bimmer wrote:
Þróunin virðist halda áfram. Hvað halda menn - er þetta seasonal sumar/túristasveifla sem fer að ganga til baka?
Það er pínu haldið og sleppt í þessu.
Þetta mikla innflæði á gjaldeyri hefur komið til vegna tveggja þátta (mestmegnis)
1. Túristabransinn
2. Fiskútflutningur
EN .. stóra málið er að ekkert af þessum gjaldeyri hefur fengið að fara aftur út úr landinu og því það Má ENGINN selja krónur fyirr gjaldeyri, það skapar óneitanlega verulega skekkju í gengisskráninguna. Þetta verður best útskýrt með því að seljabankinn er að bjóða offshore krónueigendum (útlendingum) að skipta krónunum sínum fyrir 220 krónur á hverja Evru, ámeðan hann heldur úti skráningu sem er 130ish krónur pr evru. Það er frekar ömurlegur díll, enda stærstu eigendurnir að segja Nei.
Seðlabankinn er í vandræðum með að láta krónuna styrkjast ekki of mikið of fljótt vegna þess að hann er enn að reyna að selja útlendingunum þennan díl. Hinsvegar veit maður ekkert hvað gerist þegar höftin fara, þá mun án efa einhver peningur leita út úr landinu, og kanski myndast eitthvað jafnvægi á innflæði/útflæði og gengið stabíliserast, kanski vonandi.
Vegna þess að... aðal vandamálið er að það er farið að verða sjúklega dýrt að ferðast til Íslands, að vera á Íslandi, gista, borða og bílaleigast. Útlendingar (túristar) sem ég þekki og heyrir af kvarta sáran yfir verðlaginu.
EF Seðlabankinn fer ekki að heimila alvöru útflæði af gjaldeyri og krónan verður látin styrkjast meira mun það óneitanlega bitna á innflæði gjaldeyris, og kanski mjög hratt.
Fyrst vegna þess að fiskurinn skilar ekki eins miklum gjaldeyri, hann verður of dýr, svo vegna þess að færri túristar koma (fjölgunin verður minni, eða jafnvel samdráttur).
Mér líður eins og þeir sem annarsvegar spá verulegri styrkingu krónunar á næstu misserum á sama tíma og þeir spá verulegri fjölgun túrista séu ekki að fatta samhengið.
Þú getur gist á 4ra stjörnu hóteli yfir helgi (á góðum stað) í París fyrir sub og í kringum 300 euro (2 nætur)
Þú færð varla 3ja stjörnu hótel á höfuðborgarsvæðinu fyrir það
4ra stjörnu í Reykjavík (down town) kostar meira yfir helgi en 5stjörnu Luxury hótel í helstu borgum Evrópu.
Á einhverjum tímapunkti hættir fólk hreinlega að geta komið til Íslands útaf verði, allavega núverandi túrístatýpur, og þá er spurning hvort að við náum að færa okkur nægjanlega mikið yfir í "high end". Í versta falli ferð það að gera samanburð, Kanski eru túristar frá Asíu og USA ekki eins næmir fyrir þessu, en evrópubúar geta flogið hvert sem er með ryan/easy/og öðrum fyrir slikk á meðan Íslandsflug kostar nokkuð hundruð júrós.