bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 03. May 2025 11:06

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 11 posts ] 
Author Message
 Post subject: BMW E28 525i '85
PostPosted: Sun 15. Jan 2006 12:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Ég veit ekki hvort þið trúið mér en þetta geri ég með tárin í augunum ;(

Ég hef hvorki næga kunnáttu, peninga, aðstöðu né tíma til að eiga gullið mitt lengur. Það þarf ýmislegt að gera fyrir greyið.
Hann fer samt sem áður hraðar í gang í frosti en nýja toyotan hennar mömmu ;)

BMW 525i '85
svart/dökkgrár
Ekinn c.a. 195000 samkvæmt mæli
Sjálfskiptur
Álfelgur
Sumardekk ljómandi fín
Geislaspilari sem spilar mp3 ;) bara 25w samt
Ekki leður eða neitt svoleiðis rugl

Jæja, ástand bílsins
Hann er þreyttur:´
Í morgun fór pústkerfið í sundur undir miðjum bíl og það er by the way ónýtt frá a-ö. Pínu dæld á frambretti hægra megin að framan, og svuntan ef svuntu á að kalla er orðin frekar þreytt og löskuð.
Ég er yfir mig ástfanginn af vélinni og skiptingunni. Það hefur verið að svínvirka. Hann rýkur í gang fljótt og örugglega, en þegar hann er heitur tekur það svona 3 sekúndur og það finnst mér miiiikið. En rafgeymirinn og startarinn eru í 110% standi, aldrei heyrt bíl starta eins hratt.
En eitthvað er að vélinni, ekki að maður finni það á neinn einasta hátt nema með eyðslu. Veit nú ekki alveg hvað hann á að vera að eyða en hann er að eyða suddalega miklu hjá mér.
Og ekki gerir það málin betri að bensíntankurinn er með gati á hliðinni svo það er bannað að setja meira en 2000 kr. á hann og bannað að beygja til vinstri á mikilli ferð ;)
Hann er með rosalegan caracter þessi bíll.
Hitinn á vélinni er alltaf eðlilegur nema ein undantekning, honum leiðist laugarvegurinn :) þá fer hann örlítið upp, þá er málið að bruna niður á sæbraut og keyra hratt í smá stund og þá er það komið í lag, hann nennir ekki að keyra hægt hehe.
Hraðamælirinn hætti að virka fyrir svona 1-2 mánuðum. Mér er alveg sama, ég veit að ég keyri of hratt, þarf engan mæli til að segja mér það ;)
Einhver sagði mér að það væri lítið mál að koma því aftur í lag en ég hef bara ekki haft tíma til að kíkja á það.
Ég veit ekki hvað er rétt verð á svona bíl en ég er svo yfir mig ástfanginn af honum að ég er ekki tilbúinn að fara undir 150 þús kjell.

Svo er bara að bjóða í gripinn ;)
Myndir:
http://www.we-todd-did-racing.com/wetoddimage.wtdr/wMTA4MTk4OTZzNDEzZGZkMzF5NTQx.jpg
http://www.we-todd-did-racing.com/wetoddimage.wtdr/wMTA4MTk5MTZzNDEzZGZkMzF5NTQx.jpg
http://www.we-todd-did-racing.com/wetoddimage.wtdr/wMTA4MTk5MDZzNDEzZGZkMzF5NTQx.jpg

Skoða skipti í bíl sem eyðir svona 10x minna en þessi ;) En þá bara slétt skipti eða að ég fái pening.. ég á ekki hálfa krónu með gati.

Upplýsingar í email vallifudd@msn.com eða í gegnum msn á því msn emaili..
Má líka prófa að hringja í 820-8488.. Er alltaf með hann hjá mér en er að vinna í síma mikið svo ég get ekki svarað mikið, allavega ekki í dag. Hægt að senda sms í 820-8488 og þá get ég hringt til baka t.d... Hentar líklega betur.

Kveðja
Valli Djöfull


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 15. Jan 2006 12:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
og já... lykillinn sem fylgir með passar bara á svissinn... svo það er ekki hægt að læsa honum :? en það hefur ALDREI verið farið inn í hann hjá mér.. ég er með lucky bangsa í afturrúðunni sem hefur passað bílinn frá upphafi, enda hefur ekkert komið fyrir á meðan ég hef átt hann..:) p.s. hann fylgir EKKI með.. hehe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 15. Jan 2006 19:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08
Posts: 3377
150 kall . jólin eru búin verður að bíða til næsta árs

_________________
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 15. Jan 2006 19:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Ég var alls ekki hrifinn af þessum bílum þangað til ég fékk rúnt á þessu. Reyndar í 528 bíl ... en ef þessi er eitthvað nálægt þá er þetta eitthvað fyrir E28 áhugamenn sem hafa tíma í að græja beastið.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 16. Jan 2006 00:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
þegar ég fékk þennan, var ég að "sætta mig við" að dröslast á e28... en ég varð svo yfir mig ástfanginn :p það er ótrúlega gott að keyra þessa bíla.. allavega minn ;) í þessarri færð sem er á götum borgarinar núna, held ég honum í 1-2 þrepi og í svona 2-3 þús snúningum og hann dansar um allllla götuna undir fullri stjórn :) ótrúlega skemmtilegur bíll, gott handling miðað við það sem ég bjóst við :) hef einu sinn spyrnt á honum að ráði.. þá var það við 525 e34.. það var svo hnífjafnt að það var ekki hægt að skera úr um sigurvegara hehe.. en annars er þetta ljómandi skemmtilegur bíll.. ef ég ætti sjálfur svona 150-200 til að henda í hann myndi ég aldrei týma að selja hann :( er bara flat out broke


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 01. May 2006 18:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
any takers?
Mér var sagt að það hefði verið lögga í keflavík sem hefði átt hann nánast alla tíð.. þar til fyrir einhverjum 3-4 árum eða svo.. ég hef ekki kannað það... en ég trúði því bara :)

Skipti á þessum bíl og e36 318 með ónýta vél :)
Jóis var svo góður við mig og er búinn að koma þeim 318 bimma aftur á götuna.. var seldur hér nýlega fyrir 200 kjell :)

Það þarf að gera slatta fyrir þennan bíl.. langar að gera það sjálfur en það mun þá taka nokkur ár.. hann er enn á númerum.. eða ég er með þau og á eftir að skila þeim inn.. en það verður gert á næstu dögum ef hann fer ekki


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 31. May 2006 20:19 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Posts: 868
Location: Kópavogur
Kaupa bara bílinn og fara á þessa síðu og koma honum í gang :)


http://www.m535i.org/e28info2/buyer.html

_________________
e36 316 Touring 1998
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 07. Jun 2006 09:18 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 01. Jun 2006 13:41
Posts: 346
Location: RVK
er þessi ennþá til sölu?

hvað er lægsta hugsanlega verð sem þú ferð í? mér finnst þetta soldið hátt verð miðað við vinnuna sem þarf að leggja í hann.

og þið hinir sem luma á projecti fyrir lítið, mig vantar project.
E-hvaðsemer, allt kemur til greina.

PM eða 8401432


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 07. Jun 2006 16:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
já fokk.. ég gleymdi að breyta...;) hann fer alveg á 50 þús sko..


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 09. Jun 2006 08:25 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 01. Jun 2006 13:41
Posts: 346
Location: RVK
SOLD 8)

_________________
Bjöggi
BMW 318IA E46 Touring '01


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 09. Jun 2006 10:00 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Posts: 1498
Location: Hrollkalda Ísland
Til hamingju... 8)

_________________
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 11 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 101 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group