Zazou og ég fórum í gagnkvæmann reynsluakstur á bílunum. Þessi Jagúar er afskaplega fallegur og ég held ég hafi bara ekki séð meiri eðal innréttingu en í þessum bíl og hún er bara algjörlega eins og ný!
Vélin var fornvitnileg og skemmtileg og aflið greinilega til staðar en vegna (vacum vandamála/ ekki víst samt) þá byrjar hún ekki að toga almennilega fyrr en í 4 þús snúningum. Þetta er nánast hljóðlaust í akstri og bíllinn er geysilega solid.
það væri nú gaman að sjá jagúarinn og 750 bíl taka run þegar heilsan er komin í samt lag.
Mér finnst þetta snilldar bílar og ef ég væri ekki svona smeykur við bremsukerfið (viðgerðir) þá væri þessi bíll mun ofar á innkaupalistanum hjá mér - en hann er þar nú samt.
Svo er auðvitað spurning hvort það séu samskonar bremsur í XJR bílunum af yngri gerðinni.
Takk fyrir túrinn - þetta var mjög gaman!


