Morgunkorn Glitnis wrote:
Bílaútflutningur gæti skilað þjóðarbúinu umtalsverðum og kærkomnum gjaldeyristekjum á næstu mánuðum. Til stendur að breyta lögum um opinber gjöld af bifreiðum á þann hátt að þau fáist endurgreidd að verulegu eða öllu leyti við útflutning notaðrar bifreiðar. Viðskiptablaðið greinir þannig í dag frá því að frumvarp um slíkar lagabreytingar verði líklega lagt fyrir ríkisstjórnina í dag. Þó að markaður fyrir notaðar bifreiðar hafi laskast erlendis vegna framvindu efnahagsmála þar undanfarið er sá markaður eflaust í betra standi en hérlendur bifreiðamarkaður um þessar mundir.
Á vef Bílgreinasambandsins kemur fram að u.þ.b. 8 ¿ 10.000 notaðir bílar séu nú til sölu hér á landi, og að meðalverð á notuðum bílum sé í námunda við 2,5 milljónir króna. Þótt veruleg óvissa ríki um hve hátt verð muni fást fyrir þessa bíla erlendis og ljóst að aðeins mun hluti þeirra verða sendur úr landi má ætla að talsverðar gjaldeyristekjur myndu fást með þessu móti. Auk þess mun slík sala létta töluvert undir með heimilum sem eiga töluverða fjármuni bundna í bifreiðum á sölu hérlendis. Loks er gengi krónu afar hagstætt fyrir slík viðskipti í dag, sér í lagi með nýlega bíla sem keyptir voru þegar krónan stóð hvað sterkust á fyrri hluta síðasta árs. Má því ætla að efnahagslegur ávinningur af slíkum útflutningi geti verið töluverður. (JBB)
En já, mér finnst það alveg fáránlegt að bjóða uppá að borga þetta til baka. Er ekki fjandans nóg að selja bílinn fyrir €? Það er nóg annað sem hægt væri að eyða peningunum í.