Skráning Meðlima

Hér skal spjalla um BMW.

Skráning Meðlima

Postby Gunni » Thu 04. Mar 2004 12:45

Meðlimaskráning í BMWKraft.

Jæja nú er komið að því að skrá meðlimi. Við höfum ákveðið að taka upp væg meðlimagjöld, sem eru 2500 kr. fyrir fyrsta árið. Þeir sem gerast meðlimir fá meðlimakort, sem gildir sem afsláttur hjá fyrirtækjum eins og B&L, Tækniþjónustu Bifreiða, Nesdekk og fleiri munu koma von bráðar.

Meðlimir BMWKrafts munu líka njóta þess að styrkja klúbbinn í því að fá ódýrara á alla viðburði á vegum klúbbsins, s.s. bjórkvöld, poolmót ofl.

Meðlimir munu ganga fyrir í sambandi við alla umferð um vefinn og verða ákveðin svæði aðeins opin fyrir gilda meðlimi BMWKrafts.


Meðlima gjaldið er s.s. 2500 kr. fyrir fyrsta árið og fylgja BMWKrafts límiðar með í því gjaldi (einn í afturrúðu eða tveir í hliðarrúðu) og til að komast inní skráningarformið er hægt að smella hér: Skráning í BMWKraft


Munið bara að millifæra skv. leiðbeiningum á skráningarsíðunni strax eftir skráningu.


Frá og með í dag eru gömlu kortin ógild!

Ef að einhver er forvitinn um ástæður þessa ákvörðunar þá er hún einföld. Það að halda svona klúbbi gangandi krefst þess að eitthvað fjármagn sé til staðar. Borga þarf gjöld af lénum og vefsvæðum og einnig auðveldar það að halda skemmtanir og önnur mót meðlimanna. Meðlimir þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að fé þeirra sé glatað þar sem að mikill sparnaður fæst með notkun kortanna. Þar að auki er umframpeningur notaður til þess að greiða niður skemmtanir fyrir meðlimi.

p.s. þeir sem skrá sig fyrir miðja næstu viku geta átt von á mjög skemmtilegum glaðningi.

Þeir sem skrá sig fyrir pool mótið þurfa bara að borga 700 kr. þátttökugjald í stað 1000 kr.

Last edited by Gunni on Tue 26. Apr 2005 23:47, edited 1 time in total.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Halli » Thu 04. Mar 2004 18:07

er þetta orðin skráður klúbbur :?:
Corvette c5
Bmw 330i
Halli
Getawaybílstjóri
 
Posts: 995
Joined: Sat 26. Oct 2002 14:07
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Thu 04. Mar 2004 18:22

Það er í vinnslu eins og er. Það verður ljós vonandi í næstu viku hvernig það fer...
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby jens » Thu 04. Mar 2004 18:33

Er verið að loka spjallinu á þá sem ekki skrá sig, eða verða þeir sem borga félagsgjald í svona VIP aðstöðu innan klubbsins :D :D :D
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Gunni » Thu 04. Mar 2004 19:35

jens wrote:Er verið að loka spjallinu á þá sem ekki skrá sig, eða verða þeir sem borga félagsgjald í svona VIP aðstöðu innan klubbsins :D :D :D


Það er alls ekki verið að loka spjallinu fyrir þá sem gerast ekki meðlimir. Það verður hins vegar þannig að ákveðnir hlutar síðunnar í heild verða aðeins opnir fyrir meðlimi.

Öllum er áfram frjálst að stunda spjallið. Við stjórnendur vonum að allir þeir sem hafa verið virkir hér, en kjósa ekki að gerast meðlimir, haldi áfram að stunda spjallið af kappi!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby rutur325i » Thu 04. Mar 2004 20:58

mér finnst þetta bara sniðugt , núna reynir á það hver er bmw hneta og hver ekki !

ég reyndar stökk svoldið á mig og skráði mig áður en ég las lengra svo ég fer bara í bankann á morgun og geng frá pool mótinu og skráningunni
Renault 19 '95 - bráðabirgða
BMW E-30 325i; IM-870, Farinn
BMW E-30 320i; IR-406, Seldur
rutur325i
Getawaybílstjóri
 
Posts: 589
Joined: Tue 15. Oct 2002 14:44
Location: Grafarvogur

Postby Logi » Thu 04. Mar 2004 21:52

Þetta er flott, núna er þetta orðið alvöru alvöru, svona keppnis....

Búinn að skrá mig og borga :D
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Alli » Mon 08. Mar 2004 22:10

Mjög sniðugt og ekki há upphæð meðað við það sem þú færð í staðin.

Skrái mig um leið og ég fjárfesti í mínum fyrsta bimma..
Alli
Eagle Talon - Tsi
User avatar
Alli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 25
Joined: Mon 13. Oct 2003 00:55

Postby Kristjan » Mon 08. Mar 2004 23:56

Þarf maður að eiga bimma til að vera meðlimur?
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Gunni » Tue 09. Mar 2004 00:01

Kristjan wrote:Þarf maður að eiga bimma til að vera meðlimur?


Það þarftu ekki endilega. BMWKraftur er klúbbur eigenda og áhugamanna um BMW.

5.gr samþykkta félagsins (kemur á netið very soon):

Aðild að félaginu er opin öllum þeim sem hafa áhuga á málefnum félagins og sækja þeir um á heimasíðu félagsins.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby oskard » Tue 09. Mar 2004 01:02

En þess má geta að afslættir hjá fyrirtækjum gilda aðeins fyrir
hluti/vinnu í BMW :)
oskard
 

Postby Gunni » Tue 09. Mar 2004 16:04

Ég vill bara minna á það að skráningin er í fullum gangi.

Þeir sem verða búnir að skrá sig fyrir fimmtudaginn 11. mars eiga svo von á gríðarlega spennandi atburði á fimmtudaginn.

Meira um það í kvöld.
Last edited by Gunni on Wed 10. Mar 2004 09:39, edited 2 times in total.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby hlynurst » Tue 09. Mar 2004 16:06

Jæja... skráði mig í fyrradag held ég. Fæ ég þá kassa af bjór á fimmtudag? :lol:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Aron » Tue 09. Mar 2004 20:40

Ég er orðinn forvitinn, hversu margir eru búnir að skrásig?
Aron
s.894-2066

E39 523i 19" BBS CH
E36 318i 17" BBS RX
User avatar
Aron
Getawaybílstjóri
 
Posts: 832
Joined: Sat 31. May 2003 11:10
Location: rvk

Postby einson » Wed 10. Mar 2004 09:28

Gunni wrote:Ég vill bara minna á það að skráningin er í fullum gangi.

Þeir sem verða búnir að skrá sig fyrir fimmtudaginn 12. mars eiga svo von á gríðarlega spennandi atburði á fimmtudaginn.

Meira um það í kvöld.


Mig langar að benda á að fimmtudagurinn er 11. mars og föstudagurinn 12.
Kemst þótt hægt fari...
einson
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 10
Joined: Thu 11. Sep 2003 10:43
Location: Reykjavík

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests