Mér finnst ekkert sniðugt að vera að skrifa grein í Morgunblaðinu þess efnis að BMW eigendur séu lagðir í einelti. Ef maður er stöðvaður á BMW, og er ekkert að brjóta lögin, hvað ætti maður þá að hafa áhyggjur af? Er ólöglegt að keyra BMW? Hef ekki orðið var við það, en það er ólöglegt að keyra bíla sem eru ólöglegir. Það vill svo til að BMW eru oftar ólöglegir heldur en einhver Mazda eða Toyota. Hvað í ósköpunum er verið að kvarta yfir því að Lögreglan stoppi mann vegna þess að maður sé að brjóta lögin? Þá borgar maður sektina og reynir að gera þetta ekki aftur.



