bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 28. Mar 2024 23:59

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 17 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: 2006 Bmw 530xd E61 ZJV56
PostPosted: Sun 06. Dec 2020 16:03 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Jæja kominn tími á að gera smá þráð um minn fyrsta Bmw.
Þetta er semsagt 2006 Bmw 530xd. Fjórhjóladrifinn 3.0l dísel 231hp.

Ég kaupi hann í mars 2020 af eldri manni sem var annar eigandi. Hann tók bílinn með sér heim frá Svíþjóð 2017.
Bíllinn var ekinn 370.þús km þegar ég kaupi hann og er eins og stendur í 394.þús km.

Var pínu hræddur við það að kaupa bíl sem var ekinn svona mikið, en skoðaði nokkra e60/e90 á svipuðu verðbili, allir keyrðir um 200.þús. Þessi var í miklu betra ástandi heldur en allir hinir svo ákvað að láta slag standa og festa kaup á honum. Fullt, fullt af kvittunum uppá milljón kall hjálpaði líka ;)

Hérna er ég nýlega búinn að kaupa bílinn og fjarlægja brúnu filmurnar sem voru í afturrúðunum. Image

Skrúfað sumarfelgurnar undir með nýjum michelin pilot sport 4 dekkjunum og farið í smá ferð með hundinn.
Image Image

Sett 10mm spacer á afturfelgurnar til að þær flútti betur við afturbrettin.
Image

Þrifinn og bónaður fyrir sumarið
ImageImage

Ákvað að prófa hann á kvartmílunni, bíllinn er alveg upprunalegur, ennþá með dpf, egr og varahluti og verkfæri í skottinu :)
Fór 15,4 á 138km/h
Image

Prófaði mig áfram með mössunarvél, kom ágætlega út og tók myndir með bílnum hjá kærustunni, 07 530xd e60 msport.
Einnig var bíllinn filmaður.
Image

Vetrarfelgurnar skrúfaðar undir og keypt ný vetrardekk í leiðinni
Image

Keypti ný afturljós á bílinn, lci look ljós. Finnst það koma vel út, sérstaklega þar sem gömlu ljósin voru sprungin og ljót.
Image

Hérna er verið að skipta um soggreinapakkningar, glóðarkert, glóðarkertatölvu, allar vacum slöngur og egr pressure solenoid. Einnig sett swirl flap delete í og þrifið egr ventil.
Image

Hérna er síðan bara viðhaldslistinn þar sem ég á ekki myndir með öllu þessu hehe.
ImageImageImageImage

Sent from my SM-G973F using Tapatalk


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 06. Dec 2020 22:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15938
Location: Reykjavík
Flottur!

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 07. Dec 2020 12:13 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6764
Þrusu fínn bíll!!

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 07. Dec 2020 16:10 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Þakka hrósin
Bmwkrafts númerarammanir koma líka vel út á honum :)

Sent from my SM-G973F using Tapatalk


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 11. Dec 2020 18:47 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Jæja svona míní update.
Keypti M stýri, loftpúðalaust hjá Skúla í síðasta mánuði.
Pantaði loftpúða í það á ebay, kemur vonandi í næstu viku :D
Ákvað að sprauta plastið á því, þarsem gúmmíhúðunin var orðin ljót eins og gerist með öll þessi stýri.

Fyrir
ImageImageImage

Búið að taka plastið af, bara 2stk T20 torx og toga upp.
Image

Reif eins mikið úr plöstunum og ég gat og teipaði yfir það sem ég náði ekki úr.
Image

Notaði þynni og plastsköfu til að ná gúmmíhúðuninni af, náði ekki alveg öllu þannig renndi yfir með 800 sandpappír.

Eftir 3 umferðir af matt svartri málningu þá leit þetta svona út
Image

Og komið á stýrið
Image

Fínt að eyða kvöldinu í þetta, er nokkuð sáttur með hvernig þetta kom út. Aðeins of 'svart' að mínu mati, var að vona að þetta myndi líta út eins og oem.

Einnig var ég búinn að lenda í veseni með það að bíllinn hökti stundum á 100km/h við létta gjöf.
Eftir smá lesningu á netinu þá er þetta algengt vandamál sem tengist egr ventlinum.
Hann hleypir semsagt inn lofti á vél þegar vélin er ekki búinn að reikna með því. Þá kemur lítið hökt eins og bíllinn sé að misfire-a.

Þetta er leyst með endurforritun á egr ventlinum, gat gert það í appi í símanum sem heitir Bmwtool. Undir Egr adaptation.

Er bara búinn að keyra einhverja 20km síðan og bíllinn virðist vera hættur þessu, en sjáum til :)

Sent from my SM-G973F using Tapatalk


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 12. Dec 2020 20:22 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6764
Þrusu flott mod svona ///M Stýri!

hvernig er að fá loftpúðanum shippað til íslands ? er það ekkert vesen

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 12. Dec 2020 20:54 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Mazi! wrote:
Þrusu flott mod svona ///M Stýri!

hvernig er að fá loftpúðanum shippað til íslands ? er það ekkert vesen
Nei ekkert vesen so far. Var að fá tölvupóst áðan að þetta væri komið til landsins og að ég ætti að senda kvittun á póstinn.

Vonandi gengur þetta hiklaust fyrir sig :)

Sent from my SM-G973F using Tapatalk


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 15. Dec 2020 17:18 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Jæja þá fékk ég loftpúðan minn í dag og skellti þessu í bílinn eftir vinnu.
Tók ekki nema 15mín allt í allt.
Þvílíkur munur að keyra bílinn núna.

Byrjar á því að aftengja geymirinn og bíða í einhvern tíma, ég beið í 5mín.
Svo er lítið gat neðst á stýrinu bakvið, þar stingur maður mjóu og löngu flötu skrúfjárni og ýtir á stöng. Þá poppar loftpúðinn fram og tekur hann úr sambandi á klukkuhring (eitt tengi)
Image

Svo er eitt tengi fyrir takkana og flautuna á klukkuhring, aftengir það og losar boltan 15mm haus.
Image

Svo er installation bara akkúrat öfugt :)
ImageImage

Tengdi geymirinn og svissaði á, þá voru kominn fullt af flottum ljósum í mælaborðið, örugglega tengt því að taka geyminn úr sambandi.
Image

Eyddi út kóðum og allt í gúddí.
Olíuhæðarskynjarinn er bilaður og verður skipt um hann í næsta smuri, annars finnst mér þetta helvíti fínt fyrir tæpa 400.000km :D
Image

Sent from my SM-G973F using Tapatalk


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 15. Dec 2020 22:54 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6764
Þetta kemur vel út!


það er ótrúlegt hvað flott stýri breytir aksturs ánægjunni hjá manni :)

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 15. Dec 2020 23:30 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Mazi! wrote:
Þetta kemur vel út!


það er ótrúlegt hvað flott stýri breytir aksturs ánægjunni hjá manni :)
Ekkert smá!
Besta mod við bílinn so far alveg á hreinu.

Næst á dagskrá er að öllum líkindum dpf og egr delete og svo mapp.

Sent from my SM-G973F using Tapatalk


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 23. Jan 2021 13:26 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Jæja lítið update.

Það skrölti alltaf í einhverju bakvið sílsaplastið v/m þegar tónlist var spiluð hátt.
Hljómaði eins og 97 corolla með bassakassa.
Kippti sílsaplastinu af og fann þessa plast tappa sem voru rifnir og skröltu í sílsanum sjálfum.
Skellti nýjum gúmmítöppum í þetta sem pössuðu, hreinsaði yfirborðsryðið sem var byrjað að myndast á 2 stöðum. Sprautaði svo fluid film yfir allan sílsan og inní hann.
Image

Skipti um fremri spindilkúlu h/m framan, skipti um sömu kúlu v/m þegar ég keypti bílinn. Kjánamistök að hafa ekki skipt um báðu megin þá.
Eins og sést þá þarf mikið ofbeldi og hita til að ná þessum kúlum úr nafinu.
Auðvitað var keypt original kúla. Vil helst ekki gera þetta aftur :)
Image

Skellti nýjum þokuljósum í bílinn að framan báðu megin, spegillinn í hinum var ónýtur og þau lýstu ekki neitt.
Setti led perur í þau í leiðinni uppá að hafa sama lit í öllu.
Image

Kíkti síðan prufuhring á þingvallavatn, alltaf jafn fallegt þarna.
ImageImage

Næst á dagskrá er að kaupa nýtt downpipe með engri sótsíu
Er búinn að panta egr delete og fékk nýjar klemmur og pakkningu sem tengist downpipe. Allt oem að sjálfsögðu, kostar slikk á schmiedmann.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 17. Apr 2021 10:55 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Skipti út led angel eyes perunum fyrir original gult.
Kemur miklu betur út að mínu mati.ImageImageImageImage

Á síðan von á stórri sendingu vonandi í næstu viku, svo fer bíllinn í sprautun í maí.

Sent from my SM-G780F using Tapatalk


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 17. Apr 2021 21:27 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6764
Smekksmaður!!


ég hef aldrei þolað þegar menn setja einhverjar svona bláhvítar perur í stöðuljósin á E39,E60,E65 ofl :bawl:
þetta á að vera svona gulhvítt!

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 01. May 2021 15:43 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Keypti 535d dælur og kjamma.
Fékk þetta kappakstursrautt þannig þetta fór beint í sandblástursgræjuna og var sprautað original grátt.
Image


Svo kom Stóri pakkinn svo það var farið í það að henda þessu í.
Image


Þetta er hæðin að framan fyrir
Image

Úr með gamla ónýta dótið
Image

Og í með nýja dótið með lækkunargormum
Image

Úr með 'gömlu' 530d bremsurnar
Image

Og í með nýju 535d bremsurnar
Image

Ágætis bolt in upgrade
Image

Hérna er síðan hæðin á honum eftir, mun líklegast lækka aðeins í viðbót en er mjög sáttur með þetta eins og hann er
Image

Image

Sent from my SM-G780F using Tapatalk


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 22. May 2021 14:35 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Apr 2014 15:33
Posts: 32
Sótsían var alveg á síðustu metrum, brenndi úr á hverjum degi nánast svo fór í það að fjarlæga þennan búnað.
Skildi hvarfan eftir uppá mengun og skoðun.
Fjarlægði egr systemið í leiðinni þar sem ventillinn var að stríða öðru hverju.

Fór með hann í endurforritun eftir þetta, á víst að vera 280hp 600nm.
Virkar allavega miklu betur og tekur betur við gjöf. Allt í allt, mikið skemmtilegri.

Fór síðan í sprautun, var komið aðeins yfirborðsryð í afturbrettin sem þurfti að stoppa strax, lét mála afturbrettin b/m og framstuðaran
ImageImageImageImageImage

Kom vel út að mínu mati, þá er hann bara klár í sumarið

Sent from my SM-G780F using Tapatalk


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 17 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 56 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group