Ég er ekki sammála - því eins og áður sagði þá hafa þessi ágætu þokuljós aldrei nýst mér til að sjá lengra fram fyrir mig, hvorki á núverandi bíl né öðrum bílum sem ég hef átt. En það ber að taka fram að þau hafa í öllum tilfellum verið OEM þokuljós. Ég nota því þau einungis til að aðrir sjái mig betur í þoku og sér í lagi þéttri snjókomu.
Það er ekkert í lagabókstafnum sem segir að maður eigi að slökkva á þokuljósunum þegar maður mætir öðrum bílum, þannig það er þá þín persónulega skoðun.
En er fólk virkilega að blindast af þokuljósum bíla sem þeir mæta? Einu skiptin sem ég hef lent í því þá hefur verið um að ræða jeppa eða aðra bíla með kösturum framan á - ekki eiginlegum þokuljósum. Ekki misskilja það sem svo að ég sé sjálfur keyrandi með þokuljósin kveikt alveg hægri vinstri - nota þau einungis við mjög slæm veðurskilyrði utanbæjar.
|