Ástæða fyrir afli M bílana ???

Hér skal spjalla um BMW.

Ástæða fyrir afli M bílana ???

Postby GHR » Fri 07. Feb 2003 14:49

Mig hefur alltaf langað að vita hvernig vélarnar í M bílunum eru modifiaðar og haft samt svona langan endingartíma. (snilldar uppbygging)
Hvað er nákvæmlega gert við þær sem er ekki gert við aðrar vélar???
Þetta er það sem mig langar að vita ásamt öðru : Eru M vélarnar twincam, fourcam eða svaðalega heita knasta, hvar byrjar powerbandið í þeim (er það ekki frekar hátt), eru þeir með sér throttle body pr. cyl, hvar er redline á þeim og bara ástæðan fyrir þessari svaðalegu virkni?
Ég er svona aðallega að spá í M5 bílunum frekar en M3
Er ekki eitthver hérna með það á hreinu (nokkurn veginn)
Líka hvað stendur M fyrir???
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby bebecar » Fri 07. Feb 2003 15:17

M fyrir motorsport.

Ég er nú ekki mest vélarlega þenkjandi gaurinn hérna en ég skal reyna. Það leiðréttir mig þá bara einvher mér vitrari!

Ég veit ekki alveg hvernig þeir fara að því að láta þær endast svona þessar vélar en ég myndi giska á að það séu bara vandaðri efni í þessu vélum og lítið til sparað. Ég veit um tvo M5 bíla sem eru komnir yfir 600 þúsund km án þess að "opna" vélina (semsagt með viðhaldi en ekki búið að taka upp vélina). Þær eru settar saman í höndunum ef svo mætti segja og hver vél er pínulítið mismunandi eins og þær hafi sinn karakter. Það var að mig minnir 6 manna grúppa sem setur saman hvern bíl og yfirvélvirkinn er svo skrifaður fyrir honum.

Ég get líka sagt ykkur að í haust seldist síðasta S38 vélin hjá BMW og hún kostaði 4.5 milljónir (var seld til USA ef ég man rétt) ef ég man rétt. Þannig að eitthvað er nú varið í þetta.

Það eru sér throttle bodies fyrir hvern strokk jú og á mínum bíl þá byrjar hann fyrst almennilega að vinna við 4200 snúninga (milli 4200 og 4500) og snýst svo alveg í 7200 snúninga. Viðbragðið þegar hann kemur á þennan snúning er líkast breytingunni á afli á bíl eins og Honda Civic þegar Vteccið kemur inn (en þó er ekkert vtec auðvitað).
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby saemi » Fri 07. Feb 2003 15:37

M vélarnar eru allar með 4 ventla á hvern strokk. (sem þýðir tveir knastásar þ.a.l. twincam). Knastásarnir eru ekkert svaðalega heitir, (þá myndi bíllinn ekki ganga almennilega hægagang).

Innsogs- og útblástursaðferðirnar eru líka mun þróaðri (flækjur og sér soggreinar).

Þetta ásamt góðri hönnun er megin ástæða aflaukningarinnar.

Ef þú tekur t.d. 3.5L M30 vél á móti 3.6L S38 (þetta er sama vél að grunni til). önnur er í 535i og hin í M5.

Munurinn er 218hö á móti 286hö. Þarna erum við að tala um breytingu upp á 68hö. Hvað eigum við að segja. 25hö við 2 auka ventla á hvern strokk, 20hö við flækjurnar og svo bara rest við innsogsgreinarnar, prógrammeringu í tölvukubbnum ásamt ýmsu öðru.

svo er vélin náttúrulega orðin kraftmeiri seinna, en þá erum við að tala um MAP sensor ásamt þróaðra tölvukerfi. Og svo að síðustu náttúrulega er vélin komin upp í 3.8L.

En þetta er enginn galdur. Málið er bara að þetta kostar allt pening. Þetta er hægt með öllum vélum, að ná svona afli út úr þeim. Vélin slitnar ekkert meira við þetta (að ráði). En þetta kostar bara pening og þessvegna er ekki verið að gera þetta við alla Daihatsu og Japanoyta.


Það er hægt að skrifa tonn um þetta í viðbót. Nenni ekki meirraaaa :)
Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby bebecar » Fri 07. Feb 2003 15:46

Sæmi... smá hijack hérna. Skrifaðir þú ekki eitthvað um E28 525e sem væri tilvalin í vélar öppgreid. Mannstu hvað hann átti að kosta?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

525e

Postby Dori-I » Fri 07. Feb 2003 17:26

Hann vill fá 50 kall fyrir 525una.... 8659388
Dori-I
Kassabílstjóri
 
Posts: 170
Joined: Mon 06. Jan 2003 02:57
Location: Vestmannaeyjar

Postby bebecar » Sat 08. Feb 2003 00:59

OK, takk.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby DXERON » Sun 09. Feb 2003 11:44

525 e vélin er tilvalinn fyrir m20 vélarupgrade er það ekki,? búa til 2.7 úr 2.3....

er hann ekki búinn að selja þennan bíl?
Dabbi Xeron
BMW 323i '82 E21 (Seldur)
Jeep Cherokee Laredo 38" Blár(Heitir Blámi)
Colt '91
User avatar
DXERON
Kassabílstjóri
 
Posts: 164
Joined: Tue 03. Sep 2002 22:19
Location: Mosó

Postby gstuning » Sun 09. Feb 2003 20:27

Það er meira mál að gera 2,3 í 2,7 því að borið er ekki það sama, þú þyrftir að láta bora vélinna í 325i spec(ef þú myndir ætla að gera það þá myndi ég bara láta bora fyrir 3,0 specið og þá yrði 2,3 vélinn þín með 2,7 cranki um 2,8-2,9) Það þarf spes breytt E36 M3 crank til að meika M20B30

M-POWER :

Loftboxinn: Eru hönnuð til að veita sem bestu snerpu og þannig mesta kappaksturs fíling,

Innsogspjöld(throttle bodies) : Jafn mörg og stimplarnir :> til að ná algjörlega max loftflæði samkvæmt þeim væntingum sem eru settar fyrir véladeildina, stærri myndu ná meiri max power og meira togi en bara ofar í snúningum,

Flækjur : Jafnlangar :> hannaðar til að ná max power í X snúning

Hedd : Twin cam, 4 ventlar :> til að ná betri nýtingu í því að trufla loftið þegar það hefur mixast með bensíni, þannig næst betri brunni,
Stærri ventla op, heldur en aðrar twin cam BMW vélar, port matched báðum megin, ásar ekkert svo grófir, til að halda feitari power kúrvu (sem er það sem að BMW áhugamenn hafa mestan áhuga á)

Blokk :> Allt þrykkt og balencerað, samt ekkert of mikið bara meir en venjulega. Betra olíuflæði og pönnur oft með "bafle plates" til að halda olíuunni frá að skvettast til hliðar í hörðum beygjum og þannig þurka olíudæluna,

Vél :> Hærri þjappa heldur en venjulega , oftast á eldri þarf hærri oktane bensín, en samt er hægt að sleppa með verra bensín vegna misjafnra gæða í sumum löndum, þess vegna er hægt að flýta kveikjunni vel til að auka power,

Og M vélarnar hafa alltaf það nýjasta frá BMW/BMW Motorsport
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests