gstuning wrote:
Ef þeir myndu nota Carbon í bíla til að létta þá ætti enginn efni á þeim það er málið,
Þetta er allt compromise hjá þessu liði,
Þess vegna reynir BMW að einbeita sér að því að meika góða bíla með en frábærrari vélum,
Mér finnst þeir bara vera að standa sig þokkalega
Það er ekkert annaðhvort carbon eða stál. Mazda setti sér markmið að gera RX-7 3. gen. eins léttan og mögulegt væri án "framandi" efna og tókst ágætlega held ég með ca. 1200kg bíl. Nýja RX-8 tekur tveimur fleiri í sæti og er samt aðeins um 1300kg. Reyndar hjálpar létt vél mikið til.
Audi og Honda hafa unnið frumkvöðulsvinnu með álbíla, en það er náttúrulega dýr tækni. Samt held ég að álsmíðin og þyngd nýja XJ Jaguarsins sé það merkilegasta við bílinn. Hvað er XJ8, um 1650kg?
Það er enginn að biðja um bíla smíðaða úr koltrefjum og það strax, bara að bílaframleiðendur veiti þessum þætti athygli. Það að gera bíl léttan hefur marga kosti í för með sér og ætti að gleðja jafnt þá sem vílja kraftmeiri bíla, liprari bíla og umhverfisvænni bíla.
Það sem flestir virðast samt vera að gera í dag er að nota hástyrktar stál í meira magni, sem er bara hið besta mál, en flestar gerðir virðast þó enn bæta á sig...
_________________
Kalli - Mal3
Bow down to
Daihatsu power!
Daihatsu Charade
TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum
