Vantar tæknilega hjálp!!

Hér skal spjalla um BMW.

Vantar tæknilega hjálp!!

Postby GHR » Thu 19. Sep 2002 17:03

Þannig hljómar vandamálið mitt

Ég er með BMW 750i '93 sem er 12 cyl eins og allir vita (vona ég). Þegar vélin er sett í gang þá gengur hún fínt bæði á lausagangi og á snúningi en bíllinn er grútmáttlaus. Vélin virðist bara ganga á einum helmingi því ef hásspennukeflið er tekið af(í gangi) á hægri helmingi þá breytist ekkert en ef hinn háspennuþráðurinn er tekinn af (og hinn hafður á) þá steindrepst á mótorinum. Einnig sogar hún svakalega lítið á hægri helmingi miðað við hinn???
Ég er búinn að rífa kveikjuna í sundur (kveikjulokið var reyndar sótað og ógeðslegt) og ég veit að vélin fær fína neista (reyndi á það með sársaukafulla þættinum) og ég er búinn að þjöppumæla vélina og útkoman varð fín. Ég er reyndar ekki búinn að fara með hann í tölvu hjá B&L. Mér var sagt af "reyndum manni" að líklegasta ástæðan væri að kveikjan væri ekki að flýta sér, eða að eitthvað væri bilað í eldsneytiskerfinu eða eitthverjir sensorar væri ónýtir.????
Þætti vænt um allar tillögur hjá ykkur :)
Last edited by GHR on Fri 20. Sep 2002 15:51, edited 1 time in total.
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby Stefan325i » Thu 19. Sep 2002 18:26

þú getur farið með bílin í tækniþjónustu bifreiða, þeir hafa reynst mér vel og það er minni biðtími og ódyrara að fara til þeirra og b&l mæla með þeim.


Kanski gætum við (klúbburin) farið framm á afslát hjá þeim ég meina hópurinn er altaf að stækka og bilanir eru altaf til staðar ???
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Postby Bjarki » Thu 19. Sep 2002 18:41

prófaðu að pósta fyrspurn á:
www.thee32register.co.uk spjallborðið
þetta er ótrúlega gott forum fyrir e32 bílana
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby GHR » Fri 20. Sep 2002 16:17

Það væri algjör snilld að tala við þá um afslátt. Þá mundu allavega flestir hér fara til þeirra en ekki B&L og allir græða (nema kannski B&L)
Ég þekki svo lítið til þeirra, eru þeir alveg jafnklárir og strákarnir í B&L?
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby saemi » Fri 20. Sep 2002 19:24

Thehh, nei nei, við fáum náttúrulega þá í B&L til að gefa okkur líka afslátt! Svo bara sjáum við til hverjir bjóða betur ;)
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Gunni » Fri 20. Sep 2002 19:52

ég var eitthvað búinn að promotera fyrir því að meðlimir fengju afslátt allavega á varahlutaverkstæði B&L en stjórinn þar var í fríi. á eftir að tjékka betur á þessu öllu saman.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Bjarki » Sat 21. Sep 2002 11:39

Það væri frábært að fá afslátt í varahlutadeild BMW.
Það er svo erfitt að pressa út afslátt hjá þeim að það hálfa væri nóg.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests