bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 05. Jun 2025 19:45

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 28 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Eyðslutölur í evrópu
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 14:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Ég er núna búinn að keyra nokkur þúsund kílómetra á BMW-inum mínum hér í frakklandi. Ég verð að segja að ég er ekkert smá sáttur við eyðsluna, alveg magnað eiginlega. Þegar ég sótti bílinn keyrði ég 1200km frá Rotterdam og til Grenoble og bíllinn eyddi rétt undir 8 á hundraði og ég var að halda 140km/klst. "Innanbæjar" þ.e. þegar ég keyri í skólann og heim (sem eru 20 km aðra leið) þá er bíllinn að eyða að meðaltali 10 á hundraði. Ég verð bara að segja húrra fyrir 323 vélinni, alveg eðal. Eyðir litlu og er fínn kraftur. :clap:

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 14:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Minn er steady með 12-13 lítra innanbæjar og það um VETUR!

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 15:00 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það væri gaman að sjá Polo gera betur en þetta - mikill misskilngur hjá fólki oft að smábílar eyði engu!

Til hamingju með að vera kominn með bílinn!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 15:21 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Smábílar eyða nátturulega minna svona innanbæjar... en þegar komið er út á þjóðvegina þá eru bimmarnir á heimavelli.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 16:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Það væri gaman að sjá Polo gera betur en þetta - mikill misskilngur hjá fólki oft að smábílar eyði engu!

Til hamingju með að vera kominn með bílinn!


Takk fyrir það. Þetta er nefninlega málið. Með 60hp polo, þ.e. 1/3 af kraftinum væri ég ekki að græða neitt í eyðslu í langkeyrslu og ekki nema í mesta lagi 2ltr/100 í innanbæjarakstri.

Eina sem ég hef áhyggjur af er sumarið. Bíllinn er ekki með loftkælingu, þarf eiginlega að gera eitthvað í því. Hef skoðað það ansi mikið og þvílíkt sem þetta kostar.

Halli er að fylgjast með varahlutum fyrir mig til að setja loftkælingu í bílinn þannig að ef einhver þekkir einhvern sem er að rífa E36 með loftkælingu þá er ég að leita að varahlutum.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 16:23 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég er með lausn, er ekki hægt að fá mótorhjólafatnað með kælingu til að plögga í 12V :lol:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 16:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Ég er með lausn, er ekki hægt að fá mótorhjólafatnað með kælingu til að plögga í 12V :lol:


lol, jú það og kaupa fullt af 12V ísskápum í bílinn :D

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 17:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Gaman að heyra að bíllinn er ennþá jafn góður og áður og að þú njótir bílsins þarna úti. :D

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 17:16 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Hvernig væri nú að pósta smá um Frakkland og BMW (og almennt bíla) menninguna þar, er mikið af alvöru bílum osfrv... Komdu endilega með smá "pistil" :-)

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 18:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
iar wrote:
Hvernig væri nú að pósta smá um Frakkland og BMW (og almennt bíla) menninguna þar, er mikið af alvöru bílum osfrv... Komdu endilega með smá "pistil" :-)


Með ánægju, kemur póstur á næstunni, bílamenningin hér er mögnuð :shock:

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 19:26 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Posts: 989
Location: Seoul, South-Korea
...haven't been paying attention, en hvað ertu annars að bralla í Frakklandi??


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Jan 2004 19:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
jonthor wrote:
iar wrote:
Hvernig væri nú að pósta smá um Frakkland og BMW (og almennt bíla) menninguna þar, er mikið af alvöru bílum osfrv... Komdu endilega með smá "pistil" :-)


Með ánægju, kemur póstur á næstunni, bílamenningin hér er mögnuð :shock:


Ég bíð spenntur. :clap:

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 11:38 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
Það þarf ekki kjarneðlisfræðing til að sjá að því stærri og kraftmeiri bílar því minni er eyðslan þegar hraðinn meiri.

Renault Clioinn minn var best að eyða þetta 7-7,5 l innanbæjar og verst kannski 8,5 l á 100 km. En utanbæjar var eyðslan um 5-6 l á 100 km. Renault og franskir bílar almennt finnst mér eyða frekar mikið miðað við stærð, kraft og eyðslu samkeppnisaðila.

Einnig hef ég verið á VW Polo 2 dyra 1.0, VW Golf mk4 1.6 og VW Fabia 4 dyra 1.4. Það er satt hjá Bebecar, ef einhver hélt að smábílar eyddu engu, þá er það hér með opinberað að það er misskilningur. Þessi Polo eyddi t.a.m. 3-4 l á 100 km á milli RVK til Akureyrar.

Smá hugleiðing: Kraftlaus reykingarmaður í engu formi tekur virkilega á þegar hann fer upp stiga 6 hæðir en maður í toppformi finnur varla fyrir því. Það nákvæmlega sama á við um bíla. Smábílarnir eru kraftlausir og þurfa að taka á ef þeir ætla fram úr, fara upp brekkur og ná miklum hraða. Stóru kraftmiklu bílarnir finna ekki eins mikið fyrir "áreynslunni", það tekur þá minni tíma og reynir minna á hjartað/vélina. En ef maður keyrir smábílana eins og til þeirra er ætlast (sem er bara lágmarksakstur) þá er eyðslan svo mun mun minni en Bimmarnir geta látið sig dreyma um, alveg sama hvort það sé innanbæjar eða utanbæjar.

Það er afskaplega spaugilegt að lesa á þessu spjalli að verið sé að bera saman BMW 323 e36 og VW Polo í sambandi við bensíneyðslu. Það er eins og að bera saman Formúla 1 bíl við BMW 323.

Þótt um sé að ræða "mikinn hraða" á hraðbrautum í Frakklandi þá skiptir það litlu máli. VW bílarnir eru auðvitað gerðir í Þýskalandi og ráða við miklu hærri hraða en tíðkast hérlendis. Það sama á við um Renault og franska bíla sem eru líka til þess gerðir að ráða við hraðbrautir í Frakklandi. Ef haldinn er stöðugur 140 km hraði (hraðinn á hraðbrautum er ALLTAF stöðugur sama hversu kraftmikill bíllinn er), þá er það alls ekkert stórkostleg bensíneyðsluaukning fyrir smábíla.


Last edited by Jói on Fri 16. Jan 2004 11:44, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 11:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55
Posts: 5729
berið frekar saman 750 á 110-120 til ak og svo mustang eða einhvern amerískan 5 lítra :)

_________________
Haffi W. Schnurrenberger.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 14:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Leikmaður wrote:
...haven't been paying attention, en hvað ertu annars að bralla í Frakklandi??


Ég er að taka master í Orkuverkfræði. Verkefnið mitt snýst um að kanna möguleika á að framleiða vetni við hátt hitastig (800°C). Frakkar hafa verið að skoða leiðir til þess að nýta kælivökvann úr frönskum kjarnorkuverum til þess að framleiða vetni. Markmið verkefnisins míns verður að athuga hvort hægt er að gera slíkt hið sama á háhitasvæðum á Íslandi. Ég vinn verkefnið hjá ríkisreknu rannsóknarbatteríi sem lauslega þýtt heitir "National nuclear energy accosiation"

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 28 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group