturdekkin eru slitin, framdekkin allt í lagi en ósamstæð.

Ég fullyrði að þetta er einn albesti E34 á landinu boddílega séð og gefur E34 M5 lítið sem ekkert eftir í hröðun með þessu drifi.

Upplýsingar í S: 699-2268 eða smu@islandia.is


Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 03. Mar 2011 22:00 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 13. Nov 2004 22:51
Posts: 973
bara flottur þessi :thup:

_________________
Stuffffff



2xE30, 3xE32, 1xE34, 14xE36, 3xE39, 3xE46, - Seldir


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 03. Mar 2011 22:02 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Fri 22. Aug 2003 22:27
Posts: 663
Nú mætti minn seljast

_________________
Geir Harrysson
F11 535d x-drive
Seldir BMW
E39 525D
E38 740i
E39 540i
E34 M5
E34 540i
E34 530i
E36 320i coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 03. Mar 2011 22:32 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Geir-H wrote:
Nú mætti minn seljast


Nei minn :lol:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 04. Mar 2011 00:11 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sun 03. Oct 2004 19:08
Posts: 645
Location: Akureyri
Úúú...I miss it...bara gaman að sjá hann viðgerðann.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 04. Mar 2011 01:04 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Mon 16. Mar 2009 15:44
Posts: 227
skoðaru einhver skipti?

_________________
ford


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 04. Mar 2011 01:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
svennipez wrote:
skoðaru einhver skipti?


Hellno! Færð ekki að skemma þennan líka! :thdown:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 04. Mar 2011 09:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Þetta er mjög svalur bíll og væri geðveikur á réttum felgum
:drool:

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 04. Mar 2011 09:28 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
svennipez wrote:
skoðaru einhver skipti?


Ég skoða skipti á BMW með slatta í milligjöf. Ekki öðrum tegundum og ekki með smotterí á milli.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 04. Mar 2011 14:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Posts: 1905
Location: RVK
:loveit: :loveit:

_________________
E39 530D ///M Sport


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 05. Mar 2011 00:37 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Steinieini wrote:
:loveit: :loveit:


Á ekki að setja sitt nafn aftur á eigendaferilinn :P

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 05. Mar 2011 16:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Posts: 2837
Location: Reykjavík
hvaða drifhlutfall ertu með í þessum Sæmi?

_________________
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 05. Mar 2011 17:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
sh4rk wrote:
hvaða drifhlutfall ertu með í þessum Sæmi?


OEM 3.07 á bsk.. 530 M60 3.15 á ssk.. og 3.23 á ÖLLUM touring,, er ekki klár á hvort að þetta sé 210 mm eða 188mm

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 05. Mar 2011 18:44 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
sh4rk wrote:
hvaða drifhlutfall ertu með í þessum Sæmi?


Original 530i.

P.S. gat nú verið að þú færir að spyrja um drifhlutföll :lol:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 05. Mar 2011 23:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Posts: 2837
Location: Reykjavík
Sæmi ef það er 3:15 hlutfall í þessum þá er hægt að segja að þessi hafi 3,6 M5 í hröðun

_________________
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 63 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 83 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group