Sæll Eikibmw.
Ég sé að þú ert kominn aftur á spjallborðið okkar og ég býð þig velkominn ef þú vilt stunda hann samkvæmt reglum okkar. Ég vil líka minna þig á samskipti okkar fyrr í vetur því það virðist vera að þú hafir ekki meðtekið skilaboð mín til þín þá miðað við nýjasta innlegg þitt. Ég sendi þetta út hér þar sem allir geta séð, svona til að spjallverjar viti að við stjórnendur erum ekki ánægðir með hvernig þú ert að umgangast vefinn okkar.
Ég get ekki betur séð en að hér sértu byrjaður aftur að auglýsa sama hlutinn á fleiri en einum stað:viewtopic.php?f=12&t=68562viewtopic.php?f=12&t=68118Hér að neðan eru svo samskipti okkar síðan fyrr í vetur:saemi wrote:
Sæll.
Ég er búinn að biðja þig áður um þetta. Viltu vinsamlegast hætta að setja alltaf nýjar auglýsingar inn um sama hlutinn. Viltu frekar uppfæra gömlu auglýsinguna í staðinn.
Ef þú getur ekki virt þetta þá held ég bara áfram að stroka auglýsingarnar þínar út án þess að senda þér póst eins og þennan.´
Hér að neðan eru nokkrir linkar á auglýsingarnar þínar. Ég mun henda þessu út bráðum, skil eftir eina.
Kveðja,
Sæmi
viewtopic.php?f=2&t=67979viewtopic.php?f=2&t=68011viewtopic.php?f=2&t=66456&p=750052#p750052viewtopic.php?f=2&t=66310&p=748989#p748989viewtopic.php?f=2&t=66278&p=748763#p748763viewtopic.php?f=2&t=65832viewtopic.php?f=2&t=65445eikibmw wrote:
það er svoldið flókið þegar að maður getur ekki eytt ut gömlum auglysingum sjálfur sem ætti að vera hægt
saemi wrote:
Á þessu spjallborði eyðum við ekki út því sem aðrir hafa sett inn. Ef þú gætir eytt þínum gömlu auglýsingum, þá værir þú í leiðinni að eyða öllu því sem aðrir setja inn í auglýsingarnar þínar. Oft koma þar fram hlutir sem eiga fyllilega við það sem er verið að selja og varpa ljósi á hitt og þetta sem kemur tilvonandi kaupanda vel að vita. Ef eitthvað er sett inn í þræði sem ástæða er til að stroka út, vegna ummæla sem eru ekki viðeigandi, þá taka stjórnendur það út eftir ábendingar eða af sjálfsdáðum.
Það er mjög einfalt mál að nota sömu auglýsinguna fyrir sama hlutinn þangað til hluturinn selst. Þegar hann er seldur, þá setur þú einfaldlega "selt" í fyrirsögnina (þú getur alltaf breytt þínum eigin póstum) og eða líka aftast í þráðinn. Þá vita allir að hluturinn er ekki lengur til sölu. Ef þú vilt svo fá auglýsinguna til að færast fremst, seturðu einfaldlega eitthvað komment í þráðinn sjálfur og þá endurnýjast auglýsingin fremst til að aðrir sjá hana.
Þetta eru reglurnar á þessu spjallborði. Ef þú vilt ekki nota þetta spjallborð eins og reglurnar okkar eru, þá hentar þetta spjallborð þér kannski ekki. Þér er velkomið að auglýsa annarsstaðar og stunda aðra staði á internetinu ef þetta gengur ekki upp fyrir þig.
En vinsamlega hættu að ganga sóðalega um þetta spjallborð með að fylla það af auglýsingum um sama hlutinn. Við viljum það ekki.
Sæmi.
eikibmw wrote:
endilega eyðið bara ut öllum minum auglysingum eg hef engann áhuga né lyst a að vera a svona síðu þarsem óþroskaðir heimkskingjar sem eistun eru enn uppi á og gera sér að ánægju að skemma og drulla yfir auglysingar frá manni trekk i trekk nei hef ekki lyst né áhuga á að vera félagsmaður ne notandi af svona þarsem eru eintómir heilagjafar megið troða þessari siðu uppí boruna a ykkur auglysi inna öðrum siðum þar sem mennskt fólk er!
étið svo aftan úr rassgati á hundi allar saman fokking vælusskjóður og drullupumpur
saemi wrote:
Sæll enn og aftur Eiríkur.
Mér sýnist á öllu að þetta mál leysist farsællega ef þú hefur ekki áhuga á að stunda þetta spjallborð lengur. Þá hætta öll vandamál tengd þessari síðu fyrir þig. En eins og ég sagði í byrjun, þá eyðum við ekki út auglýsingum hér á þessu spjallborði (nema það séu settar inn margar um sama hlutinn) svo auglýsingarnar þínar og innlegg fá að standa hér óhreyfð.
Ég mun svo bíða rólegur eftir að eistun mín komi niður, ásamt því að fá vonandi tíma í heilagjöf. Hefur þú annars einhver góð ráð hvernig er best að troða svona síðu upp í rassinn á sér? Einnig veit ég heldur ekki hvar ég fæ svona drullupumpu, þannig að ef þú veist hvar maður fær svoleiðis væri gott ef þú gætir bent mér á það.
Svo er bara að fara og finna sér hund til að borða úr rassgatinu, .. aftan úr og fara að væla og drulla yfir auglýsingar hér á síðunni. Eða bara skemma nokkrar auglýsingar mér að ánægju.
Það verður semsagt nóg að gera hjá mér á næstunni!
Ég vona að síðustu þú hafir það sömuleiðis gott á öðrum síðum og stöðum með mennsku fólki. Ef þú sérð í framtíðinni að það gæti verið gaman að koma aftur hingað á þessa síðu (nema þá ef mér skyldi takast að troða henni upp í rassgatið á mér, þá geturðu ekki verið á henni), vertu þá velkominn ef þú ert til í að fylgja reglum okkar og ábendingum.
Einnig þyrftir þú líka að vanda betur orðaval þitt í skrifum, því þú átt til að velja orð sem teljast varla prenthæf á almennum spjallborðum. Stafsetningin hjá þér er hinsvegar nokkuð góð svo þú ert ábyggilega með eitthvað smá í kollinum og eflaust ágætlega alinn upp drengur frá besta heimili.
Bestu kveðjur í bili og von um góðar stundir.