by gstuning » Fri 03. Dec 2010 11:15
Fyrst rafmagn
Svo vetni með rafgreiningu, þar sem að bíl vélar eru LANGT frá því að vera hannaðar til tops.
Svo beint vatn (H2 O , gefur 2 ventis einingar á móti einni súrefnis, þannig að straight vatn brotið upp gæfi 2kg vetni og 1 kg súrefni , eða AFR 2:1 , blanda þessu með meira lofti til að finna stoich bruna fyrir vetni) , eins og er er engin skikkanleg leið til að brjóta upp vatn nógu hratt , rafgreining kostar hreinlega of mikla orku svo það sé hægt að gera on the fly, það þyrfti að vera efna samblanda sem myndi valda því(sem kostar þá ekki beina orku framleiðslu af hendi notandans til að framkvæma skilnaðinn). Á endanum seturru vatn á tankinn og það er brotið upp rétt áður enn það fer í vélina, Hérna er ekki verið að búa til eilífðar vél því það þarf eitthvað auka til að framkvæma skilnaðinn (eins og er þá er ákveðin ál og magnesíum blanda sem ef vatn er látið renna yfir skilur í sundur vetnið og súrefnið, þannig að það eru alskyns möguleikar í boði)
Þetta er final lausnin. Gæti vel verið að eitthvað efni sem finnst ekki á jörðinni gæti verið þurfi í þetta, þannig að hvenær þetta verður að raunveruleika er annað mál. Vetnis vélar eru mjög viðkvæmar því vetni brennur alveg mjög hratt og því er detonation mjög mikið vandamál
Menn líta alltaf á nýtni á því að breyta eldsneyti í hreyfingu, eins og er þá er bensín í kringum 30-35% eftir atvikum, það er alveg ÖMURLEG nýtni ef maður lítur á rafmagns mótora, ef vatn breyting myndi skila sér í 1-5% hreyfi orku eftir allt tap þá væri það meira enn nóg til að byrja með.Það myndi enginn segja nei við rafall í skúrinn sem gengi á vatni (og einhverju auka).
Ef bensín bílar gætu komist í 60% þá myndi það annað hvort dobla powerið eða helminga eyðsluna fyrir sama afl.
Alveg frá því að við byrjuðum að nota bensín þá höfum við verið að eyða því of hratt miðað við orkuna sem við fáum í staðinn. Það er HELLINGUR af orku í líter af bensíni, enn eins og við notum það erum við bara að fá 0.35L virði,
Rannsóknir benda til þess að CNG (Compressed Natural Gas) og Bensín notað samann breyti varma nýtni vélarinna töluvert , alveg vel yfir 45%. Þannig að það er hellingur eftir að þróa og hanna í bílvélum, Eftir 10-15ár verða ekki díesel, bensín, cng eða lpg vélar heldur bara vél sem gengur á hverju sem er án þess að þurfa tjúna hana fyrir eitt né neitt því hún getur stillt sig sjálf og fattað á 4-5 cycle hvaða eldsneyti er verið að nota eða samblanda af mörgum eldnseytum. Og þá getur fólk tekið hvað sem er á bílinn
Bara það eitt að skjóta bensíni inn tvisvar per cycle sýnir bætingu á varma nýtni.
Það er í raun hægt að segja að þróun bílvéla er fyrst núna að fara virkilega af stað.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
