bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 25. May 2025 08:38

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 26 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Fri 26. May 2006 11:02 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Posts: 827
Location: Erlendis
Hi

Jæja, þar sem ég er búinn að gera alla fjöskyldumeðlimi og aðra í kringum mig geðveika ætla ég að gera ykkur smá geðveika líka.

Þannig er að við erum að kaupa nýjann bíl, og varð BMW fyrir valinu að hluta til vegna þess að þeir bjóða besta dílinn fyrir okkur. Taka skal fram að bílinn kemur ekki til með að verða á Íslandi.

Það sem ég vil fá frá ykkur, er endilega ef einhver hefur konkret upplifun af viðkomandi bílum, sem eigandi eða prufukeyrslu osfr., eða bara hvað mönnum finnst almennt flottara.

Um er annarsvegar að ræða 120d M Sport sem yðri tekinn í Japan Red, með flestum aukahlutum, s.s. Xenon, sóllúgu osfr. Hinsvegar er um að ræða e90 30 bíl í þremur útfærslum, 320d M Sport, 320si eða 325i M Sport. Við keyrum ekki mikið og nánast ekkert innanbæjar og hugsum okkur að eiga viðkomandi bíl í svo sem 4-5 ár allavega.

Í þessu dæmi er 120d ódýrastur, fylgt eftir af 320si, 320d og 325i. Það munar í reynd um 4500 euro á 120d og 325i þannig að það er ekki peningamunurinn sem er að bögga okkur.

120 bíllinn yrði nákvæmlega svona:
Image
Image
Image
Image
meðan e90 bílinn sama hvað útgáfa af honum yrði um að ræða yrði meira og minna svona einnig í Japan Red:
Image
Image
Image
Image

100 bílinn yrði líklegast tekinn með gráu leðri en 300 með þessari geggjuðu að mínu mati alcantra/leður innréttingu að ofan.

Málið er við fílum minni bíla betur en stærri per se, og erum bara 2. Hinsvegar er verðmunurinn það lítill að mér finnst soldið blóðugt að fara í 100 bílinn þegar maður fær þónokkuð mikið meiri bíl í e90, en vissulega soldið mikið meira fullorðins bíl, sem við erum mikið á móti.

Sum sé mikið dilemma, endilega nota þenna fína föstudag í að ausa úr skálum visku sinnar og redda málinu handa okkur.

Sólarkveðja

G

_________________
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 11:09 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48
Posts: 827
Án þess samt að hafa prufað hvorugan bílinn tæki ég þristinn án spurningar.

Ég er bara svo ekki að fýla lúkkið á ásnum
Er það kannski bara ég?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 11:24 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Mér þykir E90 bíllinn töluvert flottari og tæki hann hiklaust 320d

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 11:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
E90 for the win!

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 11:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég tæki E90 325, diesell bíllin er eflaust mjög skemmtilegur en ég held að 325 bíllin sé einfaldlega skemmtilegastur, ég er búinn að keyra tvo ása og líkaði mjög vel, finnst þeir hinsvegar svo ótrúlega þröngir að innan að það er hálfgert djók, og líka eiginlega of dýr

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 12:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Ef verðmunurinn er ekki að vefjast fyrir þér þá er þristurinn málið.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 12:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Ég myndi hiklaust taka E90 bílinn, ert einfaldlega að fá mikið meiri bíl. Hef keyrt báða bíla nokkuð, 120d bíllinn er reyndar mjög skemmtilegur en E90 er bara klassa, eða tveimur, ofar.

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 12:31 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Já, verð eiginlega að vera sammála með að 325 sé málið (eða bíða eftir 335ci :P ) Þessi sport/alcantara innrétting í E90 er geggjuð maður
En ásinn finnst mér samt virkilega flottur bíll og öðruvísi.

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 12:48 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Thu 11. Mar 2004 15:51
Posts: 300
Engin spurning, þristurinn yrði fyrir valinu.!!!!

_________________
Kristján


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 12:50 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Tue 17. Jan 2006 22:22
Posts: 93
Location: 105
Berðu saman 120d og 320d, ég skoðaði þessa tvo þegar ég var að kaupa mér BMW. Eitt sem ég tók strax eftir; 120d var mun sprækari enda er hann tæpum 400kgs léttari en 320d. Ég fékk mér 320d einfaldlega fannst mér hann flottari(grand) og síðan fékk Birgitta Haukdal sér 120d!!!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 14:11 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Ég verð að vera sammála um að þristurinn ætti að verða fyrir valinu. Líka eins og þú segir að þið mynduð ekkert vera í innanbæjarakstri. Þá held ég að þristurinn sé skemmtilegri á langkeyrslum því ásinn er held ég með það concept að vera innanbæjarbílll. Hann er ekki skilst mér með varadekk heldur svokölluð "run-flat"dekk sem geta keyrt einhverja kílómetra þó að það sé sprungið sem á að geta reddað manni ef maður er innanbæjar til að komast á næsta dekkjaverkstæði.

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 14:28 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
IngiSig wrote:
Berðu saman 120d og 320d, ég skoðaði þessa tvo þegar ég var að kaupa mér BMW. Eitt sem ég tók strax eftir; 120d var mun sprækari enda er hann tæpum 400kgs léttari en 320d. Ég fékk mér 320d einfaldlega fannst mér hann flottari(grand) og síðan fékk Birgitta Haukdal sér 120d!!!


Djö Gísli - þar fór það :lol:

Ég veit hreinlega ekki, við erum búnir að ræða þetta fram og tilbaka og t.d. þá nú ekki fráleitt að skoða þá bara 325i fyrst að þið keyrið lítið. Held að dísel forsendan sé alltaf miðuð við talsverðan akstur ekki satt?

Svo er ansi lítill munur á milli 325i og 320SI í hestöflum allavega, en alveg haugur af góðum búnaði í SI bílnum, þannig að ég myndi velja hann frekar, auk þess sem hann er ansi spes.

Valið að mínu mati stendur því á milli dísel annarsvegar og 320SI hinsvegar.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 14:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
320si hljómar ansi vel í mínum eyrum (sporting potential?) og ef keyrslan er aðallega utanbæjar þá hlýtur þristurinn að slá ásnum rækilega við. ég var allaveganna ekki að fíla ásinn sem neinn sérstakan utanbæjarbíl á þessum reynsluakstri sem ég tók

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 14:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Schulii wrote:
Ég verð að vera sammála um að þristurinn ætti að verða fyrir valinu. Líka eins og þú segir að þið mynduð ekkert vera í innanbæjarakstri. Þá held ég að þristurinn sé skemmtilegri á langkeyrslum því ásinn er held ég með það concept að vera innanbæjarbílll. Hann er ekki skilst mér með varadekk heldur svokölluð "run-flat"dekk sem geta keyrt einhverja kílómetra þó að það sé sprungið sem á að geta reddað manni ef maður er innanbæjar til að komast á næsta dekkjaverkstæði.


Þristurinn er líka á Run-Flat dekkjum.

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. May 2006 14:54 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Jss wrote:
Schulii wrote:
Ég verð að vera sammála um að þristurinn ætti að verða fyrir valinu. Líka eins og þú segir að þið mynduð ekkert vera í innanbæjarakstri. Þá held ég að þristurinn sé skemmtilegri á langkeyrslum því ásinn er held ég með það concept að vera innanbæjarbílll. Hann er ekki skilst mér með varadekk heldur svokölluð "run-flat"dekk sem geta keyrt einhverja kílómetra þó að það sé sprungið sem á að geta reddað manni ef maður er innanbæjar til að komast á næsta dekkjaverkstæði.


Þristurinn er líka á Run-Flat dekkjum.


ok, en er hann ekki með varadekk?

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 26 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group