Jarðvélar hafa óskað eftir því að falla frá verksamningi sínum varðandi framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar. Vegagerð ríkisins mun taka við verkinu.
Í tilkyningu frá Vilhjálmi Vilhjálmssyni verkefnisstjóra Jarðvéla segir að líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum að undanförnu hefur fyrirtækið Jarðvélar ehf verið í miklum fjárhagserfiðleikum.
"Í ljósi þess að kaupleigufyrirtæki innkölluðu til sín stóran hluta af tækjum félagsins mun félagið fara fram á það við Vegagerð ríksins að þeir taki við framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar þar sem félaginu hefur verið gert ókleift að klára framkvæmdina. Er þetta gert í fullu samráði við Vegagerð ríkisins." segir í tilkynnungunni.
Unnið verður að því næstu mánuði að fara yfir stöðu félagsins og ákvarða framtíð þess.
http://visir.is/article/20071222/FRETTIR01/71222003
Ég segi skítt með þessa Reykjanesbraut, hún verður hvort eð er kláruð með góðu eða illu. Það er pet projectið sem skiptir öllu og ég held að það megi kveðja það.


