bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 08. Jun 2025 21:18

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 35 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

Söluþræðir á kraftinum, bull í gangi og ósætti
Poll ended at Sat 10. Apr 2010 00:06
Aðferð A, læsa söluþráðum og einungis höfundur og stjórnendur geta breytt/sett inn innlegg. 7%  7%  [ 10 ]
Aðferð B, leyfa áfram öll innlegg en taka harðar á bulli og óæskilegum athugasemdum. 93%  93%  [ 125 ]
Total votes : 135
Author Message
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 00:06 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Ég er ekki alveg að skilja hvert allt þetta er að fara hérna á kraftinum síðustu viku varðandi söluþræði.

Að mínu mati skiptist fólk hér í 2 flokka:

Hópur A sem vill að söluþráðurinn sem það býr til sé þráðurinn þeirra og einungis athugasemdir sem þeim er að skapi rati þangað inn.

Hópur B sem vill að fólki leyfist að setja inn á hvað sem er hér á kraftinum (söluþræðir meðtaldir), athugasemdir og innlegg sem því finnst viðeigandi (frátalið bull og niðrandi orð, ærumeiðingar o.þ.h., það er bannað á kraftinum).

Ég hef alltaf aðhyllst skoðun B. Reyndar er ég þannig að ég er seinþreyttur til reiði og tek hlutum með jafnaðargeði, en geri mér grein fyrir því að það eru ekki allir þannig. Þegar ég set eitthvað inn hér og annar notandi hraunar yfir mig þá tek ég því mátulega hátíðlega. Ég vil meina að með aðferð A, þá verði spjallið ópersónulegra. Þá verður til sölu dálkurinn eins og sótthreinsað sjúkrahús. Engar skoðanir og einu bömpin verða ttt þess sem setti inn auglýsinguna. Ómögulegt að sjá í fljótu bragði hvaðan bíllinn kemur, tjón/tjónlaus, fyrrverandi eigendur o.s.frvs. ef metnaður og vitneskja seljenda er ekki til þess að setja það inn. Ég hugsa að margir seljendur geri sér ekki grein fyrir hvað það er mikið atriði hér að sjá innlegg sumra notenda varðandi bíla sem þeir eru að selja, með tilliti til sölu bílanna. Þá er ég að tala um hvetjandi og jákvætt fyrir söluna.

Að sama skapi skil ég vel að það hafi neikvæð áhrif fyrir marga sem eru að selja sítrónur (bíla sem eru kötturinn í sekknum ,,,,(slæmir bílar)). En hvert erum við komnir, ef það er slæmt þegar verið er að benda á (eða leiða getgátur) að því að eitthvað sé slæmt við ákveðinn bíl? Viljum við að hér inni sé látið kyrrt liggja þegar verið er að selja bíl þar sem maðkur er í mysunni? Er þá ekki betra að komið sé með aðfinnslu/athugasemd/spurningu og seljandi svari fyrir sig?

Ég hef sagt það áður og segi enn. Ef sá sem er að auglýsa getur ekki réttlætt það verð sem hann er að auglýsa bíl á, eða staðið við það með einhverju móti þá er eitthvað að. Fólk getur verið að auglýsa bíl og verðlagt hann hátt. Bíl sem er einungis til sölu fyrir ákveðið verð. Það er bara í góðu lagi. Ég hef margoft gert slíkt hið sama. Verið með bíl til sölu jafnvel í ár eða svo. Ég hef fengið í þræði mína athugasemdir um háa verðlagningu og hitt og þetta. En ég hef aldrei, ALDREI talið það vera að skemma fyrir söluþræðinum þó svo að inn í þráðinn minn sé sett eitthvað varðandi verðlagningu. Ef að hefur verið ýjað að því að ég sé að selja of dýrt, þá hef ég rökstutt verðlagningu mína. Þeir sem eru með toppstykkið í lagi (og yfirleitt þeir sem eru með peningana) þeir sjá alveg í gegnum bullið og vitleysuna í söluþráðunum. Þeir taka svar seljandans gott og gilt þegar það er rökrétt og rökstutt og ekki rengt með rökstuðningi frá öðrum.

Nú nýverið hafa komið upp dæmi þar sem höfundar auglýsinga hér á kraftinum verða alveg brjálaðir yfir því sem er skrifað á söluþræði þeirra. Er það ekki eigingirni að ætlast til þess að í söluþræðina hér sé bannað að setja inn allt sem þeim sé á móti skapi, að þeir "eigi sína auglýsingu". Það er bara ekki þannig að hægt sé að banna allt sem ekki er auglýsanda að skapi. Þetta er ekki Fréttablaðið, þetta er opinn vettvangur spjallverja allra.

Krafturinn er fljótandi og síbreytilegur vettvangur. Ásýnd has er fljót að breytast og nýtt fólk kemur inn og setur mark sitt á hann. Stundum aðeins tímabundið. En hann er með fastan kjarna, fólk sem er ekki að hlaupa til og skrifa inn í alla þræði, en kemur frekar með innlegg við og við sem skilja meira eftir í huga annarra en innsláttur sumra með margfalt fleiri innlegg. Fólk sem er ekki endilega að setja inn það sem þeim finnst um allt og alla en hefur samt ákveðnar skoðanir á málunum. Ég hef þá trú að í þessu málefni hafi aðeins komið fram vilji hins háværa minnihluta.

Ég veit og skil að fólk er þreytt á þessu bulli sem hefur ratað hér inn undanfarið, en hvað á að gera. Á að stoppa þann sem setur inn kurteisislega ábendingu um verðlagningu, finnst of hátt verðlagt. Á að stoppa hann af bara af því að hann er að "kommenta á verðlagningu" í trássi við óskir höfundar? Eða á að stoppa eigandann sem bregst við með offorsi og hótunum á móti?

Á ekki bara að stoppa þann fyrsta sem hættir að vera málefnalegur. Þann sem fer að vera með skítkast og dónalegheit? Líkt og verið hefur hér á kraftinum? Höfum við sem stjórnendur ekki bara linast og sofnað á verðinum, eða nýjir notendur gengið á lagið og komist upp með allt of mikið??

Hvað finnst ykkur spjallverjum, hvað á að gera? Endilega greiðið atkvæði og setjið inn póst um hvað ykkur finnst.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 00:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Posts: 2822
Location: 112 RVK, E30 city
Ég styð B hiklaust.

_________________
BMW E30 325i Coupe
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 00:23 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 22. Feb 2003 15:22
Posts: 980
Location: Reykjavík
Ég vil sjá val........seljandi ræður hvort auglýsingin sé opinn eða læst.....

Mér finnst vanta meira eftirlit með þráðum og menn fái áminningar fyrir endalaust pósthór og tuð.....

Eins og staðan er í dag þá leyfast hótanir um líkamsmeiðingar og einelti en ekki of hátt verð á BMW og lélegar auglýsingar.....

Bæði stjórnendur og spjallverjar þurfa á góðri naflaskoðun að halda svo kraftur rati á rétta braut aftur....

_________________
Sæmundur Eric.
Lancia Delta HF Integrale Evo I - Saab 900aero - Mazda 323 GLX.

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 01:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Mér finnst alveg út í hött að loka söluþráðum, líka að hafa val um það. Ef að það verður val þá koma inn góðar auglýsingar með góðum bílum sem ekkert er hægt að setja út á og þær verða opnar, síðan þeir sem ætla að yfirverðsetja eða fela galla munu einfaldlega læsa sínum þráðum.

Þeir sem að geta ekki sætt sig við að fólk commenti á verð eða gæði þess sem er verið að selja eiga bara að sleppa því að auglýsa hér. Eins og Sæmi segjir, ef seljandi getur ekki rökstutt sitt verð en aðrir geta rökstutt hvers vegna það er ósanngjarnt þá er nokkuð augljóst að varan er of hátt verðlögð.

Fyrir utan að hún á eflaust ekki eftir að seljast fyrir meira en hún er virði.

Sjálfur hef ég auglýst nokkra hluti hérna og þar með talið bíla og ég hef aldrei lent í neinu veseni. Ég get oftast rökstutt hvers vegna ég áset það verð sem ég vil fá fyrir hlutinn ef að einhver fer að efast verðlagninguna, en hingað til hef ég ekki lent í því. Ég er greinilega bara svona sanngjarn á verðlagningunni.

Það verða alltaf einhverjir sem yfirverðsetja hlutuna sína og fara síðan í algjöra vörn þegar það er sett út á það, þetta er bara eitthvað sem þarf að fylgjast betur með og taka harðar á að mínu mati.

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 05:27 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 29. Mar 2009 03:01
Posts: 321
Danni wrote:
Mér finnst alveg út í hött að loka söluþráðum, líka að hafa val um það. Ef að það verður val þá koma inn góðar auglýsingar með góðum bílum sem ekkert er hægt að setja út á og þær verða opnar, síðan þeir sem ætla að yfirverðsetja eða fela galla munu einfaldlega læsa sínum þráðum.



ég er á alveg nákvæmlega sama máli.
það á að mínu mati alls ekki að bjóða upp á það að loka þráðum, eða hafa þá læsta orginal.

ef að það er boðið upp á það ða höfundur geti læst söluþræði þá koma það alltaf til með að vera söluþræðirnir þar sem að bílar eru furðulega háttverðlagðir.

síðan einmitt er þessi þráður kannski búinn að vera í 2 daga, 2 vikur, 2 mániði og síðan 4 mánuði...
þá er einhver að fletta í gegnum þessa þræði og sér bíl sem að honum langar í (sem að "allir" vita að er of hátt verðsettur)
hann veit ekkert um það, þar sem að hann þekkir kannski ekki bílamarkaðin og veit það að BMW er dýr bílategund, og þykir þar að leiðandi allt í lagi að borga jafnvel nokkur hundruð þúsundum til milljón of hátt fyrir einhvern bíl.

ef að innlegg í viðkoman di þráð væru leyfð, þá hefðu einhvern tíman komið comment á það að verðið væri kannski full hátt, og þá mundi viðkomandi passa sig á því.

einu ástæður fyrir læsingu þráða í söludálki er til þess að losna við óþarfa spam og "ttt", en það er ekkert mál að komast hjá því með góðum reglum og actívum adminum (reyndar þýðir það líka að pósta fjölda hjá sumum spjallmeðlimum mundi hríðlækka

og já... áður en menn far að gagnrýna mig fyrir að hafa bara verið hérna í stuttan tíma og pósta ekkert, þá er ég búin að skoða spjallið í ca 4 - 5 ár, og tel mig hafa þokkalega vitneskju um svona spj0ll almennt, þar sem að ég hef verið admin á þeim nokkrum, og heildin hegðar sér alltaf eins.

og já, menn sem að eru að gagnrýna L2c
eini munirinn á L2C og kraftinum er í raun og veru fjöldi virkra notenda, þetta spjall er í raun og veru bara lítil útgáfa af L2C

p.s. já, ég veit að það eiga eftir að vera rosalega margir ósammála mér með síðasta commentið, en ég held að ég sé ekki sá eini sem að sé þetta.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 06:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Ég kaus B.

Finnst það alveg afleit hugmynd að loka þessu, en hinsvegar væri alveg sniðugt að hafa smá ritstjórnun á þessu. Jafnvel "ráða" undirstjórnendur sem gætu séð um þetta með ykkur og hjálpað við að halda þessu heilbrigðu. (Málefnaleg) Umræða sem fer fram á söluþráðum er skemmtileg og oft nauðsynleg og óþarfi að drepa það. Komment eins og "Flottur bíll", "geggjuð innrétting" o.s.frv finnst mér alveg eiga rétt á sér, frekar ættum við að fókusa á bullið sem tengist bílnum / sölunni ekki neitt.

Svo held ég að þið sem takið svona illa í skot verðið að anda róelga. Ég skil vel að þetta er ekki skemmtilegt, en netið er harður heimur en þó er algjör óþarfi að herða sig of mikið fyrir hann. :)

_________________
Image


Last edited by SteiniDJ on Sat 03. Apr 2010 16:38, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 08:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
MR.BOOM wrote:
Ég vil sjá val........seljandi ræður hvort auglýsingin sé opinn eða læst.....

Mér finnst vanta meira eftirlit með þráðum og menn fái áminningar fyrir endalaust pósthór og tuð.....

Eins og staðan er í dag þá leyfast hótanir um líkamsmeiðingar og einelti en ekki of hátt verð á BMW og lélegar auglýsingar.....

Bæði stjórnendur og spjallverjar þurfa á góðri naflaskoðun að halda svo kraftur rati á rétta braut aftur....


Þetta er óvitlaus tilgáta :thup:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 08:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Hef fylgst með þessari þróun í söluþráðum af áhuga þó ég hafi ekki lagt orð í belg hingað til.
Held að eins og bent hefur verið á þá verði söluþræðirnir helst til sótthreinsaðir án athugasemda frá meðlimum.

Það er klárlega þannig að vel framsettar auka upplýsingar frá meðlimum geta komið að miklu gagni og ég vill meina að það sé mjög oft í hag seljanda líka.

Svo þarf fólk bara að læra að anda með nefinu og taka saklausum athugasemdum með ró.

Kaus B og er mjög hlynntur því að það sé tekið aðeins harðara á mesta bullinu. Alveg óþarfi að því sé leyft að viðgangast ef það er að draga spjallið niður í svaðið.

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 09:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
er einhver séns að við náum að koma okkur upp verðbili fyrir mismunandi tegundir (þetta er misjafnt eftir ástandi auðvitað) svo menn viti nokkuð að hverju þeir ganga?

t.d.
e36 325i coupe á bilinu 400-750
e39 540 á bilinu 800-1200 þúsund eftir ástandi
z3 ómetanlegur
e30 .....

og svo framvegis

Við getum örugglega blaðrað okkur inná svona verðbil með allar þessar verðlöggur á sveimi.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 09:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Zed III wrote:
er einhver séns að við náum að koma okkur upp verðbili fyrir mismunandi tegundir (þetta er misjafnt eftir ástandi auðvitað) svo menn viti nokkuð að hverju þeir ganga?

t.d.
e36 325i coupe á bilinu 400-750
e39 540 á bilinu 800-1200 þúsund eftir ástandi
z3 ómetanlegur
e30 .....

og svo framvegis

Við getum örugglega blaðrað okkur inná svona verðbil með allar þessar verðlöggur á sveimi.



haha ég hló :lol:

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 11:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Einarsss wrote:
Zed III wrote:
er einhver séns að við náum að koma okkur upp verðbili fyrir mismunandi tegundir (þetta er misjafnt eftir ástandi auðvitað) svo menn viti nokkuð að hverju þeir ganga?

t.d.
e36 325i coupe á bilinu 400-750
e39 540 á bilinu 800-1200 þúsund eftir ástandi
z3 ómetanlegur
e30 .....

og svo framvegis

Við getum örugglega blaðrað okkur inná svona verðbil með allar þessar verðlöggur á sveimi.



haha ég hló :lol:


Held að hann meini að hann hafi ekkert virði.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 11:23 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Wed 07. Jun 2006 18:28
Posts: 1348
bimmer wrote:
Einarsss wrote:
Zed III wrote:
er einhver séns að við náum að koma okkur upp verðbili fyrir mismunandi tegundir (þetta er misjafnt eftir ástandi auðvitað) svo menn viti nokkuð að hverju þeir ganga?

t.d.
e36 325i coupe á bilinu 400-750
e39 540 á bilinu 800-1200 þúsund eftir ástandi
z3 ómetanlegur
e30 .....

og svo framvegis

Við getum örugglega blaðrað okkur inná svona verðbil með allar þessar verðlöggur á sveimi.



haha ég hló :lol:


Held að hann meini að hann hafi ekkert virði.




hei :squint:

:burn: :slap:

_________________
það er betra að spyrja og vera heimskur í eina mínútu en að þegja og vera heimskur alla ævi

óstaðsettur í bíl


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 18:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
ég styð A hiklaust
Ég þoli ekki þessi skítacomment sem koma stundum, stundum eru auglýstir bílar sem hafa verið auglýstir nýlega, það er búið að handa nokkrum hundruðþúsundköllum í hann og svo kemur þetta komment "Bíddu var þessi ekki auglýstur á xxx verði um daginn"

þúst hvað kemur það fólki við hvað er sett á bíl ef að það sé of hátt bara ýta á back og halda kjafti.

Róa sig á skítköstunum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 19:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Posts: 1834
Location: Rkv
Dóri- wrote:
ég styð A hiklaust
Ég þoli ekki þessi skítacomment sem koma stundum, stundum eru auglýstir bílar sem hafa verið auglýstir nýlega, það er búið að handa nokkrum hundruðþúsundköllum í hann og svo kemur þetta komment "Bíddu var þessi ekki auglýstur á xxx verði um daginn"

þúst hvað kemur það fólki við hvað er sett á bíl ef að það sé of hátt bara ýta á back og halda kjafti.

Róa sig á skítköstunum.


Þá er hægt að koma því inn í dæmið að stjórnendur skammi viðkomandi leiðindakommentara...það þarf að "aga" fólk hérna þannig að svona komment eigi sér ekki stað...það hefur bara ekki verið gert og þessvegna eru leiðindakomment í söluþráðum...

Mér finnst sniðugt að koma reputation fítus á þetta spjall ...notendur gefa hvor öðrum jákvæða eða neikvæða rep-points fyrir ráð og slíkt. Þá færi fólk að haga sér betur því hver vill vera með slæmt rep sem allir sjá?

Þetta er gott spjall imo, það vantar bara aðeins meiri aga og stjórn á það því það hefur stækkað og þá hefur ekki verið hugsað nóg um að breyta og viðhalda reglum í samræmi við það.

_________________
E39M5
A35AMG


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 03. Apr 2010 19:54 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Dóri- wrote:
ég styð A hiklaust
Ég þoli ekki þessi skítacomment sem koma stundum, stundum eru auglýstir bílar sem hafa verið auglýstir nýlega, það er búið að handa nokkrum hundruðþúsundköllum í hann og svo kemur þetta komment "Bíddu var þessi ekki auglýstur á xxx verði um daginn"

þúst hvað kemur það fólki við hvað er sett á bíl ef að það sé of hátt bara ýta á back og halda kjafti.

Róa sig á skítköstunum.


Það er ekki sjálfkrafa "skítakomment", ef einhver spyr um hærri verðlagningu á bíl sem var áður auglýstur á lægra verði. Það er ósköp eðlileg spurning. Það er þá mjög einfalt mál fyrir seljanda að tilgreina ástæðu hærri verðlagningar með að benda á hvað hann er búinn að eyða í bílinn.


BirkirB wrote:

Þá er hægt að koma því inn í dæmið að stjórnendur skammi viðkomandi leiðindakommentara...það þarf að "aga" fólk hérna þannig að svona komment eigi sér ekki stað...það hefur bara ekki verið gert og þessvegna eru leiðindakomment í söluþráðum...

Mér finnst sniðugt að koma reputation fítus á þetta spjall ...notendur gefa hvor öðrum jákvæða eða neikvæða rep-points fyrir ráð og slíkt. Þá færi fólk að haga sér betur því hver vill vera með slæmt rep sem allir sjá?

Þetta er gott spjall imo, það vantar bara aðeins meiri aga og stjórn á það því það hefur stækkað og þá hefur ekki verið hugsað nóg um að breyta og viðhalda reglum í samræmi við það.


Það er alveg rétt, að spjallið hefur stækkað mikið og það þarf að taka betur og fyrr á málum hér.

Ég er ekki viss um að það þýði að vera að "aga" fólk, skammi osfrvs. Þetta er flest fullorðið fólk hér inni (þó svo allir hagi sér ekki þannig) og ég er nokkuð viss um slíkir aðilar myndu taka það óstinnt upp ef maður færi að reyna að ala þá upp. En það má einfaldlega stroka út eða eyða kommentum (eða hluta úr þeim) sem ekki eiga heima hér á spjallinu. Ég held að það sé besta leiðin. Að fólk lendi bara í því að innleggum þeirra sé einfaldlega breytt eða eytt á þann hátt að þau séu ekki að skemma fyrir á spjallinu.

Reputation dæmið er hið besta mál held ég. Fyrsta skrefið hefur verið stigið með að setja feedback á þá sem eru að selja hluti. Þetta væri fín viðbót við það.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 35 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 21 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group