Smá update á þessari vitleysu. Er ekkert voðalega mikið búið að gerast í þessu en þannig var að ég mátaði vélina ofaní bílinn sem þetta á að fara í og þá kom í ljós að með soggreininni sem ég smíðaði að þá lenti throttle body-ið akkúrat á miðri húddlæsingu þannig að annaðhvort var að breyta soggreininni eða húddlæsingunni. Svo þetta mix með vatnsláshúsið var ekki að gera sig því þá þyrfti ég mjög spes vatnskassa til að allt gengi upp. Þegar ég sá hvað þetta var allt saman afleitt ofaní bílnum þá féllust mér eiginlega hendur og ég fékk smá ógeð á þessu og ákvað að hvíla mig aðeins á þessu. En nú er eitthvað að gerast að nýju og eftir að ég fékk nýja soggrein hjá Sæma og vatnsláshús hjá Skúla þá lítur þetta svolítið öðruvísi út í dag, en ég ákvað að fara alpina leiðina með soggreinina nema nota samt ennþá Q45 throttle bodyið.
Svo kom eitthvað nýtt dót með póstinum...
og nýplanað swinghjól svo allt sé tipp-topp...
Svo áskotnaðist mér smá kuðungur sem er notaður en í fínu standi HX55
með T6 flangs
Veit ekkert hvort að ég muni einhvertíma nota hann en það er gott að eiga svona
.
Svo er bara að rembast við að halda áfram fyrst maður er byrjaður aftur á þessu