AMuS Heft 26 – BMW Alpina B5

Hér skal spjalla um BMW.

AMuS Heft 26 – BMW Alpina B5

Postby Nökkvi » Tue 11. Jan 2005 19:57

Hvað eiga smáfyrirtæki eins og Alpina eiginleg að gera þegar maður getur keypt fullt af hestöflum beint frá verksmiðjunni? Alpina B5 hefur hins vegar svar við hinum nýja BMW M5 og notar til þess allt aðra tækni. Undir húddinu er ekki hásnúnings V10 vél heldur hin þekkta V8 með 4,4 lítra rúmtaki. Þetta er sama vélin og er í B7. Vinstra megin framan til í húddinu er leyndarmálið á bak við kraftinn, túrbína.

Vélin er 500 hö við aðeins 5.500 sn/min. Hún nær hámarkstogi, 700 Nm, við 4.000 sn og heldur hámarkinu þangað til yfir 5.000 sn. Í bílnum er 6 þrepa sjálfskipting og hægt er að skipta með tökkum í stýrinu. Krafturinn í bílnum er þvílíkur að spólvörnin hefur nóg að gera. Hröðunin sem framleiðandinn gefur upp, 4,7 sek., virðist vera nokkuð hógvær tala því B7, sem er 250 kg þyngri, er 4,8 sek í hundraðið. Aðalatriðið er að mesta hröðun næst með því að stíga eingöngu á bensínið. Hér þarf ekki að stilla neitt sérstaklega eins og í M5.

Hver hámarkshraðinn er, er ekki enn vitað. B7 náði 311 km/klst. og B5 ætti að vera sneggri. Innanhúss hjá Alpina eru menn samt að ræða um að setja hámark 300 km/klst. Vélin gengur mjög þýðlega í lausagangi, 600 sn/min. Fyrst þegar gefið er í botn lætur vélin vel heyra í sér án þess að vera nokkurntíman hávær. Hröðunin er algerlega línuleg og ekki er að finna að það sé túrbína í bílnum. Sjálfskiptingin er mjög góð og aðeins við fáar aðstæður er viturlegt að skipta sjálfur um gíra. Fjöðrunin er stillt á frekar þægilegan máta og gleypir misfellur í götunni vel.

Bíllinn verður frumsýndur á bílasýningunni í Genf í mars. Hann verður einnig boðinn sem Touring og verðið verður sambærilegt við M5.

Helstu tæknilegar upplýsingar:
Vélarstærð (cm3):...4.398
Afl (kW (hö)):.........368 (500)
Tog (Nm (við sn.)):.700 (4.250)
Þyngd (kg):.............1.720
0-100 km/klst. (s)....4,7
Grunnverð (EUR):...88.000

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image
User avatar
Nökkvi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Location: Ísland

Postby Arnar » Tue 11. Jan 2005 20:13

Ussussuss þetta er rosalegur bíll 2,3 tonn og 4,7 sek í hundrað :shock:
En ætli hann verði ódýrari en nýji M5inn ?
Arnar
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Wed 19. May 2004 12:59

Postby Nökkvi » Tue 11. Jan 2005 21:22

Arnar wrote:Ussussuss þetta er rosalegur bíll 2,3 tonn og 4,7 sek í hundrað :shock:
En ætli hann verði ódýrari en nýji M5inn ?

Sorry Arnar, þetta var vitlaust hjá mér, bíllin er ekki nema 1.720 kg. 2,3 tonn er heildarþyngd.
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image
User avatar
Nökkvi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Location: Ísland

Postby Arnar » Tue 11. Jan 2005 21:49

Já.. enda gat þetta líka bara ekki staðist :wink:
Arnar
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Wed 19. May 2004 12:59

Postby gstuning » Tue 11. Jan 2005 22:28

Það er bara komið alvöru POWER RACE þegar allir eru farnir að blása og snúa eins og brjálæðingar
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Svezel » Tue 11. Jan 2005 23:51

Ég vil fá að vita 0-200 á þessu dýri :!:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Eggert » Wed 12. Jan 2005 00:10

Svezel wrote:Ég vil fá að vita 0-200 á þessu dýri :!:


Og 0-300 ;)
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 11 guests