bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Nýja 5 línan kynnt hjá B&L næstu helgi. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=2332 |
Page 1 of 3 |
Author: | Raggi M5 [ Mon 18. Aug 2003 08:41 ] |
Post subject: | Nýja 5 línan kynnt hjá B&L næstu helgi. |
Var að rekast á þetta í fréttablaðinu.... "Bílinn er nýtískulegur í útliti, sportlegur og línurnar mjúkar. Að auki er nýji bíllinn mun stærri og rúmbetri en forverinn. Fótarými eykst til muna og farangursrýmið hefur aukist um 60 lítra, þannig að skottið tekur nú fjórar fullbúnar golftöskur. Stafrænn framrúðuskjár einsog þekkist í flugvélum, er meðal nýjunga. Á skjánum birtist aksturshraði, bensínstaða eða leiðbeiningar úr leiðsögukerfi bílsins, þannig að ökumanni finnst sem hann sjái upplýsingarnar á veginum fyrir framann sig í skýrum þrívíðum myndum. Önnur nýjung eru Xenon frammljós sem laga sig að aksturstefnu bifreiðarinnar og auka þar með öryggi. Bíllinn fæst með fjórum vélarstærðum, 3 útfærslur á bensínbílnum, 520 sem er 170 hö, 531 sem er 231hö, og 545 sem er 333hö. Dísel vélin er svo gríðalega skemmtileg fyrir þá sem hafa áhuga á slíku. Hún er 218 hö með tog uppá 500 Newtonmetra, hröðun 0-100 er 7,1 sek. Hlakkar manni sko til þegar þeir fara leyfa manni að reynsluaka. Væri nú ekkert á móti því að testa 545 bílinn--333hö!!! ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 18. Aug 2003 08:44 ] |
Post subject: | |
Ég fíla þessa talnarunu - 545i ![]() |
Author: | Raggi M5 [ Mon 18. Aug 2003 08:50 ] |
Post subject: | |
Já- En hvað er annars málið með töluna 531????? Er þetta ekki bara 530? |
Author: | bebecar [ Mon 18. Aug 2003 08:50 ] |
Post subject: | |
Jú, ég gerði nú bara ráð fyrir því að þetta væru mistök. Hlýtur bara að vera. |
Author: | bjahja [ Mon 18. Aug 2003 12:14 ] |
Post subject: | |
En pælið í dísel bílnum, 7,1 í hundraðið. Magnaður andskoti |
Author: | Moni [ Mon 18. Aug 2003 20:11 ] |
Post subject: | |
Já þessi bíll mun örugglega slá í gegn! Og eins og RaggiM5 sagði, þá væri ég líka alveg til í að fá að prófa 545i, bara í smá sunnudagsbíltúr... ...á 200km/h hehe ![]() |
Author: | Moni [ Mon 18. Aug 2003 22:11 ] |
Post subject: | Re: Nýja 5 línan kynnt hjá B&L næstu helgi. |
Raggi M5 wrote: Stafrænn framrúðuskjár einsog þekkist í flugvélum, er meðal nýjunga. Á skjánum birtist aksturshraði, bensínstaða eða leiðbeiningar úr leiðsögukerfi bílsins, þannig að ökumanni finnst sem hann sjái upplýsingarnar á veginum fyrir framann sig í skýrum þrívíðum myndum Er skjárinn í framrúðunni?? Eins og í herþotum eða eitthvað... |
Author: | iar [ Mon 18. Aug 2003 22:27 ] |
Post subject: | Re: Nýja 5 línan kynnt hjá B&L næstu helgi. |
Moni wrote: Raggi M5 wrote: Stafrænn framrúðuskjár einsog þekkist í flugvélum, er meðal nýjunga. Á skjánum birtist aksturshraði, bensínstaða eða leiðbeiningar úr leiðsögukerfi bílsins, þannig að ökumanni finnst sem hann sjái upplýsingarnar á veginum fyrir framann sig í skýrum þrívíðum myndum Er skjárinn í framrúðunni?? Eins og í herþotum eða eitthvað... Það er ekki skjár í framrúðunni heldur er mynd er varpað á framrúðuna. Ekki alveg beint í sjónlínu en aðeins fyrir neðan hana, mjög smart. |
Author: | Jss [ Thu 21. Aug 2003 19:32 ] |
Post subject: | |
Þetta kerfi kallast HUD (Heads Up Display) og virkar eins og talað er um hér að ofan, það er "skjár" ofan á mælaborðinu sem varpar myndinni upp á rúðuna þannig að ökumaður á auðveldara með að lesa af "mælaborðinu" meðan á akstri stendur og truflar því minna aksturseinbeitingu. |
Author: | Djofullinn [ Thu 21. Aug 2003 20:05 ] |
Post subject: | |
Ertu búinn að fá bílinn þinn Jss?? Hvernig er hann? |
Author: | Jss [ Fri 22. Aug 2003 00:14 ] |
Post subject: | |
Ég fæ bílinn á morgun föstudaginn 22. ágúst, reyni að pósta einhverju um hann þegar/ef það gefst tími milli þess sem maður er úti að keyra, að borða, sofa eða gera eitthvað annað. ![]() |
Author: | Logi [ Fri 22. Aug 2003 17:09 ] |
Post subject: | |
Þú hlítur að geta gefið þér tíma til að grobba þig af nýja bílnum maður ![]() |
Author: | Jss [ Sat 23. Aug 2003 11:56 ] |
Post subject: | |
Það er komin smá lýsing á bílnum á Bílar meðlima annars í stuttu máli þá er bíllinn frábær í alla staði og geðveikt flottur og alles en ég er að sjálfsögðu "aðeins" hlutdrægur. |
Author: | benzboy [ Sat 23. Aug 2003 15:07 ] |
Post subject: | |
Ég fór áðan í B&L og skoðaði nýju fimmuna life og testaði 530 bíl - bara gaman og virkilega fallegur að innan, klassískur og þægilegur í akstri. |
Author: | Svezel [ Sun 24. Aug 2003 19:41 ] |
Post subject: | |
Ég leit við í dag til að skoða nýju fimmuna og ég verð að segja að hún veldur mér töluverðum vonbrigðum. Bjóst við meira af reference bíl í sínum flokki og þykir mér fimman hafa tapað sæti sínu fyrir E-Benzinum. Það sem mér fannst að bílnum eru náttúrlega framljósin (en þau mættu kannski laga með augabrúnum), innréttingin fannst mér frekar plastic eitthvað og óvönduð ásamt því sem mér fannt lofthæðin full lág og verðið full hátt. Það var sama í hvaða stöðu sætið var ég var alltaf með höfuðið í loftinu, nema náttúlega að sitja eins og einhver hvítnegri. Ég fékk reyndar ekki að prófa sem er náttúrlega það sem vegur mest og var sagt að það væri 6vikna biðlisti til þess ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |