BMW Welt (Dial-up er no go)

Hér skal spjalla um BMW.

BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby SteiniDJ » Fri 10. Apr 2009 20:11

Sælir.

Þann 11. september í fyrra fórum við til Þýskalands í ekta BMW ferð.

Athugið að myndirnar eru minnkaðar niður í 25% af upprunalegri stærð. Ég á þær allar til, og margar aðrar sem ég setti ekki hingað inn, í mikið hærri upplausn. Ef þið viljið fá þær, endilega spyrjið mig bara. :) Síðan eru þetta ekki mjög góðar myndir, en það verður að hafa það.

Þegar við lentum í Munich fengum við E60 525d Touring og héldum af stað í BMW Welt. Þar tók á móti okkur maður og sýndi okkur verksmiðjuna, þar sem þeir framleiða þristana. Þvímiður mátti ekki taka myndir þarna inni og ég held að það sé ekki nokkur leið að lýsa því sem fór fram þarna. Í stuttu máli, þá sá maður járnrúllur koma inn og fara út sem BMW E90. Þeir gera allt í þessari verksmiðju og ég er nokkuð viss um að mótorarnir séu líka framleiddir þarna. Næstum allt sem fer fram þarna er sjálfvirkt og eina sem mannfólkið þarf að gera er að mata vélarnar. Þá taka við róbottar sem líma þetta saman með nákvæmni sem ekki er hægt að mæla í millimetrum.

Eftir að bílinn er settur saman er hann sprautaður. Hann fer í gegnum langt og flókið ferli, sem inniheldur 7 skref og er það allt 100% sjálfvirkt.

Þannig gengur þetta fyrir sig, þar til komið er að rafmagnskerfinu. Allt þar er handunnið og þræða þeir heilu kílómetrana af leiðslum í einn bíl. En þessu öllu er skipt jafnt og þétt á hópinn og er þörf á mörgum sérfræðingum þarna, svo allt sé tip top. Eftir það er bílinn nánast tilbúinn. Það á bara eftir að setja í hann innréttinguna og sæti. Þegar það er búið fer hver einasti bíll í gegnum ákveðin próf og ef hann stenst þau, fer bílinn á sölu. Allt þetta ferli er ótrúlega flókið og ég hef ekki hæfileikana til að lýsa því. Ég mæli með því að þið farið þangað og sjáið þetta með ykkar eigin augum. Það er örugglega hægt að redda hópferð í BMW factory fyrir kraftinn. 8)

Það var nóg sem við áttum eftir að skoða og fórum við til dæmis í Kehlsteinhaus (Arnarhreiðrið), sem var sumarbústaður sem Hitler fékk gefins í afmælisgjöf. Ótrúlegt að koma þangað, en til að komast þangað þurfti að fara upp þrönganfjallaveg í strætó.

Image

Það var ótrúlega mikil þoka þarna uppi, en útsýnið á víst að vera ótrúlegt. Strætóinn kemst þó ekki alla leið upp að húsinu og þurfti því að stoppa á miðri leið, þar sem gengið var inn í fjallið og þar í lyftu sem fór upp í húsið og tók þá á móti manni marmaraklætt herbergi, sem Mussolini útvegaði.

Image

Og svo húsið sjálft. Ég var svolítið hneykslaður þegar ég frétti að þetta væri veitingastaður í dag. Finnst það svolítið sérstakt að breyta sumarbústaðnum hans Hitlers í skyndibitastað. :lol:. Ég þurfti að eiga mikið við myndina svo það sæist í húsið.

Það kostaði 30 milljón ríkismörk að byggja húsið (150 milljón evrur árið 2007), en Hitler notaði það þó afskaplega lítið og er það líklegast ástæðan fyrir því að það stendur í dag. RAF ætlaði að sprengja þetta í tætlur, en þetta svæði reyndist virkilega erfitt og réðust þeir því frekar á Berghof, sem var á sama fjalli og heimili Hitlers.

Image
Image

Þessi tók á móti manni þegar maður gekk inn í BMW Welt.

Svo var haldið í BMW Museum og á leiðinni þangað sér maður BMW höfuðstöðvarnar:

Image.

Virkilega flott hús. 8)

Safnið er ótrúlega stórt. Það er BMW búð þarna og bar og næstum allir bílar sem BMW hefur framleitt (enginn E39 eða E39 M5 þó, enda verður það seint talinn eitthvað spes bíll)

Image

Flugvélarmótor sem BMW hannaði í kringum WW1 held ég. Eftir stríðið fengu þeir ekki að framleiða flugvélamótora...

Image

... og fóru því í mótorhjóla bisnis. 8)

Image
Image
Image

Svo hékk M6 grind á veggnum sem sýnir hvernig þeir eru samsettir. Mikið af liði þarna, þannig að ég náði ekki góðri mynd.

Image

Sést glitta í einn BMW Art Car, frekar flottur.

Image

Svo héngu þarna öll merki sem BMW hefur sett á bíl. Þetta spannaði heilar þrjár hæðir!

---

Og svo komum við að lúxusbílunum:

Image
Image
Image
Image
Image
Image

--

Image
Image

Ultra aerodynamic hjálmur!

Image

Svona hanna þeir víst bílana sína í dag. Frekar svalt.

Image
Image

---

Roadster gólfið, flestir roadsterar sem BMW hafa framleitt samankomnir þarna. Ljósið þarna var síbreytilegt, þannig myndirnar sem ég náði voru ekki góðar. Þetta eru þær sem 'lifðu af'. Pabbi stóð sig betur í þessu og á fleiri myndir af bílunum þarna, get uploadað þeim ef áhugi er til staðar.

Image

Nokkrir 007 bílar þarna. 8)

Image
Image
Image
Image

--

Svo var það Motorsport herbergið! Tjúllaðir bílarnir þarna. :drool:

Image

Þessi vakti mikla lukku hjá mér, M3 GTR. Vantar bara ökumann og hann er tilbúinn á brautina!

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

--

Módel sem þeir notuðu til að vinna með í vindgöngum.

Image

--

///M Herbergið. Flestir bílarnir þarna eru með minna en 4000 km á mælinum og eru vægast sagt _awesome_.

Image
Image
Image

Pabbi var virkilega hrifinn af þessari sexu. Held að hann hafi reynt að kippa henni með í handfarangur, en BMW vildi ekki leyfa það (kosta víst sitt, svona bílar).

Image
Image
Image

Rauðir E30 eru endalaust flottir. Þessi var engin undantekning.

Image

M3 CSL. Alveg eins og minn! :alien:

Image

Svo héngu þarna nokkrir þristar, fimmur og sexur. Náði þvímiður ekki góðum myndum af þeim (get samt reddað myndum ef það er áhugi á því).

Image

BMW Tröllið, heil þrettán hestöfl!

Image

Image
Image

Stórfurðulegur BMW sem gengur á vetni. Fólki var bannað að snerta þannig að það var virkilega grumpy starfsmaður BMW sem stóð þarna og öskraði á allt sem hreyfðist.

Image
Image

Núna vorum við komnir í gamla BMW safnið, allt hitt var glænýtt. Þetta var lítill turn og maður gekk í gegnum tímabilin og sá flestalla concept bíla sem BMW hefur verið að gæla við. Þetta er BMW Turbo prototype sem var byggður árið 1972, í tilefni þess að Ólympíuleikarnir voru í Munich það árið. Án efa einn sjaldgæfasti BMW sem til er, þar sem aðeins tveir voru framleiddir. BMW fékk útlitið á M1, E31, Z1 og 2008 M1 concept frá þessum bíl. Frekar merkilegur vagn!

Image

BMW X-Coupe. Byggður árið 2001 fyrir bílasýningu í Detroit. Þeir notuðu E53 (X5) grindina og bodyið er allt úr áli. Svo var 3.0L Túrbó-diesel vél notuð í þetta. Mjög svalur bíll, ekta jeppa-coupe. 8)

Image

Ég veit ekki hvað ég á að segja ykkur um þennan. Þetta er Concept bíll sem ég man ekki hvað hét. Þetta er víst nýlegt fyrirbæri (þó útlitið segir annað) og væri gaman að vita meira um hann.

Image

BMW Gina. Held að það viti flestir hérna hvaða bíll þetta er. Það var mikill áhugi á honum, enda vel pakkað í kringum hann. Mér tókst þó að ná tveim skítsæmilegum myndum af þessu 'meistaraverki' (mér tókst líka að snerta hann! *tíhí*).

Image
Image
Image
Image

--

Svo þegar við fórum að skoða í BMW Welt (ekki sama hús og safnið), þá var búið að raða upp nokkrum vélum frá þeim. Maður gat fengið að heyra í þessu og lesa meira um vélarnar. Það var ótrúlega mikið sem hægt var að skoða þarna, m.a. Hydrogen sjöa, tækni sem þeir nota í báta, X-drive simulator, 'eldsneytisbrennslu-simulator', hin og þessi stýri og mikið, mikið meira.

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Þegar ég sé þessar myndir, þá man ég að ég á S65B40 (V8 M3) sem ég á bara eftir að sækja í verksmiðjuna þarna úti. :lol:

Image

F1 deildin fékk auðvitað sitt eigið horn. 8)

Image

Svo voru þeir með alla nýjustu bílana sína þarna í öllum útfærslum. Allt nema M5.
-

Vonandi höfðuð þið gaman af því að skoða þetta. Mæli algjörlega með því að þið gerið ykkur ferð þangað út ef veskið leyfir, aljörlega þess virði!

Kveðja,

Steini.
Last edited by SteiniDJ on Mon 13. Apr 2009 12:33, edited 3 times in total.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby bimmer » Fri 10. Apr 2009 20:20

Flottur pistill.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby Jónas Þór » Fri 10. Apr 2009 20:28

alltaf gaman að lesa svona þræði.
User avatar
Jónas Þór
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 435
Joined: Mon 05. Mar 2007 20:49

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby Tombob » Fri 10. Apr 2009 20:40

Mjög skemmtilegt,

Takk fyrir.

Kv,
Tómas
User avatar
Tombob
Kassabílstjóri
 
Posts: 198
Joined: Fri 01. Jun 2007 14:38

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby arnibjorn » Fri 10. Apr 2009 20:53

Skemmtilegar myndir og skemmtileg lesning.

Takk fyrir að nenna að setja þetta inn :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby Alpina » Fri 10. Apr 2009 21:21

FRÁBÆRT 8) 8) 8)
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby Mazi! » Fri 10. Apr 2009 23:17

Geðveikt gaman að renna í gegnum svona :)


ég segji bara takk fyrir þetta :D
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby SteiniDJ » Fri 10. Apr 2009 23:20

Ekkert mál! :)
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby Saxi » Fri 10. Apr 2009 23:56

Maður verður að þakka fyrir svona.

Sérstaklega gaman að hafa línur með myndunum til útskýringa.

kv
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby ValliB » Sat 11. Apr 2009 03:02

Virkilega skemmtilegt,

takk fyrir að deila þessu
bmw3
User avatar
ValliB
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1070
Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Location: Húsavík

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby UnnarÓ » Sat 11. Apr 2009 03:35

Virkilega gaman að þessu :)
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby HAMAR » Sat 11. Apr 2009 09:28

Frábær þráður,
alltaf gaman að sjá myndir af flottum/öðruvísi/skrítnum BMW bílum 8)

Image

Þessi er alveg eins og bíllinn hans Dodda :lol:

Image
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby Wolf » Sat 11. Apr 2009 13:17

Frábært með kaffinu,,,, :)
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby iar » Sat 11. Apr 2009 14:07

Flott skrif og myndir um greinilega frábæra ferð! :-)
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Re: BMW Welt (Dial-up er no go)

Postby Zed III » Sat 11. Apr 2009 14:16

flottur pistill, takk fyrir.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests