by bjahja » Thu 26. Jan 2006 10:57
Eins og nokkrir hafa sagt þá hefur þetta verið rætt nokkrum sinnum áður, “leit” hérna að ofan ætti að geta skilað nákvæmari svörum.
323i M52b25, ál blokk, þrengra manifold, OBD II rafkerfi og einfalt púst (320 spec) 2.93 drifhlutföll
325 M50b25, stál blokk, opnara manifold OBD I refkerfi og tvöfalt púst 3,15 drifhlutföll
Eftir því sem erlend spjallborð segja þá eiga bílarnir báðir að vera í kringum 185 hestöfl, en það er líklega bara ekki rétt.
Ég mældist bara með CAI 186 hestöfl en hinsvegar mældist Logi (525i) 200 hestöfl og Moog (325i) 197hö ef ég man rétt. Logi með algjörlega standard vél en Moog bara með K&N CAI (aftur bara eftir minni). Þeir eru semsagt báðir með m50b25.
Hinsvegar hafa bílarnir samkvæmt bílablöðum mælst jafn fljótir í 100, hvort það er satt eða ekki veit ég bara því miður ekki. Ég hef aldrei spyrnt við 325i E36 sem er skandall en það er svosem 0 að marka spyrnur.
Það er tiltölulega einfalt/ódýrt að koma 323i allavegana mjög nálægt 200 hö. Það eitt að setja m50 manifold á að koma 323i nálægt því, ég á m50 manifold ( 2 reyndar) síðan ætla ég líka að setja OBDI rafkerfi í bílinn og supersprint púst og midsection fyrir m52b28 (ætti að smellpassa)
Ég er í augnablikinu með 325i púst undir bílnum en ég er ekki ánægður með útkomuna úr því, það þurfti að mixa það undir og svona shit sem ég fíla ekki.
Ég trúi því að með M50 manifoldi, obdI rafkerfi, pústi og kubb/tölvu/reprogram þá eigi litli 323i að vera kominn nokuð yfir 200hö.
En ég er líklega farinn að rausa eithvað sem fáir nenna að lesa þannig að þetta dugar í bili. En endilega spurja ef það er eithvað annað sem þú villt vita og maður reynir að svara eftir bestu getu.