bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 05. Jun 2025 20:38

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 28 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 14:51 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Gott hjá þér!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 14:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Jói wrote:
Það þarf ekki kjarneðlisfræðing til að sjá að því stærri og kraftmeiri bílar því minni er eyðslan þegar hraðinn meiri.

Einnig hef ég verið á VW Polo 2 dyra 1.0, VW Golf mk4 1.6 og VW Fabia 4 dyra 1.4. Það er satt hjá Bebecar, ef einhver hélt að smábílar eyddu engu, þá er það hér með opinberað að það er misskilningur. Þessi Polo eyddi t.a.m. 3-4 l á 100 km á milli RVK til Akureyrar.



Nú eigum við konan VW polo, ég átti sjálfur VW Golf bæði III (1,4) og IIII (1,6) í 3 ár hvorn. VW polo-inn okkar eyðir minnst af þessum bílum. En að halda því fram að hann eyði á milli 3-4 í utanbæjarakstri þykir mér undarlegt svo ekki sé minna sagt. Poloinn okkar eyddi á milli 7-8 innanbæjar og datt aldrei niður fyrir 6 utanbæjar. Golf III eyddi steady 10 innanbæjar og rúmlega 7 utan. Golf IIII eyðir eins og andskotinn hann eyðir innanbæjar á milli 11 og 12 og utanbæjar 8. Það skal tekið fram að þetta er ekki miðað við "þungan bensínfót". Konan ók poloinum svo þær eyðslutölur er frá henni komnar og hún ekur alls ekki skarpt.

Þú gerir þér grein fyrir því að byltingarbíllinn frá VW, VW lupo er fyrsti bíllinn til þess að eyða 3L á hundraði og það er dísilbíll og er mjög léttur. Þessi bíll er frægur fyrir einmitt það sem þú heldur fram að Polo geti. Ég hef allavega átt alla þess VW bíla sem þú vitnar í og þekki alls ekki þessar tölur sem þú nefnir.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 17:37 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
Ég er að tala um 2 dyra beinskiptan VW Polo 1.0 '99 með einum bílstjóra um sumartíma, á mjög stöðugum 110 km hraða og engum farangri. Ert þú líka að tala um það? En jæja já, ég hef kannski reiknað þetta eitthvað vitlaust, líklega vanmetið lítranna sem fóru í keyrsluna. Kannski ekki aðalatriðið hversu lítið nákvæmlega Poloinn eyðir utanbæjar en lítið var það og mér þykir mjög ósennilegt að það hafi verið yfir 6 l á 100 km. Það var pointið, að hann eyðir mun mun minna heldur en BMW e36 323.

Ég vil svo sem ekki reyna að vera leiðinlegur, en það gæti líka verið spurning um bílstjóra. Sjálfur er ég alger aurapúki og reyni stundum að eyða sem allra allra minnst. Sérstaklega ef ég er á smábílum sem komast hvort sem er löturhægt, þá reyni ég að stúdera hvar hann eyðir minnstu, við hvaða hraða og reyni helst ekki að fara fram úr.

Samt frekar vitlaust af mér að setja fram þessar tölur sem voru ekkert sérstaklega traustvekjandi og frekar óstöðugar. :?

Þessi Golf mk4 sem þú áttir hlítur að hafa verið eitthvað stórkostlega bilaður. Ég hef aldrei heyrt um þessar tölur áður að þessir bílar séu að eyða 11-12 l á 100 km. Það finnst mér undarlegt, en ég hef kannski ekki alveg nógu mikla reynslu sjálfur en aldrei heyrt um þetta mikla eyðslu, sama hvort það sé frá minni litlu reynslu af þessum bílum, umsögnum annarra eiganda eða prófun bílatímarita og vefsíðna.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 17:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Jói wrote:
Þessi Golf mk4 sem þú áttir hlítur að hafa verið eitthvað stórkostlega bilaður. Ég hef aldrei heyrt um þessar tölur áður að þessir bílar séu að eyða 11-12 l á 100 km. Það finnst mér undarlegt, en ég hef kannski ekki alveg nógu mikla reynslu sjálfur en aldrei heyrt um þetta mikla eyðslu, sama hvort það sé frá minni litlu reynslu af þessum bílum, umsögnum annarra eiganda eða prófun bílatímarita og vefsíðna.


Ég myndi nú ekki segja að 11-12L á hundraðið fyrir 1.6L MK4 Golf sé neitt stórkostlega há eyðsla þó það sé vissulega í hærri kanntinum. Ég keyri um á svona bíl í vinnunni og hann er nokkuð stöðugur í 10L á hundraðið, allt innanbæjar. Þessir bílar virðast vera nokkuð mismunandi í gæðum og virðist eyðslan vera nokkuð mismunandi líka.

En það er alveg rétt að þetta er ansi undarlegur samaburður að bera saman Polo, tala nú ekki um 1L, og BMW 323. Engu að síður er þetta mjög lítið eyðsla fyrir svo öflugan bíl og sýnir að BMW þarf ekkert að eyða miklu bensíni þó hann sé með öfluga vél.

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 18:03 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
það var nú meiningin með samanburðinum að sína fram á að eyðsla væri ekki vandamál.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 18:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Já nákvæmlega. Ég var að lýsa yfir ánægju minni með lítilli eyðslu á BMW-inum :clap:

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 18:53 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Jói wrote:
Það þarf ekki kjarneðlisfræðing til að sjá að því stærri og kraftmeiri bílar því minni er eyðslan þegar hraðinn meiri.

Mér heyrist nú Jón þór vera pretty damn close :lol:

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 16. Jan 2004 18:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55
Posts: 5729
hehe vá á 140km/h ... ætli hondan mín væri ekki í svona 17 lítrum á hundraði miðað við 6000rpm :)

_________________
Haffi W. Schnurrenberger.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 17. Jan 2004 01:14 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Miða við 140km á klst þá er minn að eyða c.a. 10L.... hef samt ekki samreynt það.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 17. Jan 2004 01:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
hlynurst wrote:
Miða við 140km á klst þá er minn að eyða c.a. 10L.... hef samt ekki samreynt það.


Minn er þá í ca. 8 L. :D Hef samt ekki sannreynt það miðað við jafnan hraða. ;)

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 17. Jan 2004 03:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
Ég gleymi því aldrei hvað 523iA eyddi litlu á þýsku hraðbrautunum hraði frá 150 til 230 í lengri tíma yfir 200 og eyðslan var undir 10 l/100km datt svo undir 9 l/100km þegar komið var á íslenska vegi á 100-110 en eyddi alltaf yfir 15 l/100km í hreinum innanbæjarakstri.
Allar tölur skv. mælingu tankurinn var alltaf fylltur.
Það eru nú margir bílar sem eru ekki með loftkælingu þarna úti og menn eru alveg að meika það, ertu ekki með topplúgu? Allt í lagi að keyra bíla á hraðbrautum með topplúguna aðeins upp og svo blástur í gegnum miðstöðina. Það hvín svo lítið í þessum BMW-lúgum.

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 17. Jan 2004 14:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Bjarki wrote:
Ég gleymi því aldrei hvað 523iA eyddi litlu á þýsku hraðbrautunum hraði frá 150 til 230 í lengri tíma yfir 200 og eyðslan var undir 10 l/100km datt svo undir 9 l/100km þegar komið var á íslenska vegi á 100-110 en eyddi alltaf yfir 15 l/100km í hreinum innanbæjarakstri.
Allar tölur skv. mælingu tankurinn var alltaf fylltur.
Það eru nú margir bílar sem eru ekki með loftkælingu þarna úti og menn eru alveg að meika það, ertu ekki með topplúgu? Allt í lagi að keyra bíla á hraðbrautum með topplúguna aðeins upp og svo blástur í gegnum miðstöðina. Það hvín svo lítið í þessum BMW-lúgum.


Já það getur verið að máður láti sig hafa það. Seinasta sumar var bara svon rosalega heitt að það hefði varla verið hægt að ferðast án loftkælingu. Ég hef einmitt tekið eftir því hvað það hvín lítið í lúgunni, það lofar góðu. Svo er bara að hafa 12V kælir með nógu mikið af köldu að drekka.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 19. Jan 2004 21:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Bjarki wrote:
Ég gleymi því aldrei hvað 523iA eyddi litlu á þýsku hraðbrautunum hraði frá 150 til 230 í lengri tíma yfir 200 og eyðslan var undir 10 l/100km datt svo undir 9 l/100km þegar komið var á íslenska vegi á 100-110 en eyddi alltaf yfir 15 l/100km í hreinum innanbæjarakstri.
Allar tölur skv. mælingu tankurinn var alltaf fylltur.
Það eru nú margir bílar sem eru ekki með loftkælingu þarna úti og menn eru alveg að meika það, ertu ekki með topplúgu? Allt í lagi að keyra bíla á hraðbrautum með topplúguna aðeins upp og svo blástur í gegnum miðstöðina. Það hvín svo lítið í þessum BMW-lúgum.


Þarna gæti ég varla verið meiri sammála... var einmitt með 523iA 1997
((OH 880)) og fórum við BMW Mastermechanic Bjarki((B&L)) frá Hannover til Rimini og svo á F1 á Monza,,,með viðkomu á Imola
það var alls ekki alltaf keyrt FLATTout en ég sá 230 km á mælinum
í 15 mín stanlaust ,, að nóttu til og keyrði akkúrat 53km sem deilist þá til að vera 212 km meðalhraði,,,á þessum hraða kom E39 525tds og flaug fram úr mér eyðslan á þessari ferð var 11 L /100 km
ég keyrði 25.000 km á 6 mán og vil ég meina það að bílar í Evrópu eyði
töluvert minna en hér á landi enda mikilu hlýrra loftslag og lengri vegalengdir

Góð ábending ,,,Bjarki,,


Sv.H


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 28 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 35 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group