Djofullinn wrote:
Sammála því að í staðgreiðslu er maður nú ekki að fara að klína mörg hundruð þúsundum á bílana. En menn verða að hafa eitthvað "ásett" verð til að miða við því menn eru endalaust að bjóða bíla uppí á ásettu verði á íslandi. Ekki segir maður við þá menn, "neinei obbosí við skulum bara miða við verð úti á þínum bíl". Menn setja alltaf bíla uppí á ásettu verði sama hvað þeir kosta úti.
Annað. Ef maður kaupir bíla til þess eins að selja hann hér heima og fá út úr því einhvern pening verður maður að gera ráð fyrir ýmsum kostnaði sem bætist við hér heima. Maður þarf að gera ráð fyrir að þurfa að borga af honum, borga tryggingar, borga sölulaun, borga viðgerðir á honum ef eitthvað bilar eftir að maður er búinn að afhenda hann, taka bíla uppí sem þarf að slá af etc. etc. Fyrir utan allan þann tíma sem fer í að leita að réttu bílunum og tímann sem fer í að reyna að selja þá. Þannig að það þýðir lítið að bjóða bílana á innflutningsverði + 100 þús því það er ekki séns að þú seljir hann strax og án þess að taka nokkuð uppí. Maður yrði fljótur að tapa á því.
Að flytja inn bíl fyrir sjálfan sig eða til að selja er tvennt ólíkt.
Ég skil alveg það sem þú ert að fara, er alveg sammála því að ef þú ert íslendingur í dag að flytja bíl inn til að selja hann aftur í gegnum bílasölu þá verður þú að smyrja á þetta til að græða eitthvað.
En það sem mér finnst vera að þessu dæmi er hvernig hugsun hjá fólki er orðin hér á landi. Það er ekki lengra síðan en svona 3-4 ár, þá þurfti fólk að eiga pening fyrir þeim bílum sem það ók um á.
Núna er þetta þannig að það skiptir ekki öllu máli hvað hluturinn kostar, heldur hvað hann kostar á mánuði. Fólk er til í að kaupa bíl á 6 milljónir þó svo að það gæti fengið annan á 4.5 staðgreitt, bara vegna þess að það getur ekki fjármagnað ódýrari bílinn. Hvað segir þetta manni.. hefur þetta fólk þá efni á að kaupa svona dýran bíl?
Það má eiginlega segja að markaðurinn sé farinn að stjórnast af seljendum, ekki kaupendum. Hverskonar þjóðfélag er það sem lætur stjórnast af því? Það skiptir ekki máli hvað ég er til í að borga fyrir bílinn, því næsti maður er til í að borga meira bara því hann nennir ekki að standa í smá veseni og eða hefur ekki efni á að flytja bíl inn sjálfur. Það eru til 200 þúsund aðrir svoleiðis hugsandi svo ég má mín lítils á þessum markaði.
Það er líka svona Húsasmiðju-Bykológík í gangi á Íslandi. Þar sem uppsett verð á 30% afslætti er miklu betra en 10% ódýrara án afslátts annarsstaðar. Betra að setja upp 30% hærra verð á bílana og slá svo af verðinu heldur en að setja bara á þá rétt verð. Já, mér finnst Íslendingar svolítið skrýtnir stundum...
Svo ég svari því bara sjálfur hvernig þetta þjóðfélag er,

þá held ég að við séum svo löt og höfum það svo gott að við nennum ekki lengur að hafa fyrir neinu. Frekar til í að borga bara heldur en að leita uppi besta verðið. Hvaða íslendingur nennir að mótmæla hækkun á mjólk lengur. Isss, hvaða máli skiptir þó hún hækki í 130 eða 150 eða 200. Við myndum ekki segja neitt þó mjólkin kostaði 1000 kall. Skiptir ekki máli, við eigum nóg af pening og drekkum ekki það mikið af mjólk hvort eð er
Svo ég haldi áfram að röfla, þá held ég að mikið til af því fólki sem er að vaxa úr grasi í dag, komi ekki til með að eiga neitt af eignum þegar það eldist. Það er ekki þar með sagt að það sé eitthvað slæmt, svona vill fólk hafa þetta í dag. Neyslan verður meira hjá yngra fólki, það fær meira fyrr, en svo fer það heldur ekki að njóta aukins kaupmáttar á efri árum því greiðslubyrðin verður jafn há alltaf.
Þetta fólk mun bara taka lán, borga af þeim vextina og á endanum þegar það kveður þennan heim, tekur bara annar yfir lánið á húsinu (sem stendur í svipuðu raunvirði hússins á þeim tíma) og bíllinn verður seldur til að borga bílalánið. Innbúið fá jú erfingjarnir en annað verður ekki til skiptanna.
Ég er ekki að segja að þetta sé eitthvað slæmt, sumir vilja hafa þetta svona. En hafið þið velt þessu fyrir ykkur? Mér persónulega finnst þetta komið út í rugl.