Sektir, umferðarpunktakerfið og löggæslumyndavélar
Hvernig snúa einstaklingar sér sem fá tilkynningu um að ökutæki í þeirra eigu hafi verið myndað með löggæslumyndavél vegna brota á umferðarlögum ?
Hvað eru tilkynningar
Þegar umferðarlagabrot eru upplýst með löggæslumyndavélum, annað hvort rauðljósamyndavél eða hraðamyndavél, er skráðum eiganda send tilkynning þess efnis að ökutæki hans hafi verið myndað þegar ökumaður þess annað hvort ók yfir gatnamót á rauðu ljósi eða ók of hratt.
Tilkynningin er send skráðum eiganda ökutækisins eða umráðamanni þess.
Ef miklar líkur eru taldar til þess að ökumaður í umrætt sinn hafi verið skráður eigandi þess, þ.e.a.s. myndin af ökutækinu og ökumanninum sýnir einstakling af sama kyni og á líku reki og skráður ökumaður, þá er tilkynningin send á greiðsluseðli. Það er þó aðeins að því tilskyldu að brotið leiði ekki til sviptingar ökuréttinda eða að viðkomandi hafi verið réttindalaus þegar brotið framið.
Í öllum öðrum tilvikum er tilkynningin send á venjulegu bréfsefni og viðtakandanum bent á að gefa sig fram við lögreglu og greina frá því hver hafi verið ökumaður í umrætt sinn.
Óháð því hvort tilkynningin hafi verið send á greiðsluseðli eða ekki, þá getur viðtakandinn haft samband við það lögreglulið sem sendi tilkynninguna og greint frá því hver var ökumaður í umrætt sinn eða hann getur skrifað nafn hans á tilkynninguna og sent viðkomandi lögregluliði í pósti.
Samkvæmt reglugerð um sektir, nr. 280/1998, skal tilkynna lögreglu hver var ökumaður innan 14 daga frá dagsetningu tilkynningarinnar.
Ef tilkynningin er á greiðsluseðli getur viðtakandinn greitt sektina sem tilgreind er í tilkynningunni og þar með lokið málinu, en það er líka hægt að rita upplýsingar um ökumann á tilkynninguna, hafi hann verið annar en viðtakandinn og senda til lögreglunnar. Þá ber að hafa það sérstaklega í huga, að öll viðurlög vegna brotsins, umferðarpunktar og færsla í ökuferilskrá, fara á nafn þess sem tilgreindur er á tilkynningunni.
Þannig getur foreldri sem hefur lánað barni sínu bifreið í umrætt sinn fengið slíka tilkynningu vegna umferðarlagabrots barnsins og ef foreldrið greiðir sektina fyrir barnið með tilkynningunni, þá færast viðurlögin á foreldrið, ekki barnið, þar með talið umferðarpunktar.
Ef skráður eigandi getur ekki eða vill ekki upplýsa hver var ökumaður, er heimild í umferðarlögum til að sekta hann fyrir það og nemur sektin kr. 20.000,-
Til baka
Breytt: 26. júlí 2002
Tekið af lögreglan.is
fékkstu sekt eða bara boðaður niðrá lögreglustöð ?
[/b]


